Þessi pottréttur er frábærlega bragðgóður og mikið lostæti. Það er einstaklega einfalt að búa hann til, allt fer á pönnuna og hér um bil eldar sig sjálft. Þetta er tilvalinn laugardagsréttur. Hvítvínsflaskan opnuð fyrir matargerðina og svo er hægt að njóta þess að dreypa á restinni af víninu með matnum. 🙂
Rjómalagaður kjúklingapottréttur f. 3-4
- 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry, skornar í bita
- ólífuolía til steikingar
- 250 g sveppir, skornir í sneiðar
- 1 lítill rauðlaukur, saxaður smátt
- 1 dós niðursoðnir tómatar með basiliku og oregano frá Hunts (411 g)
- 2 msk fljótandi kjúklingakraftur frá Oscars
- 1½ dl hvítvín (eða mysa)
- 3 dl rjómi eða matreiðslurjómi
- 1 tsk þurrkuð basilika
- 1 tsk oregano
- 1 tsk paprikukrydd
- salt & pipar
Kjúklingurinn kryddaður með salti og pipar. Laukurinn er steiktur á pönnu þar til hann er mjúkur. Því næst er kjúklingi og sveppum bætt út á pönnuna og steikt þar til hvort tveggja hefur tekið góðan lit. Þá er tómötunum, kjúklingakraftinum, hvítvíninu, rjómanum og kryddunum bætt út í og látið malla í ca. 10-15 mínútum. Smakkað til og kryddað meira við þörfum. Borið fram með góðu salati og hrísgrjónum, gott er að blanda Tilda basmati hrísgrjónunum við Tilda vilt hrísgrjón.