Ég get varla beðið eftir því að setja inn uppskriftina af þessari tertu hingað á síðuna! Ég held að flestar fjölskyldur eigi í handraðanum uppskrift að tertu eða köku sem hefur fylgt þeim lengi og er bökuð við hátíðleg tækifæri í fjölskyldunni. Árið 1971 fékk mamma þessa uppskrift frá bekkjarsystur sinni í þáverandi Fósturskóla Íslands. Þessi terta hefur verið bökuð við ófáar skírnir, fermingar og afmæli í fjölskyldunni okkar í meira en 40 ár og er alltaf jafn vinsæl. Það er langt síðan ég hef bakað tertuna en ég hafði hana í afmælinu hennar Jóhönnu Ingu um daginn og þá rifjaðist upp fyrir mér hversu dásamlega góð mér þykir hún! Ég skreyti tertuna alltaf eins og mamma gerði ávallt – með rjóma úr rjómasprautu og niðursoðnum perum. Mér finnst það alveg ómissandi! 🙂 Þessa tertu verðið þið bara að prófa!
Uppskrift, botnar:
- 4 egg
- 200 g. sykur
- 1 dl hveiti
- 2 msk kakó
- 1 msk kartöflumjöl
- 1 tsk lyftiduft
Ofn hitaður í 180 gráður við blástur. Egg og sykur þeytt saman þar til blandan verður létt og ljós. Þá er þurrefnunum blandað varlega saman við með sleikju. Tvö smelluform (24 cm) smurð að innan. Deiginu er skipt á milli formanna tveggja og bakað við 180 gráður í ca. 20-25 mínútur eða þar til kantarnir á botnunum eru farnir að losna aðeins frá formunum. Botnarnir eru látnir kólna alveg áður en bananakremið er sett á milli botnanna.
Bananakrem:
- 100 g. smjör (mjúkt)
- 70 g. flórsykur
- 4 bananar, stappaðir
Smjör og flórsykur er þeytt saman þar til blandan verður létt. Þá er stöppuðum banönum bætt út í. Gott er að kæla kremið dálítið áður en það er sett á milli botnanna.
Súkkulaðikrem ofan á:
- 100 g. smjör (mjúkt)
- 100 g. flórsykur
- 120 g. suðusúkkulaði
- 1 egg
- 1 tsk. vanillusykur
Til skreytingar:
- þeyttur rjómi
- niðursoðnar perur
Smjöri, flórsykri og egg þeytt saman. Súkkulaðið er brætt og kælt aðeins áður en því er hellt saman við blönduna. Kreminu er smurt ofan á tertuna og á hliðarnar. Það er fallegt að skreyta tertuna með þeyttum rjóma og niðursoðnum perum.
Var hún ekki kölluð peruterta þessi? Ofsalega góð.
Þessi kaka er einmitt mjög vinsæl í okkar fjölskyldu og var uppáhalds kakan mín þegar ég var lítil. Ég var samt aldrei nógu sátt við bananakremið á milli og það tók mig ansi margar tilraunir að mastera að gera það eins og í bakaríunum. Annars alltaf gaman að skoða uppskriftir hjá þér, ég er dyggur lesandi!:)
sæl. ert þú þá tilbúin að gefa mér/ okkur uppskrifita af kreminu þínu ?
Þessa tertu er ég búin að baka í áratugi og það þykir ekki almennilegt boð nema að hún sé méð á borðinu.
Ohhh þarna er hún komin uppáhalds tertan mín sem mamma bakaði alltaf þegar ég var lítil.
Þessa tertu bakaði mamma mín líka svona spari. Þessi uppskrift er í gömlum bæklingi sem heitir “ SÉRRÉTTIR 7 “ eftir Steinunni Sveinsdóttur, í honum heitir tertan Súkkulaði og bananaterta, það eru líka fleiri flottar tertur í bæklingnum eins og Ananasterta.
Bananatertan mín!! Búin að baka han í meira en 30 ár og alltaf jafn vinsæl 🙂
En hvað þetta er skemmtilegt… þessi hefur greinilega verið hluti af barnæsku fleiri en bara minni.. það er ekkert afmæli án perukökunnar góðu.. 🙂
Þetta er Peruterta og hún er mjög vinsæl í minni fjölskildu.
já þarna er gamall kunningi á ferð set nú bara gott krem á milli bananakremið náði ekki vinsældum en hef það samt stundum
Þessa bakaði ég oft á árum áður,,,svo var sonur minn að rukka mig um hana í sumar,,þá var ég bara búin að gleyma henni , mörg ár síðan ég hef bakað hana.. Ég lofaði að baka hana næst þegar hann kemur í heimsókn..
Langt síðan ég bakaði þessa. Skreytingin þín er flottari en var í bæklingnum.
Þessa uppskrift fékk ég hjá henni mömmu minni þegar ég hóf minn búskap, elskaði þessa köku sem krakki en hef ekki bakað hana í mörg ár, verð með veislu hjá mér á morgun og er að hugsa um að skella í eina svona 🙂
Algjör nostalgía þegar ég sá myndina, þessi tertu bakaði móðir mín mjöög oft hér á árum áður og hún var alltaf vinsæl, ég bakaði hana líka þegar krakkarnir voru yngri en hef ekki bakað hana í mörg ár, fæ vatn í munninn 🙂 verð að baka hana við tækifæri
HÆGT AÐ FÁ SÉR SNEIÐ Á kAFFI kRÚS Á SELFOSSI,alveg eins,fór eitt sinn í pásu í sumar.og einnig kakó með rjóma.namm.
Æðislega girnileg en þetta er ekki Perutertan sem ég ólst upp við en lítur alveg eins út og örugglega æði 🙂
Mjög ljufeng terta en eg breytti kreminu a milli, eg stappa banana og nokkrar matskeiðar af þeyttum rjoma saman við og sleppa florsykrinum
þetta er allt önnur kaka.
mamma gerði alltaf þessa köku en hún notaði brúna kremið á milli svo perur botnin ofan á og svo brúna kremið yfir allt skreytti svo með rjóma og enn meiri perum elska þessa köku er buin að vera í mínu lífi í 46 ár 🙂
Þessa er ég búin að baka allan minn búskap og var áður hjá mömmu en inní hana hafði ég þeyttan rjóma mað stöppuðum banana útí, verð að baka þessa fljótlega🎂
Skilur sig kremið alltaf hvað geri ég vitlaust