Dásamlega gott kryddjurtabrauð!
Ohh … ég elska sumarið! Það er með ólíkindum hvað allt verður eitthvað svo mikið léttara og skemmtilegra í birtu, góðu veðri og sól. Þó svo að við í Reykjavík höfum bara fengið þrjá sólardaga í júní þá gildir að nýta þá daga vel. Jóhanna Inga og vinkona hennar fengu að gista úti í tjaldi einn slíkan sjaldséðan sólardag í júní. Það byrjaði með því að þær settu upp lítið tjald sem þeim fannst tilvalið að gista í.
Foreldrunum leist nú ekkert á það og pabbinn sló upp betra tjaldi.
Það var svo spennandi að það endaði á því að Jóhanna gisti tvær nætur í tjaldinu, þá seinni með Vilhjálmi bróður sínum. Stelpurnar gerðu ægilega heimilislegt í kringum tjaldið og útbjuggu meira að segja póstkassa. Þangað streymdu bréf frá nánustu ættingjum. Skemmtilegasta bréfið var frá pabbanum þar sem hann gaf meðal annars ýmisskonar útivistarráð! Ruslapóstur var sko ekki afþakkaður á þessu heimili heldur vildu þær allan póst! 🙂
En að uppskrift dagsins sem er dásamlega gott brauð! Við unnum í garðinum í dag og ég skellti í eitt svona brauð sem við gæddum okkur á úti í garði seinnipartinn. Þetta brauð er ekki bara ákaflega einfalt að baka heldur er það svo hrikalega gott! Ég sá eftir að hafa ekki bakað tvö brauð því brauðið hvarf ofan í fjölskylduna á mettíma. Það hvarflaði að mér að kalla þetta sumarbústaðarbrauð því ég sá svo sterkt fyrir mér hvað það væri notalegt að baka þetta brauð í sumarbústaðinum og njóta með fjölskyldunni. En það verða bara allir að prófa að baka þetta himneska brauð – það er skipun! 🙂
Uppskrift (gefur eitt brauð):
- 280 g hveiti (eða spelt)
- 2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 1 tsk flögusalt, mulið á milli fingranna (ég notaði flögusalt með rósamarín)
- 60 g rifinn parmesan ostur
- 60 g rifinn mozzarella eða cheddar ostur
- ca. 12 grænar ólífur (eða fleiri – fer eftir smekk), skornar í tvennt
- ca. 3 sólþurrkaðir tómatar (fer eftir smekk – ég notaði minna), skornir í litla bita
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar
- 1 gott knippi steinselja, söxuð fínt
- 2 tsk ferskt timjan eða 1 tsk timjan krydd
- 2 egg
- 2 1/2 msk ólífuolía
- 300 ml létt-AB mjólk (eða 300 ml mjólk blandað saman við 1 msk hvítvínsedik eða sítrónusafi – látið standa í 10 mínútur)
Ofan á brauðið:
- 1 egg hrært saman við 2 tsk vatn
- ferskt timjan og saltflögur (ég notaði flögusalt með rósmarín)
Ofninn hitaður í 180 gráður undir- og yfirhita. Brauðform smurt að innan. Brauðformið sem ég nota er 25 x 11 cm (mælt að ofan, formið mjókkar aðeins niður). Hveiti, lyftiduft, matarsódi, salt, pipar, ostur, parmesan ostur, ólífur, sólþurrkaðir tómatar og steinselja sett í stóra skál og blandað vel saman.
Í annarri skál eru eggjum, ólífuolíu og AB-mjólk blandað vel saman. Því næst er gerð smá dæld í miðjuna á þurrefnunum og vökvanum hellt út í.
Blandað vel saman með sleif þar til deigið er orðið slétt. Deiginu er hellt í smurt brauðformið, það smurt með eggjablöndunni og saltflögum og timjan greinum dreift yfir brauðið.
Bakað í ofni við 180 gráður í um það bil 40 mínútur. Ég vildi að ég gæti sett hér inn ilminn sem lagði um húsið af þessu ljúffenga brauði! 🙂 Brauðið er best nýbakað og volgt.
Svo dásamlega gott og það tekur örstutta stund að útbúa deigið!
Takk fyrir þessa girnilegu uppskrift. Heldurðu að ferskt rósmarín geti komið í staðinn fyrir timian?
Já Vilborg, það er örugglega jafn gott að nota rósmarín! 🙂
Takk fyrir svarið, ég ætla að baka þetta fyrir afmæliskaffið mitt á sunnudaginn, ég hef ekki séð svona girnilega brauðuppskrift lengi – og svo einfalda! Takk aftur:)
takk fyrir skemmtilegt blogg og góðar uppskriftir, þetta brauð verður bakað um helgina
takk aftur takk
Sæl aftur, mig langaði bara að segja þér að ég bakaði þetta frábæra brauð aftur í dag og tók með mér í samskotaboð og er skemmst frá því að segja að það vakti mjög mikla lukku. Ég notaði ferskt rósmarín í stað timians og gerði 1 og 1/2 uppskrift sem ég bakaði í kringlóttu springformi, 25 cm. í þvermál. Það þurfti alveg 60-70 mín. bakstur við 180C. Skemmtilegt að skera það í þrennt þvert yfir og síðan í sneiðar á hinn veginn. Þessi uppskrift er orðin ein að mínum uppáhalds, takk kærlega fyrir.
En hvað þetta var skemmtilegt að heyra Vilborg, takk fyrir góða kveðju! 🙂
Sæl Dröfn
Takk fyrir að deila þessari góðu uppskrift, ég er búin að baka hana einu sinni og vakti hún mikla lukku. Nú er ég með brauðið í ofninum og hlakka til að bjóða saumaklúbbnum mínum að smakka í kvöld. Ég fékk upphaflega að smakka brauðið hjá vinkonu minni sem benti mér á síðuna þína, hlakka til að prufa fleiri uppskriftir frá þér. 🙂 Kveðja Kiddý
Gaman að heyra þetta Kiddý, þetta er einmitt mitt uppáhaldsbrauð, gott að fleiri njóta þess líka! 🙂
Sæl aftur,
Vil þakka fyrir upskriftina !!!
Bakaði þessa brauð til að hafa með kjúklinga salat i okkar “ saumaklúbbnum“ – besta brauð for ever !!!! Mmmm það voru svo gott <3….allar viltu fa upskriftina :))…eg setti fetaost að auki og sleppti þurkaðum tomatum.
..og svo var þín brownies kaka með hindberjasosunni i eftirrétt ….stelpunar sagði að verður erfitt að toppa þetta :)))
Takk fyrir bloggið !
Kv.Rasa 😉
Vá, en æðislegt að heyra þetta Rasa! 🙂 Takk fyrir góða kveðju og vonandi heldur þú áfram að finna eitthvað gott hér! 🙂
Æðislegt brauð;)
Gaman að heyra Halla Björk! 🙂