Vinsælustu eftirréttirnir


20130102-061307Nú þegar árinu er senn að ljúka er við hæfi að taka saman vinsælustu og bestu uppskriftirnar héðan af Eldhússögum á árinu. En þar sem að mér finnst sjálfri svo dæmalaust gaman að skoða svona vinsældarlista þá ákvað ég að gera fleiri en einn lista í ár. Ég er sjálf að skipuleggja hvaða eftirrétt ég á að útbúa fyrir gamlárskvöld og ákvað í framhaldi af því að gaman gæti verið að taka saman lista yfir 15 vinsælustu eftirréttina hér á Eldhússögum frá upphafi. Kannski getið þið nýtt ykkur uppskrift af þessum lista fyrir gamlárskvöld! 🙂

1. Snickerskaka

SnickerskakaLangvinsælasta uppskriftin á Eldhússögum frá upphafi er þessi gómsæta Snickerskaka en uppskriftin hefur verið skoðuð yfir 30 þúsund sinnum. Kakan sómir sér vel sem sætur eftirréttabiti með þeyttum rjóma eftir góða máltíð.

2. Karamellu marengsterta

Karamellu marengsterta

Þessi dásemdar marengsterta er hér um bil jafn vinsæl og Snickerskakan góða. Ástæðan er sú að hún er bara nákvæmlega eins og frábærar marengstertur eiga að vera – algjör æðibiti!

3. Frönsk súkkulaðikaka

IMG_5368Það hefur ekki borið mikið á þessari uppskrift á Eldhússögum en hægt og í hljóði hefur hún klifrað upp á topp tíu listann yfir mest skoðuðu uppskriftirnar á síðunni. Ég hef ekki hitt nokkurn fyrir sem ekki dásamar þessa köku, hún er algjörlega öruggt spil við allar aðstæður!

4. Súkkulaðikaka með Pipp karamellukremi

IMG_8695Frábær súkkulaðikaka sem er frábær nýbökuð og heit en jafnvel enn betri daginn eftir. Ekki spillir fyrir hversu auðvelt er að búa hana til, það þarf enga hrærivél! Endilega prófið aðrar útgáfur af Pippinu, til dæmis nýja Pippið með Irish Cream, það passar vel fyrir gamlárskvöld!

5. Kladdkaka með karamellukremi

img_7456Ég er ekkert hissa á því að sænska kladdkakan (klessukaka) með karamellukremi sé svona vinsæl eins og raun ber vitni. Kakan er ljúffeng og karamellukremið út úr þessum heimi gott!

6. Klessukaka með Daimrjóma

Klessukaka með daimrjómaNæst í röðinni er önnur kladdkaka, að þessu sinni með Daimrjóma. Það þarf varla að skýra út hvers vegna hún er vinsæl, myndirnar ljúga ekki! 😉

7. Pavlova

IMG_3270

Þið eruð kannski farin að sjá regluna í þessum lista … súkkulaðikökur í bland við smá marengs – augljóst hvað er vinsælast hjá landanum! 🙂 Pavlova er auðvitað klassísk, stökkur marengsinn með „chewy“ miðju, þeyttur rjómi og fersk ber, gerist ekki betra!

8. Banana-karamellubaka

IMG_3190

Þessa uppskrift setti ég hér inn á Eldhússögur í árdögum síðunnar eins og sést á myndunum. En í guðanna bænum látið ekki myndirnar fæla ykkur frá, þessi baka er svo ótrúlega ljúffeng enda er þetta áttunda mest lesna eftirrétta uppskriftin.

9. Súkkulaðikaka með Pipp bananakremi

IMG_1086Þessi ljúffenga kaka hlaut fyrstu verðlaun í uppskriftasamkeppni Nóa og Siríus og uppskriftin var birt í bæklingnum þeirra. Það þarf varla að hafa um þetta fleiri orð, ekki lýgur Nói … hvað þá Siríus! 🙂

10. Heit súkkulaðikaka með mjúkri miðju

IMG_7432

Enn ein súkkulaðikakan á topplistanum – hvað get ég sagt ágætu lesendur – þið elskið einfaldlega súkkulaði! 😉 Þessi litla dásemd er auðvitað frábær eftirréttur fyrir gamlárskvöld. Það er hægt að undirbúa hann fyrirfram og stinga formunum bara beint í ofninn í ca. 12-15 mínútur áður en hann er borinn fram.

11. Einfaldur Snickerseftirréttur með perum

IMG_1089Þetta er ljúffengur og ákaflega einfaldur eftirréttur sem hentar sérstaklega vel ef maður er með marga í mat. Það er hægt að útfæra hann á nokkra vegu en mér finnst best að nota mars súkkulaðið og niðursoðnar perur.

12. Súkkulaðikaka með “fudge” kremi

IMG_9261

Já, þetta er að gerast – enn ein súkkulaðikakan á topplistanum! Þessi kaka er hálfgerð blanda af öllum þessum súkkulaðikökum í listanum hér að ofan. Þið verðið ekki svikin ef þið veljið þessa fyrir gamlárskvöld, ég ábyrgist það! 🙂

13. Brownie-kaka með hindberjarjóma

IMG_0594

Það er ekki nóg með að þessi kaka sé einstaklega gómsæt heldur er hún augnayndi að auki. Hún er einfaldari að útbúa en halda mætti, endilega prófið!

14. Pavlova í fínu formi

IMG_8322Hér er Pavlova í eldföstu móti – einföld, ljúffeng og falleg!

15. Döðlueftirréttur

IMG_8025

Ef þið hafið ekki enn uppgötvað hversu góðar döðlur eru í eftirrétti þá er núna tækifærið! Þessi réttur er svolítið retró og ó svo góður. Karamellusósan setur sannarlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.

Þar með er topplistinn yfir 15 mest lesnu eftirrétta-uppskriftirnar hér á Eldhússögum tæmdur. Hins vegar langar mig að bæta við sex uppskriftum (og mig langaði að hafa þær mikið fleiri!) sem mér finnst að eigi heima ofarlega á þessum lista. Trúið mér, þessar uppskriftir eru skotheldar! 🙂

Hvítt súkkulaðifrauð með hindberjasósu

IMG_1917

Gott og fallegt – fallegt og gott! Hvað get ég sagt, hindber, rjómi og hvítt súkkulaði, þetta er bara ómótstæðileg blanda!

Súkkulaðipannacotta með karamellu

Súkkulaðipannacotta með karamelluPannacotta er svo ótrúlega einfalt að útbúa en að sama skapi dásamlega gott. Ég bauð ömmu þessa útgáfu og henni fannst þetta besti eftirrétturinn sem hún hefur bragðað … þá erum við að tala um á 85 árum – ef það er ekki góð einkunn þá veit ég hvað! 😉

Ostakökubrownie með hindberjakremi

Ostakökubrownie með hindberjakremi

Ég þarf varla að útskýra af hverju þessi kaka er á mínum topplista, hér er hreinlega allt það sem er gott sett saman í eina dásemdarköku!

Súkklaðimús með karamelliseruðum perum

IMG_9051 Ég er með nokkarar útgáfur af súkkulaðimús á síðunni minni og hefði viljað setja þær allar hingað á listann. Mjúk og bragðgóð súkkulaðimús er svo frábær endir á ljúffengri máltíð. Ég valdi samt þessa útgáfu af súkkulaðimús. Hér er hún færð upp á annað stig með því að lauma gómsætum karamelliseruðum perum í botninn – algjört gúrmei!

Bismarkbaka með súkkulaðisósu

IMG_6924

Ákaflega hátíðlegur og góður eftirréttur sem ég bauð upp á gamlárskvöldi í fyrra og á jólunum árið áður. Það hlýtur að vera afar góð einkunn! 🙂

Ís með heimatilbúnu frönsku núggati og súkkulaðisoðnum perum

IMG_6042Ég kom næstum því sjálfri mér á óvart með því að setja ís á þennan lista, venjulega er ís nefnilega eini eftirrétturinn sem ég stenst auðveldlega. En þetta er enginn venjulegur ís skal ég segja ykkur – núggatið gerir hann ómótstæðilegan! Bætið síðan súkkulaðisoðnu perunum við og rétturinn verður toppurinn á gamlárskvöldi! 🙂

13 hugrenningar um “Vinsælustu eftirréttirnir

  1. Takk fyrir allar þessar flottu uppskriftir. Ég nota mikið síðuna þína til að finna mér og okkur eitthvað í goggin, Takk!

  2. Takk kærlega fyrir frábæra síðu, ég hef notað ótal margar uppskriftir frá þér hverri annarri betri. Ég treysti því að þú gefir út bók eftir ár, með þínum bestu uppskriftum:)

  3. Mmmm þvílíkar freistingar. 👍 Með vatn í munni eftir að hafa skoðað þessar uppskriftir.
    Eina neikvæða er valkvíðinn sem sem verður allsråðandi 😉

  4. Þetta er orkuríkur unaður sem kemur sér alltaf vel hvernig sem viðrar, engin eftirsjá. Þú ert snillingur ástin mín.

    • Takk fyrir góða kveðju Þórgunnur! 🙂 Ég er sammála þér með Mascarpone eftirréttinn, hann hefði verið næsti réttur inn á listann minn þarna neðst! 😉 Takk aftur fyrir kveðjuna og gleðilega hátið! 🙂

  5. Góðan daginn og takk fyrir yndislegt blogg! ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að gera þessa uppkrift eða Brownie-kaka með hindberjarjóma (sem kom í kökublaði Vikunnar) og hafa í eftirrétt á gamlárs. Þær eru svo líkar en stór smáatriði sem munar á þeim – eins og sultusykur eða matarlím og bara hvort ég eigi að hafa ostakökuna með á milli…. hver er helsti munurinn á þeim? og hverju mælir þú með?

    • Sæl Helga og takk fyrir góða kveðju! 🙂 Það er rétt hjá þér, þessar tvær kökur eru líkar. Sjálf myndi ég klárlega gera þessa þreföldu. Bökuð ostakaka í sambland við brownie og hindberjarjómann er toppurinn finnst mér! 🙂 Gangi þér vel og gleðilega hátíð!

  6. Bakvísun: Vinsælustu uppskriftirnar 2013 | Eldhússögur

  7. Hef skoðað síðuna þína ótal sinnum. Alltaf fengið það sem ég leita að. Hafðu heila þökk fyrir og gleðilega ár. þann sagði:

    Sigþrúður Ingimundardóttir.

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.