Nú erum við hjónin komin heim úr yndislegri Stokkhólmsferð, eini gallinn var hversu hratt helgin leið! Í gær borðuðum við á veitingastað sem heitir Nybrogatan 38 – sem er líka heimilisfangið – frumlegt! 🙂 Við mælum sannarlega með þeim stað. Við fengum frábærlega góða steik og ljúffengt vín fyrir afar gott verð. Það borgar sig greinilega fyrir mig að fylgjast með bloggum hinna ýmsu Svía!. Ég les alltaf bloggið hjá Pernillu Wahlgren sem er þekkt sænsk söngkona, hún borðar oft þarna og er afar hrifin af staðnum, þannig vissi ég af honum. Ef þið eruð í Stokkhólmi og ætlið að heimsækja þennan stað, eða einhvern annan veitingastað ef því er að skipta, um helgi þá þarf að bóka með dálitlum fyrirvara. Það þýðir lítið að ætla að detta inn á góðan veitingastað í Stokkhólmi um helgar.
Eldhússögur á Instagram – Stokkhólmur og Nybrogatan 38
Við byrjuðum daginn í gær á að ljúka dásamlegu brúðkaupsveislunni með brúðhjónunum og veislugestum heima hjá föður brúðarinnar í kampavínsmorgunverði. Frábær leið til þess að ljúka brúðkaupi. Það var svo gaman að geta hitt alla aftur daginn eftir veisluna. Ekki skemmdi fyrir að veðrið var auðvitað frábært og því var hægt að eiga góða stund saman í garðinum.
Það var samt ósköp gott að koma heim til barnanna. Ég hlakkaði líka til að koma heim og baka þessa köku sem ég gef uppskrift að í dag. Ég er nefnilega búin að vera með Pipp með bananabragði á heilanum í dálítinn tíma! Ef þið hafið mögulega ekki tekið eftir því þá er sem sagt komið nýtt Pipp í verslanir, með bananabragði. Ég smakkaði einn bita um daginn og vissi strax að úr þessu súkkulaði yrði ég að gera köku! Ég er búin að hugsa um þetta í dálítinn tíma og í flugvélinni í gærkvöldi ákvað ég að gera þessa köku en með banana Pippinu. Ég breytti uppskriftinni þó nokkuð, til dæmis minnkaði ég sykurinn um helming og tók út kaffið. Þessi Pippkaka hefur verið afar vinsæl hér á blogginu, ekki síst fyrir það hversu fljótleg og einföld hún er en þó aðallega fyrir hvað hún er ofsalega góð. Ef það er hægt þá varð þessi kaka enn betri með banana Pippinu og breyttri uppskrift – þið verðið bara að prófa!
Uppskrift:
- 250 gr suðusúkkulaði
- 150 gr smjör
- 1 dl sykur
- 4 egg
- 2 tsk vanillusykur
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 dl hveiti (má nota maísenamjöl fyrir glútenfría köku)
Krem:
- 25 g smjör
- 1/2 dl rjómi
- 200 gr Pipp með bananabragði (selt í 100 gramma plötum)
Aðferð:
Ofninn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita. Smelluform (24 cm) smurt að innan. Suðusúkkulaði brotið niður í pott ásamt smjöri, brætt við vægan hita og hrært í á meðan. Potturinn tekinn af hellunni og blandan látin kólna dálítið. Sykri og eggjum bætt út í, hrært vel með písk þar til að blandan er slétt. Hveiti, vanillusykri og lyftidufti blandað saman og sigtað ofan í pottinn. Hrært þar til að blandan er slétt. Deiginu er helt í smurt bökunarform og bakað í ca. 40-50 mínútur neðarlega í ofninum. Fylgist vel með kökunni, hún á að vera blaut í miðjunni.
Krem:
Hráefnið í kreminu sett saman í pott og brætt við vægan hita, hrært þar til að Pipp súkkulaðið er bráðnað og kremið er slétt og glansandi. Potturinn tekinn af hellunni.
Þegar kakan hefur kólnað og kremið þykknað dálítið er því smurt yfir kökuna. Kakan skreytt með t.d. blæjuberjum og borin fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Mikið líst mér vel á þessa 🙂
þakka ykkur fyrir yndislegar uppskriftir, ég nota vefinn í hverri viku ,er eldabuska í litlu mötuneyti og uppskriftirnar frá ykkur vekja altaf mikla lukku
En hvað það var skemmtilegt að heyra Ragnheiður, takk fyrir góða kveðju! 🙂
Sendt fra min HTC
Er þetta rétt magn af hveiti?
Sæll Gylfi. Já, þetta er rétt magn af hveiti. Líkt og í franskri súkkulaðiköku þarf ekki meira hveiti, kakan á að vera dálítið blaut og þétt.
Er í lagi að geyma þessa yfir nótt? Hvernig er þá best að gera það?
Það er bara gott að geyma þessa yfir nótt. Settu eitthvað yfir hana og geymdu í ísskáp. 🙂
Takk fyrir þessa dásamlegu uppskrift! Prufaði hana hérna heima og svo handa samstarfsfólki mínu og hun hvarf á augabragði í bæði skiptin, með betri sukkulaðikökum sem ég hef bakað
Frábært að heyra þetta Hólmfríður Helga! Vonandi finnur þú fleira gott hér á síðunni! 🙂 Takk fyrir kveðjuna!
Bakvísun: Svívirðilegar súkkulaðibitakökur | Eldhúsperlur
Guðdómleg! Gaf þessa í innflutningsgjöf í dag (á fallegum diski auðvitað) og ætla að baka hana fyrir skírnarveislu um næstu helgi. Takk!
Frábær innflutningsgjöf Sigurlaug! 🙂 Takk fyrir góða kveðju! 🙂
Bakvísun: Súkkulaðikaka með Pipp bananakremi – leiðrétting á Nóa og Siríus bæklingi | Eldhússögur
Ég er búin að gera þessa nokkrum sinnum með karamellu-pippinu, klikkar ekki. Dásamlega einföld og guðdómlega góð. Takk fyrir mig 🙂
Dásamlegt að heyra Margrét! 🙂 Takk sömuleiðis fyrir kveðjuna!
Bakvísun: Bananakaka með núggatsúkkulaði | Eldhússögur
Bakvísun: Vinsælustu eftirréttirnir | Eldhússögur
Sæl,
Er kakan alveg góð ef ég baka hana kvöldinu áður en hún verður borðuð! Geymist hún vel?
kær kveðja,
Bryndís
Sæl Bryndís. Þessi kaka geymist afar vel og er alveg jafngóð daginn eftir, ef ekki betri! 😉
Gangi þér vel, Dröfn
Bakvísun: “Kladdkaka” með appelsínukaramellu Pipp og Rice krispies | Eldhússögur
Bakvísun: “Kladdkaka” með appelsínukaramellu Pippi og Rice krispies | Eldhússögur
Bakvísun: Súkkulaðirúlluterta með hnetu-Nizza og banönum | Eldhússögur
Sæl, hefur þú gert þessa stærri eða sem skúffuköku?? Er að leita að glútenlausri afmælisköku sem er jafn góð og þessi 🙂
Sæl vil vekja athygli á þvi að þessi kaka er ekki með öllu Glútenlaus eins og nafnið á henni gefur til kynna því miður 😦