Laxa tartar á ananas með kóríander


Laxa tartar á ananas með kóríander

Um helgina steig ég út fyrir þægindarammann þegar ég féllst á að elda mat fyrir 40 manna árshátíð starfsmanna Heilsuborgar. Ég hef enga reynslu af slíku, ég elda venjulega bara hérna heima hjá mér. Það er í mesta lagi að ég eldi fyrir stórfjölskylduna, það getur slagað upp í 20 manns. Ég hugsaði sem svo að þetta væri bara eins og að elda fyrir tvöfalda stórfjölskylduna! Þar sem ég þjáist af fullkomnunaráráttu þá dreymdi mig auðvitað aðfaranótt árshátíðardagsins að ég væri mætt á árshátíðina, ætlaði að bera matinn á borðið en uppgötvaði að ég ætti eftir að búa hann til, laxinn meira að segja enn í frystinum! 🙂 Sem betur fer lenti ég nú ekki í slíkum hremmingum, þetta gekk allt vonum framar. Þema árshátíðarinnar var New york og matseðillinn samanstóð af þremur tegundum af pinnamat í forrétt. Það voru litlar mozzarella ostakúlur, kokteiltómatar og fersk basilika sem ég þræddi upp á litla bambuspinna og dreifði svo yfir það ólífuolíu, maldon salti og ferskmöluðum svörtum pipar.

IMG_9339

Ég var líka með bruchetta sem ég er með uppskrift af hér.

IMG_9335

Svo var ég með laxa tartar á ananas með kóríander sem ég gef uppskrift af hér að neðan. Í aðalrétt var lungnamjúk grilluð nautalund frá Kjötkompaníinu í Hafnarfirði. Með henni var kartöflugratín, ferskt salat, steikt ferskt grænmeti, bearnaise sósa og sveppasósa.

IMG_9322Kartöflugratín í framleiðslu

Í eftirrétt var volg brownies með heitri karamellusósu, þeyttum rjóma og jarðaberjum. Ég var afar ánægð með hversu vel þetta gekk allt og að mér tókst að reikna rétt magn af öllu, það var eiginlega það sem ég hafði mestar áhyggjur af, að eitthvað af réttunum myndi klárast áður en allir næðu að fá sér. Ég hefði ekki þurft að hafa áhyggjur af því, magnið passaði mjög vel nema að ég átti nokkuð marga lítra af sveppasósu afgangs! Það eru kannski ekki allir sem flokka sósu með drykkjarföngum eins og á okkar heimili, síst af öllu starfsfólk heilsuræktarstöðvar! 🙂 Ég var býsna ánægð með viðtökurnar, margir höfðu á orði að maturinn hefði alveg slegið út matinn sem þau fengu á Lækjarbrekku í fyrra. Eins fékk ég beiðni um að elda fyrir 150 manna afmælisveislu og 150 manna brúðkaup hins vegar, það hlýtur að vera góðs viti! Ég er hins vegar ekki á leiðinni út í þennan bransa – að elda fyrir áttfalda stórfjölskyldu er aðeins of mikið fyrir mig! 🙂 Eins og ég sagði þá er ég líka með alltof mikla fullkomnunaráráttu fyrir þennan bransa, ef einhverjum einum gesti myndi ekki líka maturinn þá væri það nóg til þess að ég myndi missa svefn í margar vikur yfir því! 😉

IMG_9324

En hérna kemur uppskriftin af laxa tartar á ananas. Uppskriftin er fengin úr bókinni Landliðsréttir Hagkaupa. Mér finnst þetta sjúklega góður réttur, kannski er hann ekki fyrir alla þar sem að í honum er hrár lax. Ég held að þessi réttur myndi falla þeim vel að geði sem eru hrifnir af sushi.

Uppskrift, gefur ca. 10-14 bita

  • 100 g laxaflak
  • 1 stk. hvítlauksgeiri
  • 2msk Maldon sjávarsalt
  • hluti úr ferskum ananas
  • 2-3 msk. sýrður rjómi
  • 1stk skarlottulaukur
  • ferskur pipar úr millu
  • 2 msk. ólífuolía
  • ½ búnt ferskur kóríander

Roð- og beinhreinsið laxflakið og skerið í litla teninga. Afhýðið og pressið hvítlauk, fínt saxið skarlottulaukinn, setjið saman við ólífuolíuna, og blandið við laxa teningana, kryddið með salti og pipar.

Framreiðið ofan á ferskan ananas sem búið er að skera í fallega bita, skreytið með sýrðum rjóma og kóríander laufum. Ég prófaði mig áfram með ananasinn, mér fannst of yfirgnæfandi að hafa mjög þykkar ananasbita og hafði því þá fremur þunna.

IMG_9334

14 hugrenningar um “Laxa tartar á ananas með kóríander

  1. Mikid gæfi eg nu fyrir ad hafa verid i tessari veislu min kæra 😀
    Heldur tu ad tad se ekki i lagi ad nota reiktan lax?

    • Ég veit ekki alveg með reykta laxinn. Ég held að það gæti alveg verið mjög gott en hins vegar er reyktur lax mjög ólíkur hráum laxi. Ég veit ekki hvernig marineringin kæmi út á reyktum laxi. Það þyrfti bara að gera tilraun og prófa. En svo væri líka hægt að nota ananasinn, hreinan reyktan lax og smá piparrótarsósu, ég held að það gæti komið vel út. 🙂

  2. Elsku Dröfn mín!
    Ég sit hérna og slefa yfir þessum myndum þar sem ég var nú þeirra gæfu aðnjótandi að vera á þessari frábæru árshátíð.
    Maturinn var himneskur, ekkert flóknari en það. Allt alveg sjúklega gott og hérna er umtalað hversu frábær maturinn var og hversu fagmannlega þú afgreiddir þetta.
    Takk fyrir að deila uppskriftunum hérna með okkur. Þessi sveppasósa verður sko næsta jólasósan á mínu heimili. Orðin algjört uppáhald.
    Knús,
    Sjöfn

  3. Rosaflott hjá þér, stelpa!
    Ég ætla að sækja um vinnu hjá Heilsuborg fyrir næstu árshátíð…en bara ef þú sérð um matinn aftur:)

    • Haha… Mandý, þú ættir að sækja um hvort sem ég sé um matinn eða ekki, fólkið í Heilsuborg er svo frábærlega skemmtilegt! 🙂

  4. Ég var í þessari veislu með manninum mínum sem vinnur hjá Heilsuborg. Þetta var alveg æææðislega gott hjá þér. Pinnamaturinn var rosalega góður og skemmtilega öðruvísi.

    B.kv.
    Ástríður

    astridur.comÉg var í þessari veislu með manninum mínum sem vinnur hjá Heilsuborg. Þetta var alveg æææðislega gott hjá þér. Pinnamaturinn var rosalega góður og skemmtilega öðruvísi.

    B.kv.
    Ástríður

    astridur.com

  5. Finnst þetta mjög djúsí hjá þér og er spennt fyrir að útbúa laxasnitturnar… er bara að spá í hvor ananasinn sé ferskur eða hvort hægt sé að nota ananas úr dós???
    kv.Agnes

    • Sæl, ég myndi mæla með ferskum ananans. Það er ekki hægt að líkja honum saman við niðursoðinn og ferski anansinn gerir svo mikið í þessari uppskrift.

      • æi já – það er svo satt – geri það ferskt ;o)

Skildu eftir svar við Mandý Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.