Ég held að ég geti með fullvissu sagt að ostakaka er uppáhalds eftirrétturinn minn. Ég er ekki ein um það. Hér á heimilinu hefur nefnilega ríkt ostakökuæði, allir í fjölskyldunni elska ostakökur! Við höfum aldeilis gert vel við okkur undanfarið því ég hef bakað þrjár ostakökur á jafnmörgum vikum. Meira að segja elsta dóttirinn, sem er að jafnaði ekki hrifin af kökum, finnst ostakökur æðislegar. Fyrstu tvær ostakökurnar sem ég bakaði voru okkar uppáhalds, bökuð ostakaka með hindberjum, algjört sælgæti. Núna síðast ákvað ég hins vegar að gera smá tilraun, nota eftirlætishráefnin mín, mangó og hvítt súkkulaði, en hafa ostakökuna ekki bakaða heldur bara kælda með matarlími. Þessi ostakaka sló ekki síður í gegn hjá fjölskyldunni og það hefur verið tilhlökkunarefni okkar Elfars að gæða okkur á einni sneið á kvöldin þessa vikuna. Þessi ostakaka verður nefnilega betri með hverjum deginum og ég held svei mér þá að bitinn í kvöld, á fjórða degi, hafi verið bestur! Ég mæli sannarlega með þessari köku! 🙂
Uppskrift:
Botn:
- 250 gr Digestive kex
- 100 gr smjör
- 2 tsk kanill
Fylling:
- 2 dl rjómi
- 600 gr Philadelphia rjómaostur
- 1 dós sýrður rjómi
- 2 dl flórsykur
- 2 tsk vanillusykur
- 100 g hvítt súkkulaði
- 5 blöð matarlím matarlím
- 1 límóna (lime) – safi og börkur
- 1 msk vatn
Ofan á:
- 2 blöð matarlím
- 250 g mangó (frosið eða ferskt)
- 1 límóna (lime)
- 1 msk vatn
Aðferð:
Botn: Smjör brætt og kex mulið í matvinnsluvél eða mixer og því blandað saman við smjörið og kanil. Sett í bökunarform með lausum botni og blöndunni þrýst i í botninn og aðeins upp í hliðar á forminu. Botnin er settur í kæli á meðan fyllingin er búin til.
Fylling: Rjómi þeyttur og lagður til hliðar. 5 matarlímsplötur eru settar í kalt vatn í minnst 5 mínútur, þær eiga að verða mjúkar og þykkar. Rjómaosturinn, sýrði rjóminn, flórsykur og vanillusykur er hrært saman í hrærivél. Hvíta súkkulaðið er saxað niður og brætt varlega í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði, því er svo bætt út í rjómaosblönduna. Safinn úr límónu ásamt 1 msk af vatni er sett í pott og hitað. Matarlímsblöðin eru tekin úr vökvanum, vatnið kreist úr þeim og þau sett út í heitan vökvann. Hrært þar til matarlímið hefur bráðnað saman við vökvann. Þá er matarlímsblöndunni hellt út í rjómaostablönduna. Því næst er þeytta rjómanum bætt út í og hrært í stutta stund. Börkurinn af límónunni er rifinn fínt (þess gætt að fara ekki ofan í hvíta lagið undir því græna) og honum bætt út að síðustu. Blöndunni er hellt ofan á botninn og kakan kæld í minnst 4 klukkustundir áður en mangóið er sett ofan á.
Ofan á: þegar kakan hefur stífnað nægilega eru 2 matarlímsblöð sett í kalt vatn í minnst 5 mínútur. Mangóið er afþýtt, ef það er frosið, og svo maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Safinn úr límónunni ásamt vatninu er sett i pott og hitað. Matarlímsblöðin eru tekin úr vökvanum, vatnið kreist úr þeim og þau sett út í heitan vökvann. Hrært þar til matarlímið hefur bráðnað saman við vökvann. Þá er matarlímsblöndunni hellt út í maukaða mangóið og því svo dreift yfir ostakökuna, hún er síðan kæld. Ostakakan er best daginn eftir að hún hefur verið gerð og batnar bara með hverjum deginum.