Karríkjúklingur með sætum kartöflum


Við erum búin að borða þennan ljúffenga rétt tvö kvöld í röð! Ég eldaði mjög stóran skammt í fyrrakvöld og í gærkvöldi fengum við okkur afganginn snemma og drifum okkur svo í kvöldsund með krakkana. Jemundur minn hvað það var notalegt! Ég er búin að sitja í svo margar vikur og skrifa ritgerðina mína að ég endaði á því að fá þursabit í bakið. Ég hef aldrei fengið svona í bakið áður, það er ákaflega óþægilegt og algjört vesen þegar maður þarf að sitja við tölvu allan daginn. Ég var svo glöð að uppgötva að Árbæjarlaugin er opin til klukkan 22 núna, en þeir voru búnir að draga svo úr opnunartímanum fyrr í ár. Ekki nóg með það heldur var kominn glænýr heitur pottur með allskonar nuddtækjum! Ég kom heim stálslegin og allt önnur í bakinu og krökkunum fannst dásamlegt að fara í kvöldsund. Við ætlum að reyna að gera þetta reglulega.

En að uppskrift dagsins! Mér finnst kjúklingur ákaflega góður, eins er ég afar hrifin af sætum kartöflum og mér finnst karrí mjög gott. Þegar ég fann uppskriftina af þessum rétti var ég viss um að mér myndi líka hann vel. Í réttinum eru fá hráefni en öll þessi ofangreindu sem mér finnst svo góð, hann er mjög einfaldur að matreiða og dásamlega litríkur. Það kom á daginn að mér líkar ekki bara rétturinn, ég elska hann! 🙂 Ég get varla beðið eftir því að búa hann til aftur og er strax farin að hugleiða hverjum ég á að bjóða í mat í þennan rétt! Ég var ekki ein um að falla fyrir þessum rétti, öllum í fjölskyldunni fannst hann ofsalega góður, meira að segja yngstu krökkunum. Ég notaði,,mild curry paste“ sem ég fann í Þinni verslun, ég fann ekkert slíkt á hraðferð minni í gegnum Bónus. Rétturinn var því mjög mildur en einkar bragðgóður. Ég átti ekki nóg af kókosmjólk en hins vegar átti ég rjóma þannig að ég setti ca. 1/3 rjóma í stað kókosmjólkur en það er líka hægt að nota bara kókosmjólk. Þessi réttur minnir dálítið á Massaman curry réttinn sem byggist einmitt upp á kartöflum, kjöti, curry paste, kókosmjólk og fleira hráefni. Sá réttur er ofsalega góður en mér finnst þessi eiginlega betri út af sætu kartöflunum og hann er klárlega mildari og einfaldari að útbúa.

Uppskrift:
  • 800 gr sætar kartöflur
  • 2 msk olía
  • salt og pipar
  • 2-3 msk curry paste (grænt, milt, sterkt – eftir smekk)
  • 1 msk olía
  • 700 gr kjúklingabringur eða lundir
  • 1 dl kröftugt kjúklingasoð (kjúklingakraftur + sjóðandi vatn)
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 límóna (lime), safinn + fínrifinn börkur
  • kóríander, grófsaxað

Bakarofn hitaður í 220 gráður. Sætar kartöflur skrældar, skornar í bita og dreift í ofnskúffu. Olíu, salt og pipar bætt við og hitað við 220 gráður í ca. 20 mínútur. Á meðan er kjúklingurinn skorinn í bita. Olíunni (1 msk) hellt á pönnu og curry paste bætt út á pönnuna. Látið malla í ca. 2 mínútur, hrært í á meðan. Kjúklingabitunum bætt út á pönnuna og steikt þar til þeir hafa náð lit á öllum hliðum. Þá er kókosmjólk, kjúklingasoði, safa og berki frá límónunni bætt út og látið malla í ca. 10 mínútur. Þegar sætu kartöflurnar eru hér um bil eldaðar í gegn er þeim bætt út í kjúklingaréttinn (allt fært í stóran pott ef pannan er of lítil) og leyft að malla með kjúklingnum í nokkrar mínútur í viðbót. Borið fram með hrísgrjónum og fersku kóríander stráð yfir réttinn.

30 hugrenningar um “Karríkjúklingur með sætum kartöflum

  1. úff, ekki gott að heyra með bakið… þessar ritgerðir fara ekki vel með mann.. 😉 … það verður yndislegt þegar þetta er búið. Rétturinn lítur annars voða vel út.. 🙂

  2. Var með foreldra og börn í mat,það var jummað og nammað ..Pabbi og synirnir kunnu sér ekki magamál og urðu full saddir 🙂 Nú ég bauð svo uppá bounty kúlur með kaffinu ásamt öðru..Algjör nammi matur og kökur hjá þér takk takk:)

  3. Girnó…..en hvað heldurðu að uppskriftin hjá þér sé fyrir ca. marga?

  4. Bjó til þennan rétt í gær sem sló í gegn hjá öllum á heimilinu, synir mínir voru mest svekktir yfir því að það væri ekki til afgangur til að borða í kvöld:) Mér þótti best hvað hann er einfaldur og fljótlegur:)

    • Gaman að heyra það Unnur Helga! Mér finnst einmitt líkasvo þægilegt hvað rétturinn er fljótlegur en samt svona góður! Takk fyrir kveðjuna! 🙂

  5. Er að prófa hann núna og lyktin er að æra mig. Eða garnagaulið 🙂
    Hlakka til að smakka.

    P.s. Æðislegt blogg, kíki hér inn á hverjum degi

  6. Alveg frábær þessi – eins og reyndar allt annað sem ég hef prófað af síðunni!

  7. Bakvísun: Bruschetta með mozzarella, tómötum og basiliku | Eldhússögur

  8. Þetta ætla ég að prófa í næsta saumaklúbb er uppskriftin fyrir 6 eða dugar hún fyrir 8? kv Dagný og Gleðilega páska til ykkur fjölskyldunnar, hjá okkur er það öfugt við ykkur Hringur er loks að komast í 2 daga frí í dag, við erum aðeins óvanar að hafa hann ekki heima þannig að so far hafa þetta verið svoldið skrýtnir páskar

    • Æ, Dagný, ég er með krónískar áhyggjur yfir því að vera ekki með nægan mat! 🙂 Ég myndi pottþétt tvöfalda þessa uppskrift fyrir átta manns. Ekki samt tvöfalda alveg allt, tvöfaldaðu kjúklinginn, 800 g af sætum kartöflum eru alveg tvær mjög stórar, það ætti að duga. Sósuna gætir þú tvöfaldað líka. Gleðilega páska til ykkar! 🙂

  9. Prófaði þennan rétt og get mælt með honum. Þetta var bæði auðvelt og bragðgott 🙂

  10. Gerði þennan í kvöld, og hann sló algjörlega í gegn. Þetta er réttur sem verður pottþétt gerður aftur. Takk fyrir mig 🙂

  11. Blessuð og sæl.
    Hvar kaupir þú Mild curry paste? Er búin að fara í allar búðir. Er búin að kaupa allt í réttinn f saumó annað kvöld 😞

    Kær kveðja
    Birna Garðarsd.
    Geislafræðingur

    • Sæl Birna mín!

      Kauptu bara rautt (aðeins sterkara) eða gult „curry paste“. Byrjaðu á því að nota um 1 msk. Þú getur svo bætt við meira í lokin ef þér finnst sósan of bragðlítil. Ef þér finnst sósan of sterk þá er alltaf hægt að bæta við t.d. sýrðum rjóma, rjóma eða meiri kókosmjólk.

Skildu eftir svar við Eldhússögur Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.