Hún Ragga vinkona mín býr í Bandaríkjunum er listakokkur og benti mér á eina góða uppskrift úr matreiðslubókinni hennar Gwyneth Paltrow. Ég er búin að skoða þessa uppskrift í nokkra mánuði án þess að þora einhvern veginn að prófa. Ég tók mig svo taki og reyndi að sálfræðigreina hvað stoppaði mig að elda þessa máltíð sem að vinkonur mínar Ragga og Gwynna vippa fram úr erminni reglulega. Ég uppgötvaði að það væri líklega tvennt, annars vegar var það hráefni sem ég þekkti ekki og sá fram á að þurfa að eltast við. Hins vegar var það djúpsteikingin. Ég hef afar sjaldan djúpsteikt mat og set það einhvern veginn fyrir mig.
Tvennt fann ég ekki fyrir réttinn. Það voru korn-tortillur, þær eru víst rosa góðar fyrir þennan rétt, veit kannski einhver hvar þær fást? Ég notaði hveiti-tortillur í staðinn. Hins vegar var það chipotle í adobo sósu. Chipotle er reyktur jalapeño og adobo sósa er marinering gerð úr m.a. papriku, oregano og hvítlauk. Ég fann þetta ekki í Kosti en hins vegar fann ég Chipotle salsa sem ég notaði í staðinn. Ekki láta stoppa ykkur að það þurfi að búa til margt fyrir þennan rétt, þetta er allt mjög einfalt og fljótlegt að útbúa, alveg satt! 🙂
Uppskrift fyrir 6:
- Djúpsteiktur fiskur
- Límónu krem (lime creme)
- Tómatsalsa (Pico de gallo)
- Guacamole
- „smokey“ sósa (Chipotle)
- salatblöð
- Korn-tortillur eða hveiti-tortillur
- gott að bera fram með þessu límónubáta (lime) til að kreista yfir allt
Tómatsalsa (Pico de gallo):
- 4-6 tómatar, saxaðir fremur smátt
- ½ rauðlaukur (lítill), saxaður mjög smátt
- 2 msk fínsaxaður kóríander
- Maldon salt
- Safi úr einni límónu (lime)
Öllu blandað saman í skál.
Guacamole:
- 1-2 þroskuð avacado
- 2 msk hvítur laukur, smátt saxaður
- 3 msk kóríander, smátt saxað
- Safi úr einni límónu (lime)
- maldon salt
Öllu blandað saman í skál
„Chipotle mayo“ (smokey sósa)
- 100 ml majónes (eða sýrður rjómi)
- 2 chipotle í adobo sósu
- 1 hvítlauksrif
- salt
Maukað saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Ég fann sem sagt ekki chipotle í adobo sósu og keypti chipotle salsa í Kosti. Við notuðum það beint upp úr krukkunni en ég blandaði það með sýrðum rjóma fyrir krakkana. Til þess að ná reykta bragðinu er líka hægt að nota bara venjulega barbeque sósu og blanda við majones/sýrðan rjóma – þá þarf ekki einu sinni að fara í Kost!
Límónukrem (lime creme)
- 150 ml majones (eða sýrður rjómi)
- 1.5 msk límónu safi (lime)
- salt
- Körfublómaolía eða hnetuolía fyrir djúpsteikingu (ég notaði corn oil frá Wesson úr Kosti)
- 250 ml hveiti
- 250 ml bjór
- maldon salt
- svartur pipar
- 700 gr þorskur (eða ýsa), skorinn í fingurlanga strimla.
Olía sett í djúpsteikingarpott eða í stóran pott, ca 5 cm (ég notaði reyndar meira) og hitað upp í 180 gráður. Það er líka hægt að prófa sig áfram með því að setja lítinn brauðbita ofan í olíuna. Ef hann verður gullinbrúnn fljótt er olían tilbúin. Á meðan olían hitnar er hveiti, bjór, dálítið af salti og pipar, pískað saman í stórri skál. Fiskinum dýpt ofan í deigið (ég notaði eldhústöng) og svo djúpsteiktur. Steiktur í 3-4 mínútur og honum snúið við á meðan. Steikt þangað til hann er orðinn fallega gylltur. Það þarf að passa að setja ekki of mikið í pottinn í einu! Fiskurinn er svo settur á grind með eldhúspappír undir og salti stráð yfir hann. Haldið áfram þar til allur fiskurinn er steiktur. Olían er látin kólna í pottinum, hún er svo sigtuð og sett aftur ofan í brúsann, hana er hægt að nota aftur.
Mjög girnilegt! Einn af mínum uppáhaldsréttum 🙂 En ég fékk Corn tortillas í Bónus Ögurhvarfi bara í síðustu viku og hef séð þær þar nokkuð oft..
Takk fyrir það Helena, ég var greinilega að leita langt yfir skammt í Kosti! 🙂
Glæsilegt hjá þér!!! Snilldar réttur fyrir matarboð…lítur vel út hjá þér;)
Takk Ragga mín og takk fyrir að benda mér á þessa uppskrift! …. og svo bíð ég eftir að þú byrjir að blogga, þú getur ekki lifað svona í gegnum mig! 😉
Hahaha…love jú…
mmm… lítur vel út.. frábært að vita með corn tortillurnar.. ég hef nefnilega verið að leita mikið af þeim og ekki fundið hvorki í Bónus né Krónunni.. spurning hvort það sé misjafnt eftir búðum.. en þá brunar maður bara í Ögurhvarfið.. 😉
Frábær réttur sem rann ljúflega niður hjá þeim matvöndu hér á heimilinu, breytti reyndar smá Chipotle mayo” (smokey sósa), en í hana setti ég umþað bil 1 dl. af barbeque sósu og svona 1/3 krukku af salsasósu (medium sterkri) ásamt sýrðum rjóma og majonesinu.
En hvað það var gaman að heyra Sigurlaug! Og einkar ánægjulegt að einhver leggi í þennan rétt strax – sjálf þurfti ég að mana mig upp í það! 🙂 En auðvitað var þetta svo ekkert flókið og æðislegur réttur. Takk fyrir góða kveðju!
Ég þarf að fá mér djúpsteikingarpott.
Ég notaði bara venjulegan pott Sveinn, það dugir alveg ef maður djúpsteikir sjaldan.
Já, auðvitað. Prófa það.
bestu tortilla kökur í bænum fást í Tyrknesku búðinni í Síðumúla!! þær eru reyndar ekki korn-tortillur!!
Einmitt Kristín, ég hef prófað tortilla kökurnar þaðan, þær eru mjög góðar!
Bakvísun: Djúpsteiktir kjúklingaleggir með súrsætri sósu og heimagerðu hrásalati | Eldhússögur
Bakvísun: Kjúklingapottréttur með karrí | Eldhússögur
Bakvísun: uppskriftir | ghafdis
Þessi réttur var eldaður á mínu heimili í kvöld. Fær 5 stjörnur. Hrikalega gott 🙂
En frábært að heyra Eva Björk. Það er einmitt langt síðan ég gerði þetta síðast, þarf að drífa mig í að búa þennan rétt til aftur, hann er í uppáhaldi!