Síðastliðinn sunnudag komu foreldrar mínir í mat ásamt ömmu, afa og Ingu frænku. Ég gerði hægeldaða lambalærið. Klukkan ellefu um morguninn setti ég lærið inn í ofn ásamt kartöflum og grænmeti. Reyndar útbjó ég tvö læri, setti í sitt hvorn steikarpottinn og mamma stakk öðrum þeirra í ofninn hjá sér. Þetta er svo ótrúlega þægilegur matur til að bjóða gestum upp á. Lærið og meðlætið mallar bara í ofninum allan daginn og svo þarf ekkert að gera nema sósu og salat rétt áður en gestirnir koma, gæti hvorki verið einfaldra né betra.
En það sem ég ætlaði að færa hér inn í dag er uppskriftin að eftirréttinum sem ég bauð upp á þetta kvöld, Súkkulaðipannacotta með karamellu. Í honum eru einstaklega fá hráefni og hann tekur bara nokkrar mínútur að útbúa. Pannacotta er upprunninn frá Ítalíu og er nokkurskonar búðingur en pannacotta þýðir ,,soðinn rjómi” á ítölsku. Það er gott að bragðbæta pannacotta með til dæmis vanillu, súkkulaði, kaffi eða öðru. Þessi útgáfa er í miklu uppáhaldi hjá mér, Pannacotta með hvítu súkkulaði og ástaraldini.
Hér gerði ég hindberjapannacotta LKL-style, þ.e. með sætuefni í stað sykurs auk hindberjasósu.
Að þessu sinni notaði ég Pipp súkkulaði með karamellu til þess að bragðbæta pannacotta. Ummæli gestanna lýsa best hvernig til tókst. Amma sagði einfaldlega að þetta væri besti eftirréttur sem hún hefði bragðað! Þá óskaði hún eftir því að ég hefði þennan rétt á aðfangadagskvöld. Ég hélt að amma væri nú bara að grínast því síðan ég man eftir mér hefur alltaf verið heimatilbúinn vanilluís hjá okkur á aðfangadagskvöldi! Amma var hins vegar ekkert að grínast og sagðist vilja fá þennan eftirrétt aftur sem fyrst. Allir voru sammála um að eftirrétturinn væri frábærlega góður en nokkrir lögðu fram lágvær mótmæli um að það ætti að breyta þessari áratugalöngu jólahefð. Þá var því slegið á föstu að þessi desert yrði í boði á gamlárskvöld. Amma hafði bara eina ósk um breytingu, að ég myndi ekki skammta svona nánasarlega á diskana næst, skammtinn mætti alveg tvöfalda! 🙂 Jóhanna Inga var þessu örugglega sammála því í lok máltíðar gekk hún á milli skála og náði sér í þær litlu dreggjar sem eftir voru. Sem sagt, einstaklega einfaldur en fyrst og fremst feykigóður eftirréttur. Stórfjölskyldan mælir með þessu, þá sér í lagi amma! 🙂
Uppskrift f. 4 (tvöfaldið ef þið bjóðið ömmu í mat! 😉 )
- 4 dl rjómi
- 1/2 dl sykur
- 100 g Pipp súkkulaði með karamellu
- 2 blöð matarlím
- Skreytt með þeyttum rjóma og berjum
Matarlímsblöðin eru lögð í kalt vatn. Rjómi og sykur sett í pott og látið ná suðu. Þá er potturinn tekinn af hellunni, súkkulaðið brotið í litla bita og þeim bætt út í pottinn. Hrært þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Því næst er vökvinn kreistur úr matarlímsblöðunum, þeim bætt út í pottinn og hrært þar til þau hafa bráðnað saman við blönduna. Hellt í skálar eða bolla og kælt í ísskáp í minnst 2 klukkutíma. Áður en rétturinn er borinn fram er hann skreyttur með þeyttum rjóma og berjum. Einnig er gott að bera fram þeyttan rjóma aukalega með réttinum.