Ég hef lengi óskað mér belgísks vöfflujárns. Í byrjun sumars sá ég þannig vöfflujárn auglýst á netinu, lítið sem ekkert notað og falt fyrir fáeina ríkisdali! Ég sló auðvitað til og fjárfesti í því. Ég er búin að skoða mikið uppskriftir og fróðleik um belgískar vöfflur. Helsti munurinn er að þær eru með geri, ekki með lyftidufti eins og venjulegar vöfflur, að auki eru þær mun þykkari en með djúpum dældum. Í Belgíu eru þær seldar hjá götusölum með til dæmis súkkulaði, rjóma, berjum, sykri og öðru gúmmelaði. Ég fann uppskrift af belgískum vöfflum frá Nönnu Rögnvaldar. Eftir að hafa borið hana saman við ótal erlendar uppskriftir sá ég að hennar uppskrift var mjög sambærileg flestum uppskriftunum en með kannski meiri vökva en margar þeirra. Það kom ekki að sök, mér finnst þessi hlutföll koma vel út og held mig við hennar uppskrift.
Með vöfflunum er hægt að bjóða upp á allskonar fyllingar. Hér var ég með vanilluís og tvennskonar heitar sósur, karamellusósu og súkkulaðisósu. Gestirnir voru beðnir um að taka út sósurnar og meta hvor þeirra væri betri með belgísku vöfflunum. Útkoman varð sú að best væri að blanda þeim saman!
Uppskrift:
- 1 msk þurrger
- 700 ml mjólk (eða 350 ml mjólk, 350 ml súrmjólk)
- 3 stór egg, aðskilin
- 150 g smjör, bráðið og látið kólna dálítið
- 6 msk sykur (má vera minna)
- 1 tsk salt
- 2 tsk vanillusykur
- um 500 g hveiti
- 3 eggjahvítur
- olía til að pensla vöfflujárnið
Hitaðu 100 ml af mjólk í sem næst 40°C, leystu gerið upp í blöndunni (e.t.v. með 1 tsk af sykrinum) og láttu standa þar til freyðir, eða í um 10 mínútur. Hitaðu afganginn af vökvanum í um 40°C, helltu um einum bolla í stóra skál og hrærðu eggjarauðum, smjöri, sykri, salti og vanillusykri saman við, ásamt gerblöndunni. Hrærðu afganginum smátt og smátt saman við til skiptis við hveitið, þar til komin er fremur þykk vöfflusoppa (ekki nota allt hveitið ef hún virðist ætla að verða of þykk, bættu við hveiti ef hún er of þunn). Þeyttu eggjahvíturnar þar til þær eru farnar að stífna og blandaðu þeim þá saman við með sleikju. Láttu soppuna lyfta sér á hlýjum stað í um 1 klst (enn betra er þó að láta hana lyfta sér í ísskáp yfir nótt, en þá er best að sleppa því að hita meirihluta vökvans).
Hitaðu vöfflujárnið og penslaðu það með olíu. Bakaðu vöfflurnar þar til þær eru gullinbrúnar. Berðu þær fram strax eða haltu þeim heitum í volgum ofni. Einnig má frysta þær og hita svo í ofni.
(Það má líka nota eggin heil og sleppa því að þeyta hvíturnar en þær verða betri svona.)
Með vöfflunum bar ég fram vanilluís og heita súkkulaðisósu (suðusúkkulaði og smá rjómi hitað yfir vatnsbaði) og heita karamellusósu:
- 100 g smjör
- 100 g púðursykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 dl rjómi
Sjóðið saman í 5 mínútur og hrært stöðugt á meðan. Sósan er borin fram heit.
Það er líka gott að bera fram með vöfflunum jarðaber, hindber, þeyttan rjóma, ferska ávexti, hlynsíróp og blanda þessu saman eftir því sem hugurinn girnist, svo ekki sé nú minnst á Nutella, banana og þeyttan rjóma!
Uppfært: ég mæli með því að baka stóra uppskrift af þessum vöfflum til að eiga afgang daginn eftir. Það er nefnilega hrikalega gott að rista þær í brauðrist og smyrja með íslensku smjöri, namminamm!
Slef…………
Þarf að sýna Geira mínum þetta 😉
Kv Ella
..og ég Þórhalli 🙂
Já og Sigurði 😀
Bakvísun: Uppáhalds í eldhúsinu | Eldhússögur
Hvernig járn er þetta sem þú keyptir?
Það er Tristar vöfflujárn.
Langar mikið að prófa þessa uppskrift, hvað geymist deigið lengi í kæli?
Langar að vita, eru þetta 3 eggjahvítur eða 6 eggjahvítur? Langar að vera viss. Kveðja Eygló
3 heil egg plús 3 eggjahvítur.
Bakvísun: PONY AFMÆLI
Besta uppskrift sem eg hef prófað
Frábært að heyra! 🙂
Hvað koma margar vöfflur úr þessari uppskrift?