Grilluð tikka masala kjúklingapizza


Grilluð tikka masala pizza

Ég er ákaflega spennt að setja inn þessa uppskrift en í henni mætast tveir gómsætir matarheimar, sá ítalski annars vegar og hins vegar sá indverski. Þeir sem hafa prófað að grilla venjulega pizzu á útigrilli vita hversu góðar slíkar pizzur eru. Hér nota ég naan-brauð sem botn og ofan á þennan indversk ættaða pizzubotn bjó ég til gómsæta indversk/ítalska pizzusósu og  karamelluseraðan lauk. Einnig setti ég á naan-pizzuna papriku, mozzarella ost og tikka masala kjúkling auk tandoori kjúklings. Með þessum fáu hráefnum og einföldu matargerð skapaði ég himneskar naan-pizzur sem bæði börn og fullorðnir á heimilinu kolféllu fyrir. Naan pizzurnar eru ljúfengar á bragðið og það kemur á óvart hversu vel passar að nota naan brauðin sem pizzubotn. Með því að grilla brauðin fæst gómsætur botn sem er passlega mjúkur í miðjunni, með mátulega stökkum köntum og smellpassar við áleggið. Ég prófaði að nota bæði tikka masala kjúkling og tandoori kjúkling.

IMG_1573Hráefnið í Tandoori pizzuna

Hvor tveggja var ákaflega gott, mér fannst fyrrnefnda útgáfan aðeins betri en það voru skiptar skoðanir í fjölskyldunni hvor sósan væri betri. Það tekur smá tíma að karamellusera laukinn en það er alveg þess virði, bragðið af honum verður svo sætt og gott.

IMG_1632Tandoori kjúklingapizza

Ég er mikið búin að nota innfluttan frosinn kjúkling frá Rose Poultry undanfarið. Þegar ég bjó í Svíþjóð notaði ég alltaf frystan kjúkling og fannst hann afar bragðgóður en umfram allt meyr. Mér finnst kjúklingurinn frá Rose Poultry í sambærilegum gæðaflokki, hann er ofsalega mjúkur og meyr. Svo finnst mér æðislega þægilegt að eiga alltaf frystar kjúklingalundir, úrbeinuð innanlæri eða aðra kjúklingabita tilbúna í frystinum. Kjúklingalundirnar þiðna á örskömmum tíma og þær smellpassa á þessar gómsætu naan-pizzur.

kjúklingur1

Uppskrift fyrir 4-5:
  • 700 g kjúklingalundir (ég notaði 1 poka af frystum kjúklingalundum frá Rose Poultry)
  • 1/2 krukka Tandoori paste eða Tikka masala paste frá Patak’s
  • 1/2 dós grísk jógúrt (eða ca. 170 g)
  • ca 1 1/2 msk ólífuolía
  • 2/3 tsk salt
  • 1 stór laukur
  • 1/2 dós niðursoðnir tómatar (ca. 200 g)
  • 1/2 rauð paprika
  • ca. 200 g rifinn mozzarella ostur
  • 3 Naan brauð (ég notaði „garlic & coriander“ naan brauð frá Patak’s)
  • ólífuolía til að pensla naan brauðið
Kjúklingalundirnar eru afþýddar og skornar í hæfilega stóra bita. Tandoori eða tikka masala maukið og gríska jógúrtin eru hrærð saman í skál og kjúklingnum blandað út í. Látið standa við stofuhita á meðan laukurinn er skorinn í sneiðar og paprikan skorin í fremur þunna strimla. Ólífuolía er sett á pönnu eða í pott við meðalhita og lauknum og saltinu bætt út í. Laukurinn er látinn malla við vægan hita í ca. 20-30 mínútur. Lauknum er snúið reglulega, hann á að brúnast en ekki brenna. Olíu er bætt við ef með þarf og jafnvel örlitlu vatni. Á meðan laukurinn mallar er kjúklingurinn í sósunni steiktur upp úr ólífuolíu á pönnu þar til hann er steiktur í gegn. Þá er kjúklingurinn veiddur af pönnunni en eins mikið af sósunni og hægt er, skilin eftir á pönnunni. Tómötunum er bætt út á pönnuna og þeir hrærðir vel saman við sósuna. Sósan er látin malla við meðalhita í nokkrar mínútur þar til hún hefur þykknað dálítið. Naan brauðið er smurt með ólífuolíu á báðum hliðum og sett á grillið í 2-3 mínútur á hvora hlið við góðan hita eða þar til grillrenndur eru komnar í brauðið.
Þá er brauðið tekið af grillinu og það er smurt með sósunni. Því næst er sett dálítið af rifnum osti, þá er kjúklingnum dreift yfir, því næst lauki og papriku og endað á rifna ostinum.
Naan-bauðið er sett aftur á grillið og slökkt undir þeim brennara sem er beint undir brauðinu en annar og/eða þriðji brennarinn stilltur á fremur háan hita. Grillinu er lokað og naan-pizzan grillað í um það bil 8-10 mínútur. Fylgast þarf með hitanum og færa bauðið til ef það fer að verða of dökkt. Njótið!
IMG_1650
Tikka masala kjúklingapizza
Hér er smá myndasería af pizzugerðinni:
IMG_1583
Naan-brauðið grillað
IMG_1596
Smurt með tikka masala sósu
IMG_1584eða tandoori sósu
IMG_1605
Rifnum osti dreift yfir sósuna og því næst kjúklingnum
IMG_1607Þá er lauk og papriku dreift yfir (gott að hafa meiri lauk en á myndinni).
IMG_1593Það er endað á rifnum osti
IMG_1645
Grillað við óbeinan hita í ca. 10 mínútur
IMG_1658
Njótið vel!

3 hugrenningar um “Grilluð tikka masala kjúklingapizza

  1. bara fyrir forvitni sakir, hvar kaupeirðu þennan kjúkling frá Rose Poultry?
    Ég er alveg sammála, oft er eins og frosinn kjúklingur bragðist betur, svo merkilegt sem það nú er. Sama finnst mér með lambakjöt, það þarf helst að frjósa áður en maður gæðir sér á því.
    Það er amk mín skoðun… af nýslátruðu finnst mér það ekkert spes.

    • Sæl Nanna. Rose Poultry færst í Bónus, Krónunni og Hagkaup meðal annars. Kjúklingalundirnar, úrbeinuðu lærin og bringurnar (minnir mig) eru í hvítum og rauðum pokum með íslenskri merkingu.

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.