Rabarbarabaka með jarðarberjum og hvítu súkkulaði


Rabarbarabaka með jarðaberjum og hvítum súkkulaðiMér finnst alltaf dálítið skrítið og óþægilegt að skrifa lýsingar við uppskriftirnar sem ég set hér inn á síðuna. Að skrifa um mat, sem ég hef sjálf útbúið, eitthvað í líkingu við „dásamlega gott og besti réttur í heimi“ hljómar eins og mann skorti alla hógværð og sé í meira lagi sjálfumglaður! 🙂 Ég er nefnilega meira týpan í ætt við ömmur þessa lands, þar sem þær standa við matarborðið og segja: „Æ, þetta er nú nauðaómerkilegt, vonandi getið þið borðað eitthvað af þessu“. Hins vegar finn ég það sjálf þegar ég skoða matarblogg að ég vil fá álit á uppskriftunum. Þegar ég sé uppskrift á bloggi sem ekkert er skrifað um, bara „hér kemur uppskrift að… “ þá dæmi ég ósjálfrátt uppskriftina ekkert sérstaka. Að þessu sögðu þá kynni ég til leiks langbesta rabarbarapæ sem ég hef smakkað hingað til! 😉 Ég ákvað sem sagt að gera rabarbaraböku en þar sem hún verður stundum heldur til súr lagði ég höfuðið í bleyti, hvað gæti vegið upp á móti því? Jarðarber voru augljóst svar, svo sæt og góð. Mér finnst hvítt súkkulaði passa einstaklega vel við heita berja- og ávaxtarétti og ákvað að prófa það með. Mylsnan ofan á er klassísk en svo ótrúlega góð. Ég bauð stórfjölskyldunni upp á þessa böku um síðustu helgi og hún var kláruð upp til agna í einni svipan með þeim orðum að þetta væri besta rabarbarabakan sem þau hefðu smakkað … það er sem sagt ekki bara ég sem er að slá um mig! 🙂

IMG_6242

Uppskrift: 

  • 5-600 g rabarbari, skorinn í bita
  • 250 g jarðarber, helst fersk, skorin í sneiðar
  • 2/3 dl sykur
  • 2 msk maísmjöl
  • 100 g Siríus hvítir súkkulaðidropar (þ.e 2/3 úr pokanum)
  • 2 dl Kornax hveiti
  • 1 dl púðursykur
  • 1 dl sykur
  • 2 dl haframjöl
  • 110 g smjör (kalt)

Ofn hitaður í 180 gráður við undir- og yfirhita. Rabarbara, jarðarberjum, maísmjöli og 3/4 dl sykri er blandað saman og sett í eldfast mót. Hvítu súkkulaðidropunum er því næst dreift yfir.

Hveiti, púðursykur, sykur, haframjöl og smjör er mulið saman í höndunum þar til að blandan minnir á haframjöl. Þá er blöndunni dreift yfir berin og rabarbarann. Bakað við 180 gráður í 35-40 mínútur eða þar til toppurinn er orðin gullinbrún og berjablandan farin að „bubbla“ upp um hliðar formsins. Borið fram heitt með þeyttum rjóma eða vanilluís.

IMG_6214IMG_6224

20 hugrenningar um “Rabarbarabaka með jarðarberjum og hvítu súkkulaði

  1. Fyrirgefðu, en hvað er kornax hveiti? Er hér í Portage MI. Hlakka til að hitta þig.

  2. Inga, Dröfn veit ekkert hvað Portage, MI er. Hún er á leið til Tíramísú í Amishfylki:)

  3. Hæ hæ – langaði að spyrjast fyrir um þegar maður notar frosinn rababara – á ég að afþýða hann áður en ég set í kökuna ??

  4. Sæl mín kæra, prófaði þessa í dag og bauð Kaliforníubúunum upp á ásamt rababarasírópi, sannkallað rababaraþema hjá mér 🙂 Þau voru mjög hrifin og við líka, æðislega skemmtilegt tvist á rababarann og er ég nú búin að prófa þær margar uppskriftirnar en þetta er ein sú besta.

  5. Þessi var kláruð í barnafmæli hjá mér, bætti aðeins við hvítu sukkulaði.

  6. Sæl !
    Var að hugsa um að bjóða upp á pæið
    þitt í eftirrétt.Hvað er uppskriftin þín fyrir marga
    Með góðri kveðju og þakklæti Þorbjörg

  7. Hádegismatur í dag var pizzabrauð sem er alltaf svo gott. Hafði núna skinku í öðru og pepperóní í hinu kom mjög vel út og allir súper glaðir.
    Hafði svo þessa góðu böku í eftirétt. Æðisleg samsettning að hafa jarðaberin og hvíta súkkulaðið með rabarbaranum 😊

    • Frábært að heyra, þú ert nú meiri dugnaðarforkurinn í eldhúsinu! 🙂 Já, þessi baka er í miklu uppáhaldi – þetta fer allt svo vel saman eins og þú segir. Takk fyrir kveðjuna! 🙂

  8. Þessi uppskrift hefur algerlega slegið í gegn hjá mér. Prófaði líka að nota hindber og það var mjög gott.

Skildu eftir svar við Inga Wilson Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.