Guacamole er í miklu uppáhaldi hér á heimilinu. Ég kaupi aldrei þetta tilbúna í krukkum, það er bara alls ekki gott! Enda minnir mig að það standi í innhaldslýsingu að í krukkunni sé 1% avókadó! Yngstu krökkunum finnst reyndar best þegar ég stappa saman fersku avókadó og blanda við tilbúna guacamole kryddblöndu. En okkur hinum finnst þessi uppskrift best. Það er hægt að nota hana með meiru en bara tortillas vefjum eða tortilla flögum. Það getur verið gott að bera fram guacamole með grilluðum mat, hamborgurum og ekki síst með þessum rétti. Eins og alltaf með avókadó þá er mikilvægt að það sé orðið rétt þroskað. Til að hraða fyrir þroskanum er hægt að setja avókadó í lokaðan bréfpoka með eplum og/eða banönum sem gefa frá sér etýl gas sem hraðar fyrir þroskanum. Það er misjafn smekkur fólks hversu gróft það vill hafa guacamole maukið. Ég vil hafa bita í því en það er líka hægt að mauka það alveg saman fyrir þá sem vilja. Hér að neðan gef ég upp hlutföll í uppskriftinni en það er mikilvægt að smakka maukið til. Til dæmis geta chili-aldin verið misjafnlega bragðsterk og gæti þurft að minnka eða auka magnið af þeim sem og af öðrum hráefnum.
Uppskrift:
- 2 vel þroskuð avókadó, skorin í litla bita
- 2 stórir tómatar, skornir mjög smátt
- 1-2 hvítlauksrif, söxuð mjög smátt (má sleppa)
- 1/2 rauðlaukur, saxaður smátt
- 1-2 fersk rauð chili, kjarnhreinsuð og söxuð smátt
- safi úr einni límónu (lime)
- 1-2 búnt ferskt kóríander, saxað smátt
- 1/2 tsk salt
Blandið saman öllum hráefnunum og setjið í skál, lokið skálinni mjög þétt með plastfilmu og geymið í ísskáp í minnst korter áður en hún er borin fram. Guacamole geymist illa og ætti því að vera borið fram strax.
Bakvísun: Kjúklingavefjur með mangó, beikoni og avókadósósu | Eldhússögur
Bakvísun: Tacobaka | Eldhússögur
Bakvísun: Mexíkósk tortilluterta | Eldhússögur
Bakvísun: Mexíkóskt burritogratín | Eldhússögur
Bakvísun: Chili-hakk í salatvefju | Eldhússögur
Bakvísun: Ofnbakað nachos með cheddarosti | Eldhússögur
Fyrir hvað marga er þessi sósuuppskrift ?
Áttu uppskrift af ferskri salsasósu sem er ekki með kotasælu ?
Kv.Margrét
ps frábær síða með góðum mat 🙂
Sæl Margrét
Það er svo lítið erfitt að segja hvað þetta er fyrir marga því það fer eftir því hvað sósan er notuð í. Þessa gerði ég sem ídýfu með snakki í ca 15 manna partýi. Ef ég geri svona sósu til þess að nota á burritos til dæmis þá myndi ég segja að þessi uppskrift dygði fyrir ca. 8 en það fer þó eftir því hversu mikið hver og einn fær sér! 🙂
Varðandi ferska salsasósu án kotasælu þá er ég með eina til dæmis hér:
https://eldhussogur.com/2012/11/30/mexikoskur-hamborgari-med-tomatsalsa-og-guacamole/
og hér: https://eldhussogur.com/2013/01/29/fiski-tacos-gwyneth-paltrow/
Bakvísun: Mexíkósk nautahakksrúlla | Eldhússögur
Bakvísun: Mexókóskur kjúklingaréttur | Eldhússögur
Bakvísun: Mexíkóskur kjúklingaréttur | Eldhússögur
Bakvísun: OfnbakaA� nachos meA� cheddarosti | Hun.is