Í gær var stór dagur hjá okkur fjölskyldunni en þá útskrifaðist Óskin okkar úr Versló. Mér finnst stúdentsútskriftir svo dásamlegar. Glæsileg ungmenni sem standa á þröskuldi fullorðinslífsins, menntaskólinn að baki og þau geta tekið hvaða þá stefnu í lífinu sem hugur og hjarta girnist. Ósk er metnaðarfull og dugleg, hún er löngu búin að ákveða að fara í lögfræði næsta haust og hún hlakkar mikið til að takast á við það verkefni.
Við vorum með veislu heima í tilefni dagsins. Fyrst sátum við þó langa og skemmtilega athöfn i Háskólabíói. Það er með ólíkindum hversu hæfileikaríkir krakkar eru í Versló. Þarna tróðu upp krakkar úr útskriftarhópnum með glæsilegum söng, óperusöng, spiluðu Rachmaninoff á píanó og ég veit ekki hvað. Dúx skólans var sá hæsti í sögu skólans, fékk 9.8! Það þarf sannarlega ekki að bera kvíðboga fyrir framtíðinni þegar allir þessir flottu krakkar taka við keflinu af okkur „gamla“ fólkinu! 🙂
Við vorum með allskonar smárétti í veislunni. Ég útbjó allt sjálf fyrir utan þrennt, risarækjurnar og sushi frá Osushi og svo keypti ég líka glæsilegar litlar stúdentskökur frá Önnu konditori. Mér finnst svo fallegar stóru stúdentsterturnar hennar.
Hins vegar vildi ég hafa allt í smáréttaformi. Ég bað því Önnu um að gera litlar kökur með stúdentshúfum sem hún og gerði – þvílíkt flott! 🙂
Ég gerði að auki tvenns konar sæta bita, litlar Pavlovur og franska súkkulaðikökubita. Það er algjör snilld að búa til franska súkkulaðiköku og bera fram í litlum munnbitasneiðum með smá rjóma og jarðaberi, fullkomnun í einum munnbita! 🙂 Það er lítið mál að tvöfalda þessa uppskrift, setja hana í ofnskúffu og baka í 30 mínútur. Þegar kremið er komið á er gott að setja hana í kæli áður en hún er skorin niður í litla bita. Mér finnst best að setja svo rjómann og jarðaberið á rétt áður en kakan er borin fram, þannig er það ferskast.
Að auki gerði ég litlar Pavlovur sem eru alltaf svo góðar.
Að þessu sinni prófaði ég nokkrar nýjar smáréttauppskriftir sem lukkuðustu vel.
Ég fann uppskrift að skemmtilegum vorrúllum í Gestgjafanum (minnir að hún hafi komið frá Lukku í Happi).
Ég breytti aðeins uppskriftinni eftir ábendingu vinkonu minnar sem prófaði þær um daginn. Í uppskriftinni er kjúklingur hakkaður. Hins vegar er tilbúið kalkúnahakk (frosið) í versluninni Víði og það kostar bara 799 krónur kílóið. Ég notaði það og einfaldaði aðeins uppskriftina, hún kom vel út og var mikið auðveldari en ég hélt. Wonton deigið er eins og örþunnt smjördeig sem kemur í litlum ferningum, ca. 50 stykki í pakka (misjafnt þó eftir tegundum), það fæst í Víetnömsku búðinni á Suðurlandsbraut. Deigið kemur frosið og kostar um 800 krónur pakkinn. Það er mjög fljótt að þiðna og auðvelt í notkun. Í þessari uppskrift eru rúllurnar hitaðar í ofni sem kemur vel út en auðvitað er örugglega enn meira djúsí að djúpsteikja þær. Það er lítið mál að útbúa þessar rúllur deginum áður og geyma þær í kæli. Svo er gott að hita þær aðeins upp í ofni áður en þær eru bornar fram.
Uppskrift (ca. 30-40 rúllur)
- 600 g kalkúnahakk (fæst frosið hjá Víði)
- 3 msk sesamolía
- 2 msk bragðlítil olía
- 6 hvítlauksgeirar, rifnir
- 4-5 msk ferskt engifer, rifið
- 250 g sveppir, saxaðir smátt
- 1 stór blaðlaukur, saxaður smátt
- ca. 2 meðalstór rauð chili aldin, fræhreinsuð og söxuð mjög smátt
- 6 msk Hoisin-sósa
- 10-12 dl fínt skorið kínakál
- 1 pakki Wonton deig (fæst í Víetnömsku búðinni – Suðurlandsbraut)
- olía til að pensla rúllurnar með
- sweet chill sósa til að dýfa vorrúllunum í
Ofn stilltur á 190 gráður við undir- og yfirhita. Sesamolía og olía hituð á pönnu. Hvítlaukur og engifer er steikt í nokkrar mínútur (má ekki brenna). Þá er kalkúnahakkinu bætt út á pönnuna og það steikt. Því næst er sveppunum bætt út í og allt steikt í nokkrar mínútur. Svo er blaðlauk, chili og hoisin-sósu bætt út í látið malla í 1-2 mínútur og pannan því næst tekin af hellunni. Að síðustu er kínakálinu blandað saman við og blandan látin kólna dálítið. Einn Wonton ferningur er tekinn fram og ca. 2 tsk af blöndunni er sett inn í ferninginn, brotið lítið eitt upp á sitt hvorn endann og deiginu rúllað þétt upp. Gott er að hafa vatn í skál hjá sér og bleyta endann á deiginu þegar loka á samskeitunum á rúllunni. Þá er fingrinum dýft ofan í vatnið og brúnirnar bleyttar hæfilega mikið á deiginu. Rúllunum er raðað, með samskeytin niður, á ofnplötu klædda bökunarpappír. Rúllurnar eru penslaðar með olíu og settar inn ofn í um það bil 7-8 mínútur. Þá er þeim snúið við og þær bakaðar áfram í ca. 7-8 mínútur eða þar þær hafa náð fallegum lit og eru stökkar. Rúllurnar eru bornar fram með sweet chili-sósu.