- 100 gr. smjör
- 900 gr. hveiti
- 60 gr. sykur
- 1/2 tsk. salt
- 1/2 lítri mjólk
- 1 bréf þurrger (ca. 12 g)
- 1 egg til að pensla hornin með (líka hægt að nota mjólk)
Fylling:
- 2 pakkar skinkumyrja.
Aðferð:
Smjörið brætt og mjólkin sett saman við, blandan á að vera um 35°c heit. Blandið geri og sykri saman við, pískið létt saman. Látið standa í 10 mín. Hveiti bætt við og allt hnoðað saman þar til deigið er slétt og samfellt. Látið deigið lyfta sér undir rökum klút í 45 mínútur. Deiginu skipt upp í nokkar minni einingar. Hver eining er flatt út í hring, smurð með skinkumyrju, skorin í geira (gott að nota pizzuhníf) og hverjum geira rúllað upp frá breiðari endanum. Hornunum raðað á bökunarplötu og þau pensluð með eggi Það er gott að leyfa hornunum að lyfta sér í 15-20 mínútur áður en þau eru sett í ofninn. Hornin eru bökuð við 225 gráður í 8-10 mínútur eða þar til þau eru orðin gullinbrún.

