Ég finn pressuna magnast vegna meistararitgerðarinnar minnar! Það gengur svo sem ágætlega að skrifa en afar hægt. Elfar var að vinna alla helgina en ég náði samt að vinna í ritgerðinni fyrripartinn í gær. Seinni partinn fór ég með Jóhönnu og vinkonu hennar í Krakkahöllina. Ég ætlaði að vera voða sniðug, nýta tímann og setja saman vikumatseðil á meðan ég beið á eftir þeim. Hins vegar kom í ljós að Krakkahöllin býður ekki upp á netsamband. Ég fór því í Bónus fremur illa undirbúin en var þó með óljósar hugmyndir um hina og þessa rétti sem ég keypti í fyrir vikuna. Mér finnst reyndar gaman að reyna að elda úr því hráefni sem ég á til, það verður því skemmtileg áskorun að setja saman rétti og spinna úr því sem ég keypti í gær. Ég er búin að hugsa lengi um að búa til einhvers konar rétt úr Satay hnetusósu. Ég hef skoðað á netinu uppskriftir af slíkri sósu en í Bónus rakst ég á nýja tilbúna gerð Satay sósu sem ég ákvað að prófa. Það átti bara að bæta við vatni en ég ákvað að bæta frekar við kókosmjólk auk vorlauks, hvítlauks, engifers, spínats og papriku. Þetta var afar fljótlegur réttur og góður.
- 6-800 gr kjúklingalundir eða kjúklingabringur, skornar í litla bita
- góður bútur af engifer, saxað smátt
- 2 hvítlauksrif, söxuð smátt
- 1 búnt vorlaukur, saxaður smátt
- 1 rauð paprika, skorin í þunnar strimla
- 2 pakkar Satay sósa (sjá mynd), líka hægt að nota satay sósu í krukku
- 2 dl kókosmjólk (það er hægt að nota alla dósina en þá verður hnetusósan bragðminni og meira kókosbragð)
- 1/3 poki spínat
- 250 gr eggjanúðlur
Eggjanúðlurnar soðnar eftir leiðbeiningum (passa þarf að ofsjóða þær alls ekki) Vorlaukur, hvítlaukur og engifer saxað smátt og steikt upp úr olíu á pönnu í ca. 1 mínútu án þess að það brenni. Blandan er svo veidd upp úr og lögð til hliðar. Kjúklingur steiktur á pönnunni þar til að hann hefur náð góðum lit og paprikunni bætt við. Því næst er laukblöndunni bætt aftur út í (ef pannan er lítil gæti verið gott að færa allt yfir í pott) Sósunni hellt út á ásamt kókosmjólkinni og látið malla í ca. 5 mínútur. Í lokin er spínatinu bætt út í. Kjúklingasósunni er svo blandað við eggjanúðlurnar og borið strax fram (ég stráði dálítið af söxuðum pistasíuhnetum yfir réttinn)