Þó ég elski osta mikið þá sá ég í hendi mér að það væri kannski ekki gæfulegt að nota Gullost sem álegg í öll mál! Þetta túnfisksalat er sjúklega gott svo ekki sé minnst á hversu hollt það er. Ég skipti Gullostinum út með ánægju fyrir það – allavega í annað hvert mál! 🙂 Ég kaupi reglulega avókadó og bíð þolinmóð eftir því að þau verði passlega þroskuð. Hér skrifaði ég um hvernig hægt væri að flýta fyrir þroska þeirra (notabene þá er þetta kjúklingasalat æði!). Þegar avókadóið er passlega þroskað hræri ég í þetta salat, það tekur bara nokkrar mínútur, set það í vel þétt box inn í ísskáp og þá er alltaf hægt að næla sér í gómsætt álegg á brauðið eða hrökkbrauðið. Reyndar þá er „alltaf“ orðum aukið því salatið er ofurvinsælt að taka með sér í skóla og vinnu og stoppar stutt við á heimilinu! Best finnst mér að nota það á Minna mál hrökkbrauðið með osti og graskerafræjum
eða Finn Crisp hrökkbrauðið sem er miklu uppáhaldi hjá okkur Ósk.
- 1 dós túnfiskur í vatni
- 1-2 lárperur (avókadó)
- 1/2 lítill rauðlaukur
- 1 stór dós kotasæla
- ferskt kóríander
- salt og pipar
- 1/2 rautt chili (má sleppa)
Avókadó er skorið í fremur litla bita. Rauðlaukur saxaður mjög smátt. Kóríander saxað fremur smátt. Ef notaður er chili er hann fræhreinsaður og saxaður mjög smátt. Öllu blandað vel saman. Gott að setja á gróft hrökkbrauð með t.d. tómatsneiðum og/eða káli eða bara eitt og sér. Salatið geymist í boxi með vel þéttu loki í minnst 2-3 daga – það hefur eiginlega aldrei reynt á það hjá mér! 🙂