Bananapæ með Dumle go nuts karamellusósu


IMG_8127IMG_8118Eitt af því besta sem ég veit er þegar banönum, karamellu og rjóma er fléttað saman í gómsætan eftirrétt. Þegar ég tók að mér að gera Dumle uppskriftirnar um daginn þá langaði mig ægilega mikið að búa til eftirrétt með einmitt þessum hráefnum. IMG_8135 Dumle go nuts molarnir eru vandræðalega góðir, mjúk karamellan, hnetur og súkkulaði sem kemur allt saman í einum mola. Ég sá það fyrir mér að það væri auðvelt og gott að gera karamellusósu úr þessari dásemd og þannig varð þetta bananapæ til á örskömmum tíma. Þetta er eftirréttur sem hægt er að útbúa á bara nokkrum mínútum, það finnst mér alltaf vera mikill kostur, en fyrst og fremst er þetta svo óskaplega gott! 🙂 IMG_8133 Uppskrift f. 4

  • 150 g Digestive kex
  • 2 meðalstórir bananar, vel þroskaðir
  • 1 poki Dumle go nuts (175 g)
  • 2 ½  dl rjómi
  • 4 msk rjómi

IMG_8116 Kexið er mulið fremur smátt. Bananar skornir í sneiðar og 2 ½ dl af rjóma þeyttur. Dumle go nuts molarnir (3 molar skildir eftir til skrauts) eru settir í pott ásamt 4 msk af  rjóma og brætt við vægan hita. Því næst er skipt á milli 4 skála: kexmylsna í botninn, þá Dumle go nuts sósa, bananabitar, þeyttur rjómi, kexmylsna, Dumle go nuts sósa, þeyttur rjómi og loks restinni af bananabitunum stungið ofan í rjómann. Dumle go nuts molarnir þrír eru saxaðir smátt og dreift yfir til skrauts. IMG_8131 IMG_8121IMG_8122

Jólamolar með karamellu Pippi


Jólamolar með karamellu PippiSeint í gærkvöldi kom ég heim úr nokkra daga frábærri Stokkhólmsferð með elstu dótturinni og Ingu frænku. Þar sem ég bjó í borginni í 15 ár er það alltaf mjög nostalgískt fyrir mig að koma „heim“. Við fórum út að borða á góðum veitingastöðum og fórum á nýja ABBA-safnið sem mér fannst ákaflega skemmtilegt. Á laugardagskvöldinu fórum við Inga svo á söngleikinn Evitu með Charlotte Perrelli í aðalhlutverki. Við fórum líka í saumaklúbb til íslensku vinkvenna minna sem búa enn í Stokkhólmi, frábært að hitta þær allar. Að sjálfsögðu versluðum við líka svolítið og núna er ég hér um bil alveg búin að kaupa allar jólagjafirnar og búin að kaupa jólaföt á börnin. Þetta er ágætt skref í áttina til þess að vera „búin að öllu“ í góðum tíma fyrir jól – árlegt markmið sem hefur enn ekki ræst! 😉

Í Stokkhólmi var búið að skreyta allt svo fallega í miðbænum og jólalögin farin að hljóma í búðunum. Ég veit að mörgum finnst það of snemmt en mér finnst það frábært! Aðventan er svo fljót að líða að mér finnst það bara gott að byrja að njóta sem allra fyrst. Ég var að prófa mig áfram með smákökubakstur um daginn og datt niður á þessar smákökur á nokkrum sænskum matarbloggum. Ég ákvað að útfæra þær á minn hátt og prófa að nota karamellu Pipp í uppskriftina. Þetta lukkaðist svo vel að það er ekki ein einasta smákaka eftir! Það finnst mér reyndar mjög gott, ég vil að fjölskyldan njóti nýbakaðra smákaka á aðventunni í stað þess að loka þær ofan í box.

Jólamolar með karamellu Pippi

Uppskrift:

  • 120 g smjör (við stofuhita)
  • 100 g púðursykur
  • 100 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk vanillusykur
  • 6 msk bökunarkakó
  • 280 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • ¼ – ½ tsk salt
  • 200 g Pipp með karamellu
  • 150 g hvítt súkkulaði

IMG_7943

Ofn hitaður í 200 gráður við undir- og yfirhita. Smjör, sykur og púðursykur hrært saman þar til blandan verður létt og ljós. Þá er eggjum blandað útí, einu í senn og hrært vel á milli. Hveiti, kakói, vanillusykri, salti og lyftidufti er bætt út í smátt og smátt, þess gætt að hræra ekki of mikið. Því næst er tekið um það bil ½ msk af deiginu, því rúllað í kúlu og hún flött út í lófanum. Einn Pipp moli er settur inn í deigið og því vafið vel utan um molann. Bitunum er þá raðað á ofnklædda bökunarplötu og bakað við 200 gráður í 6-7 mínútur. Þegar kökurnar eru komnar úr ofninum er hvítt súkkulaði brætt og því dreift yfir kökurnar þegar þær eru orðnar kaldar.

IMG_7948

Lambaborgarar


LambaborgararUm helgina kom umfjöllun á mbl.is varðandi markaðssetningu á lambakjöti og þar var sérstaklega tekið fyrir hversu hrifnir matarbloggarar virðast vera af kjúklingi á kostnað lambakjöts. Málinu til stuðnings voru uppskriftir taldar á matarbloggum og þar kom í ljós  að lambakjötsuppskriftir voru býsna fáar miðað við kjúklingauppskriftir. Ég er einn þeirra matarbloggara sem er „sek“ um að vera með fáar lambakjötsuppskriftir á síðunni minni. Í kjölfarið fór ég að hugleiða hvers vegna svo væri.

Ég er eiginlega handviss um að sú staðreynd, að hér á blogginu mínu séu kjúklingauppskriftir í meirihluta en fáar lambakjötsuppskriftir, endurspegli hversdagslegan raunveruleika margra barnafjölskyldna hér á landi. Gott lambakjöt er dýrt, kostar ca. 3-5 þúsund krónur kílóið (læri, prime, file og slíkt) – fyrir mér eru þetta kjöt sparimatur, eiginlega í flokki með nautakjöti. Aðrir ódýrar bitar sem boðið er upp á er t.d. súpukjöt og oftast annað lambaköt á beini. Mér finnst grillað eða hægeldað lambakjöt best, það er tímafrekt og tilheyrir frekar helgarmatargerðinni á mínu heimili. Þegar keypt er lambakjöt á beini þá þarf líka oft að vinna það meira (skera frá beini) eða elda það lengur, hvort tveggja er tímafrekt og tímafrek eldamennska virkar engan veginn í miðri viku fyrir venjulegar barnafjölskyldur. Stór þáttur í lambakjötsmálinu er einnig að yngstu börnunum mínum finnst lambakjöt alls ekki gott. Það er mjög algengt að börnum finnst lambakjötið of fitumikið og bragðsterkt en sem betur fer lagast þetta oftast með aldrinum. Annar stór þáttur í þessu er að í hefðbundnum matvöruverslunum er lítið úrval af góðu lambakjöti. Til þess að kaupa gott lambakjöt þarf helst að fara í kjötverslun eða matvöruverslun með kjötborði, það krefst tíma og fyrirhafnar sem fæstar fjölskyldur hafa í miðri viku.

Að þessu öllu sögðu þá býð ég að sjálfsögðu upp á gómsæta lambakjötsuppskrift í dag!

IMG_8216

Minnug þess, í öllum þessum lambakjötspælingum, að stundum hef ég getað keypt ferskt lambahakk í Þinni verslun (sem ég er svo heppin að hafa í hverfinu og þar er gott kjötborð), kom ég þar við í dag. Lánið lék við mig og ég fékk gott lambahakk úr kjötborðinu (einungis 990 kr kílóið!) og gat því búið til lambaborgarana sem eg hef hugsað um lengi. Ég notaði hamborgarapressu sem gefur 200 gramma borgara, ég mæli með slíkri græju. Þó svo að yngsta barnið hafi ekki látið plata sig til þess að borða lambakjöt þótt það hafi verið dulbúið sem hamborgrari þá ætla ég sannarlega að vera duglegri að nota lambahakkið, það er æðislega gott og ekki spillir hversu ódýrt það er. Þessir borgarar sem sagt slóu í gegn hjá öllum í fjölskyldunni nema þessari yngstu! 🙂

Uppskrift (5 x 200 gramma borgarar):

  • 1 kíló lambahakk
  • 120 g fetaostur (ekki í olíu heldur kubbur)
  • ca. 30 g kóríander og/eða flatblaða steinselja, saxað.
  • 1 sítróna – hýðið fínrifið
  • 2 msk ólífuolía
  • 4 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð fínt
  • gott salt og ferskmalaður svartur pipar

 

IMG_8206

Fetaostur mulinn í skál. Kryddjurtum, rifnu sítrónuhýði, ólífuolíu og hvítlauki blandað saman við og kryddað með salti og pipar. Látið standa í nokkrar mínútur. Þá er blöndunni blandað saman við lambahakkið og hamborgarar mótaðir. Gott er að nota hamborgarapressu. Grillað eða steikt á pönnu við meðalhita þar til borgararnir eru hæfilega steiktir. Borið fram með salatblöðum, tómötum, rauðlauk ásamt fetaostasósu með avókadó

IMG_8211

Fetaostasósa með avókadó:

  • 1 dós sýrður rjómi (180 g)
  • 130 fetaostur (kubbur, ekki í olíu)
  • 1 þroskað avókadó
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1 hvítlauksrif
  • salt og pipar

Öllu blandað saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.IMG_8218

IMG_8224

Bananamuffins með Dumle karamellum


IMG_8009IMG_7975Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara út að borða og hér í Reykjavík eru ákaflega margir góðir veitingastaðir – gæðin eru í raun ótrúleg miðað við okkar litla land. Það hefur komið fyrir að mér hafi verið boðið að borða á veitingastöðum gegn því að ég fjalli um það hér á síðunni, en þeim boðum hef ég alltaf hafnað. Ég vil ekki mæla með neinu nema það komi beint frá mínu eigin hjarta. Að því sögðu þá langar mig að mæla með nýjum veitingastað sem við hjónin fórum á með vinahjónum okkar um daginn. Þetta er veitingastaðurinn Restó á Rauðarárstíg (þar sem Madonna var áður). Við snæddum þar fimm rétta dásamlega góða máltíð á sanngjörnu verði. Í eftirrétt var svokölluð „ananassúpa með kókos og myntu“. Þetta er eftirréttur sem mér hefði líklega aldrei dottið í hug að panta mér að fyrra bragði en maður minn hvað hann var góður! Svo var hægt að fá vínflöskur á eðlilegu verði (á sumum veitingastöðum eru vínflöskur á fáránlega uppsprengdu verði finnst mér), staðurinn er mjög hlýlegur og kósý og síðast en ekki síst góð þjónusta. Ég er alltaf á höttunum eftir því að heyra um góða veitingastaði og langaði því einfaldlega að deila þessu með ykkur! 🙂

Þó það sé langt síðan ég setti inn uppskrift hingað á síðuna hef ég síður en svo verið löt í eldhúsinu. Ég tók að mér það verkefni að búa til nokkrar uppskriftir með Dumle karamellum. Það var sko ekki leiðinlegt verkefni og fjölskylda mín, sem fórnaði sér í smökkunina af lífi og sál, var heldur ekkert ósátt! 🙂 Það er býsna skemmtilegt að lauma inn mjúkri súkkulaðihúðaðri karamellu inn í eftirrétti og kökur. Eftir að ofninn hafði verið stöðugt í gangi tvær helgar í röð þá varð þetta niðurstaðan.

dumle

Ég verð að segja að ég var býsna ánægð með allar þessar uppskriftir og hlakka til að deila þeim öllum með ykkur. Þó það sé nú bara mánudagur get ég ekki staðist að setja inn eina af uppskriftunum í dag! 🙂 IMG_7967Sú fyrsta eru súpereinfaldar og æðislegar góðar bananamuffins með Dumle. Ég prófaði bæði með venjulegu Dumle og dökku. Flestum í dómnefndinni minni fannst ljósu karamellurnar tóna betur með bananabragðinu en þær dökku fengu líka atkvæði, þær eru líka mjög góðar – með sterkara súkkulaðibragði.

IMG_7973

Bananamuffins með Dumle karamellum (15 stk)

  • 130 g smjör
  • 2 egg
  • 150 g sykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 200 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 3 þroskaðir bananar, stappaðir
  • 1 poki Dumle orginal eða Dumle Dark

Ofn hitaður í 200 gráður við undir- og yfirhita. Smjörið brætt og kælt dálítið. Egg og sykur hrært þar til blandan verður létt og ljós, þá er brædda smjörinu bætt út smátt og smátt. Vanillusykri, hveiti, lyftidufti og kanil blandað út í en þess gætt að hræra ekki lengi. Að lokum er stöppuðum banönum blandað út í deigið. Deiginu er skipt á milli 15 muffins-forma (fyllt um það bil 2/3) og einni Dumle karamellu þrýst létt ofan í deigið í hverju formi. Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 15 mínútur eða þar til kökurnar hafa tekið góðan lit. Best er að bera kökurnar fram volgar.

IMG_7991 IMG_8011