Mín kæra vinkona Brynja kom í örstutta heimsókn til Íslands frá Stokkhólmi og við náðum að hittast í nokkrar mínútur á hlaupum. Af sinni alkunnu hugulsemi hafði hún rogast með stóran pakka á milli landa sem hafði að geyma fertugsafmælisgjöf til mín! Í pakkanum leyndist spennandi sænsk köku og tertu uppskriftabók ásamt dásamlega fallegum kökudisk. Bókin heitir Lomelinos Tårtor en höfundurinn heldur úti flottu matarbloggi á bæði sænsku og ensku: http://www.callmecupcake.se/ Gjöf sem hitti sannarlega í mark og ég hlakka mikið til að vígja hvor tveggja! 🙂
Mango Chutney kjúklingaréttur
Þessi kjúklingaréttur er klassískur og til í mismunandi útgáfum. Ég geri yfirleitt eftirfarandi útgáfu en nota það grænmeti sem ég á hverju sinni. Það er líka hægt að nota t.d. papriku, púrrlauk og aðrar grænmetistegundir.
Hráefni:
- Kjúklingabringur
- Mango Chutney
- 1 dós kókosmjólk
- 1 peli rjómi
- Rauðlaukur
- Hvítlaukur
- Sveppir
- Gulrætur
- Brokkolí
Meðlæti:
Hrísgrjón eða kúskús
- Ristað kókosmjöl
- Sýrður rjómi
- Niðursneiddir bananar
Aðferð:
Rauðlaukur og hvítlaukur sneiddur smátt og steiktur á pönnu. Hvítlaukur þarf styttri steikingartíma en laukur. Það er því best að byrja á lauknum, bæta svo hvítlauknum út í, hafa háan hita og steikja í ca. hálfa mínútu. Eftir það brennur hvítlaukurinn auðveldlega. Ég tek svo laukinn og hvítlaukinn af pönnunni á meðan ég steiki grænmetið og kjúklinginn til þess að brenna ekki laukinn.
Því næst steiki ég niðursneidda sveppi og gulrætur (líka gott að nota rauða papriku) og bæti svo kjúklingi út í.
Krydda með salti (kryddjurtasalt), pipar, basiliku, óregano og „Best á allt“ (Pottagaldrar).
Nú bæti ég lauknum aftur út í, 1 dós kókosmjólk, 1 pela rjóma (eða matreiðslurjóma) ásamt Mango Chutney.
Leyfi réttinum að malla um stund og bæti við kryddi eftir þörfum. Nokkrum mínútum áður er rétturinn er borinn fram bæti ég við fersku brokkolí. Ég vil að brokkolíið haldist stökkt auk þess vil ég ekki malla öllu hollu vítamínin úr því, þess vegna bæti ég út undir lokin.
Með þessu ber ég fram hrísgrjón eða kúskús, ristað kókosmjöl (ristað snöggt á heitri pönnu, sýrðan rjóma og niðursneidda banana ásamt fersku salati.
Túlípanar
Túlípanar eru í uppáhaldi hjá mér. Tími túlípana er frá jólum fram í febrúar en þegar líður á vorið eru þeir oftast orðnir lélegir úr blómabúðum og standa illa þegar heim er komið. Þá hef ég brugðið á það ráð að taka inn túlípana úr garðinum hjá mér. Þeir eru fallegir, standa þráðbeinir og duga lengi! Annars eru nokkur ráð til að láta aðkeypta túlípana endast lengur. Í fyrsta lagi á að láta túlípana standa í vatninu í allavega 1-2 klukkutíma með umbúðunum á, það kemur í veg fyrir að þeir fara strax að hanga. Það á bara að vera lítið vatn í vasanum, þó þarf að fylgjast með því að það klárist aldrei. Vatnið á að vera ískallt, enn betra er að setja klaka út í. Á nóttunni er gott að setja túlípanana á kaldari stað, þá endast þeir mun lengur.
Sólskinskaka með eplum
Þegar við Elfar hófum búskap í janúar 1992 var ég 19 ára gömul. Það fyrsta sem ég keypti til heimilisins var bók til að skrifa uppskriftir í. Framalega í bókinni, sem er orðin ansi lúin í dag, er uppskrift af sólskinsköku með eplum. Samviskusamleg hef ég skráð að uppskriftin er skrifuð niður árið 1993 og kemur frá mömmu! 🙂 Þetta er einföld en góð eplaka. Ég hef breytt henni lítisháttar. Í uppskriftinni er eplunum velt upp úr sykri eingöngu. Ég velti þeim upp úr kanil og örlitlum sykri. Auk þess hef ég minnkað sykurmagnið dálítið í kökunni. Um daginn voru hér nokkuð mörg börn í húsinu eins og svo oft áður í sumarfríinu. Ég ákvað því að baka þessa köku fyrir kaffitímann og fékk með mér litla hjálparkokka í verkið!
Hráefni:
- 150 gr. smjör
- 3 egg
- 1.5 dl. sykur
- 2.5 dl. hveiti
- 1 tsk. lyftiduft.
- 3 græn epli, afhýdd og sneidd í báta, velt upp úr kanil og dálítlum sykri.
Aðferð:
Ofninn er stilltur á 180 gráður og kringlótt smelluform smurt. Smjör brætt og kælt dálítið. Sykur og egg þeytt létt og ljóst og smjöri hrært saman við. Hveiti og lyftidufti bætt út í og deiginu helt í kökuformið. Eplin eru afhýdd, kjarninn skorin úr og þau sneidd í báta. Þeim velt upp úr kanel og smá sykri og stungið ofan í deigið. Reyndar notuðum við aðferð sem hjálparkokkunum hugnaðist vel, settum bara allt í poka og hristum!
Kökuformið er frábærlega sniðugt, keypt í Duka fyrir nokkrum árum. Diskurinn þolir bæði ofn og frysti og formið hentar því vel fyrir kökur sem maður vill ekki þurfa að hvolfa til þess að ná þeim úr forminu, t.d. ostakökur. Smelluformið er bara losað og kakan borin beint fram á disknum sjálfum.
Kakan er bökuð í ca. 40 -50 mínútur og borin fram heit. Ekki er verra að bera fram með henni þeyttan rjóma eða ís á tyllidögum! Hluti af kökunni hjá okkur var eplalaus þar sem eitt barnanna vildi eplalausa eplaköku! 🙂
Kjúklingur með heimagerðu pestói í pönnukökum
Þetta er einn af fáum réttum sem er í uppáhaldi hjá öllum fjölskyldumeðlimum, þar með talin afkvæmin fjögur frá 7-24 ára en það er býsna óvenjulegt að þeim öllum líki sami rétturinn!
Hugmyndina fékk ég frá uppskrift í Gestgjafanum en hef breytt henni töluvert.
Hráefni:
- Kjúklingabringur (kryddaðar með „Best á allt“ frá Pottagöldrum).
- Tortillur
- Ferskur Mozzarella ostur
- Sveppir
- Rauðlaukur
- Rauð paprika
- Spínat
- Klettasalat (Ruccola)
- Basilika
- Steinselja
- Hvítlaukur
- Ólivuolía
- Furhnetur (eða kasjúhnetur)
- Salt og Pipar
Aðferð:
Rauðlaukur, sveppir og paprika skorin niður, krydduð með pipar og salti og steikt á pönnu eða grilluð. Ég er með sérstaka grillgrind fyrir grænmeti sem ég nota mikið í stað þess að steikja grænmeti á pönnu.
Kjúklingabringur kryddaðar með „Best á allt“ frá Pottagöldrum, uppáhalds kjúklingakryddinu mínu! En þetta er blanda af meðal annars salti, pipar, kryddjurtum og smá púðursykri sem ég held að geri gæfumuninn! Kjúklingurinn er grillaður en það má líka hita bringurnar í ofni. Ég grilla bringurnar á háum hita, í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Tek þær svo af grillinu rétt áður en þær eru tilbúnar, vef inn í álpappír og leyfi þeim að klára að eldast í eigin hita, þannig verða þær lungnamjúkar
Pestó útbúið, hráefni sett í matvinnsluvél. Ég nota oftast nær blöndu af ferskri basiliku, steinselju, spínati og klettasalati og prófa mig bara áfram hvaða magn ég nota af hverju. En fyrir 8 tortillur nota ég oftast 2/3 af spínatpoka, hálfan klettasalatpoka, nokkra steinseljukvisti og 2/3 af basiliku í boxi, 3-4 hvítlauksrif, 1 til 1 ½ dl. ólivuolíu, 4 msk. furuhnetur eða kasjúhnetur ásamt salti og pipar. Strangt til tekið á að vera ferskur Parmesan ostur í heimatilbúnu Pestói (ca. 4 msk fyrir þessa uppskrift) en ég sleppi honum oft fyrir þennan rétt og finnst það eiginlega bara betra.
Mozzarellaostur er skorinn niður í sneiðar auk þess sem kjúklingurinn er skorinn niður í sneiðar þegar hann hefur fengið að jafna sig í nokkrar mínútur eftir eldun. Það er líka hægt að nota venjulegan rifinn ost í stað Mozzarella, eitt barnanna minna til dæmis kann ekki gott að meta og vill ekki Mozzarella! 🙂
Þá er komið að því að útbúa pönnukökurnar. Pestói er smurt á hálfa Tortilla köku, kjúklingi raðað á pönnukökuna, því næst er Mozzarella osti raðað á kjúklinginn og að lokum sett grillað grænmeti yfir og pönnukökunni lokað.
Pönnukökurnar settar á ofnplötu og hitaðar í ofni við 180 gráður í ca. 7-8 mínútur eða þar til að osturinn er farin að bráðna og Tortilla kakan farin að taka smá lit. Það er líka hægt að grilla pönnukökuna á útigrilli, nokkrar mínútur á hvorri hlið en ég er farin að nota auðveldu leiðina og skelli þeim bara öllum í ofninn!
Borið fram strax með fersku salati.




















