Grillað lambalæri með kartöflugratíni


Það er algengt að lambalæri séu vafin inn í álpappír og þau grilluð á þann hátt en þá kemur ekki alvöru grillbragð af kjötinu. Til þess að halda grilluðu lambalæri safaríku en jafnframt að fá gott grillbragð af því er til skotheld leið, grillun við óbeinan hita! Þá eru engir logar hafðir beint undir kjötinu og bara haft kveikt á brennurum í kringum lærið. Með lærinu bar ég fram að þessu sinni kartöflugratín. Flestir eru hrifnir af kartöflugratíni en ókosturinn við það er að það tekur afar langan tíma í ofninum og verður oft of dökkt að ofan en kartöflurnar samt ekki fulleldaðar. Ég er hins vegar með mjög góða og einfalda leið til að elda stórt form af kartöflugratíni á ca 35 mínútum en samt er öruggt að kartöflurnar verða mjúkar og fulleldaðar!

Læri – uppskrift f. 6

    • 1 lambalæri, 2.5 kg, vel hangið
    • 8 hvítlauksgeirar
    • 1 msk ólífuolía
    • Kryddblandan ,,Best á lambið“ eða önnur blanda af kryddum

Aðferð:

Ég keypti lærið í versluninni Til sjávar og sveita í Ögurhvarfi. Það var ókryddað og búið að hanga vel. Ég geymdi lærið svo í ísskáp í 4 daga og þar með var ég viss um að það væri orðið meyrt og gott. Mikilvægt er að taka lærið út nokkru áður en það er grillað þannig að það nái stofuhita.

Kveikið á grillinu og hitið það vel. Fitusnyrtið lærið, gerið djúpar raufar í það á nokkrum stöðum með hnífsoddi og stingið hvítlauksgeirum inn í það. Nuddið ólífuolíu vel á lærið (til að kryddblandan festist betur) og kryddið með ,,Best á lambið“ og núið vel á allt lærið. Slökkvið á öðrum brennaranum á gasgrilli. Setjið lærið á grillið þar sem ekki er eldur undir og lokið síðan, sá sem kveikt er á er stilltur frekar lágt, ofnlokið hjá mér sýndi 120 gráður, það getur þó verið misjafnt milli grilla. Ef það eru þrír brennarar á grillinu, setjið lærið í miðjuna, slökkvið undir þeim brennara og hafið brennarana sitt hvorum megin við í gangi. Grillið lærið í 1 klst og 50 mínútur miðað við læri sem er 2.5 kíló. Það er líka hægt að stinga kjöthitamæli í vöðvann þar sem hann er þykkastur, hann sýnir 60°C fyrir meðalsteikt, 70°C fyrir gegnsteikt. Snúið lærinu tvisvar eða þrisvar en opnið grillið annars sem allra minnst. Ef óskað er eftir dekkri skorpu má færa það yfir eldinn seinustu mínúturnar og fylgjast þá vel með því. Leyfið lærinu að standa undir álpappír í minnst 15 mínútur áður en það er skorið, gjarnan lengur. Kjötið varð einstaklega meyrt og safaríkt með þessari aðferð.

Kartöflugratín f. ca. 10-12

  • ca 1,3 kíló kartöflur
  • 4 dl rjómi
  • 4 dl mjólk
  • hálfur rauðlaukur, skorin í strimla
  • 3 hvítlauksrif, söxuð smátt
  • 2 grænmetisteningar
  • Töfrakrydd, salt og pipar
  • rifinn ostur

Aðferð:

Kartöflurnar skolaðar vel (ég hef þær oftast með hýðinu á) og svo skornar í skífur, sumir vilja hafa þær næfurþunnar, mér finnst best að hafa þær ca 1 cm á þykkt. Hvítlaukur og laukur skorinn niður. Mjólk og rjómi settur í stóran pott ásamt hvítlauk, lauk, grænmetisteningi og kryddi. Ég nota Töfrakrydd frá pottagöldrum, það er góð kryddjurtablanda með cheddar osti sem hentar vel en það er hægt að nota hvaða krydd sem hugurinn girnist. Sjóðið við vægan hita í 15-20 mínútur (fer svolítið eftir þykkt kartaflanna), eða þar til þær eru orðnar vel mjúkar. Hellið kartöflublöndunni í eldfast mót, dreifið rifnum osti yfir og hitið í ofni við 200 gráður í 20-25 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og orðin gullinbrúnn.

Með þessu bar ég fram ofnbakað ferskt grænmeti. Það er: sætar kartöflur, gulrætur, kúrbít og brokkolí. Grænmetið skorið í bita (ég hef til dæmis sætu kartöflurnar smátt skornar þar sem þær eru lengi að bakast, en brokkolíið í stærri bitum þar sem það bakast fljótt) sett á ofnplötu, velt upp úr dálítilli ólífuolíu og kryddi, bakað í ofn í ca. hálftíma (fer eftir stærð grænmetisins). Veltið grænmetinu 2-3svar á meðan bökun stendur. Sósan sem ég notaði að þessu sinni var sveppasósa, uppskrift er að finna hér.

6 hugrenningar um “Grillað lambalæri með kartöflugratíni

  1. Svolítið hissa á því að þér finnist sætar kartöflur seineldaðar, ég og flestir sem ég þekki semnota þær mikið eru á því að þær séu fljótari að sjóða/steikjast/grillast en venjulegar. Við grillum mjög oft sætar kartöflur í sneiðum með örlítilli olíu með cumin og kóríanderblöndu á, sem er algerlega ljúffengt.

    • Eins og ég skrifaði í færslunni þá var ég þarna með allskonar grænmeti ofnbakað saman. Þá er dálítið mismunandi eldunartími fyrir grænmetið. Ef sætkartöflubitarnir eru stórir þá verður t.d. kúrbítur og brokkolí (sem þolir fremur stuttan bökunartíma) fyrr tilbúið en sætkartöflurnar. Þess vegna hafði ég sætkartöflubitanna fremur litla til þess að allt grænmetið yrði tilbúið samtímis.

  2. Bakvísun: Heilsteiktur kjúklingur með kryddjurtarjómasósu | Eldhússögur

  3. Gerði kartöflugratínið með ofnbökuðu læri í gær, það er algjört sælgæti, fyrsta sinn sem mér tekst að gera gott gratín og heimilisfólkið er búið að panta það á gamálskvöld með kalkúninum, og svo á að gera aftur hvítlaukssmjörið góða á humarinn 🙂

  4. Bakvísun: Hægelduð nautalund | Eldhússögur

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.