Tíu tillögur af páskamat


páskar1

Núna er páskarnir að bresta á og margir líklega farnir að huga að páskamatnum. Mér finnst páskarnir dásamleg hátíð, laus við kröfur og hefðir. Jólin geta verið svo mislöng, í versta falli bara tveir dagar. Páskarnir eru hins vegar alltaf fimm frábærir frídagar. Það fylgja páskunum engar kvaðir um miklar skreytingar, uppsetningu á útiseríum, jólatrjám og slíku, hvað þá gjafakaup og bakstur. Páskarnir skreyta sig að mestu sjálfir með vorsólinni og Krókusum sem gægjast upp úr moldinni. Glaðlegir páskaungar, heiðgular páskaliljur og túlípanar hér og þar í húsinu ásamt skreyttum páskagreinum að sjálfsögðu … voilà … páskaskreytingarnar eru í höfn! Ekki er verra að þetta er lögboðin „borða mikið súkkulaði“ hátíð, hvernig er ekki hægt að elska slíka hátíð?! 🙂

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Við höfum komið upp tveimur páskahefðum. Önnur er kannski svolítið skrítin en hún er sú að við opnum páskaeggin á föstudeginum langa. Okkur fannst svo leiðinlegt að opna ekki páskaeggin fyrr en á páskadag, næst síðasta frídaginn, í stað þess að geta notið þeirra yfir alla páskana. Við ákváðum því að breyta bara hefðinni! Hin hefðin er sú að ég hef páskamatinn í hádeginu á páskadag. Það er eitthvað svo hátíðlegt að borða páskamatinn í hádeginu með páskamessuna í útvarpinu og hækkandi vorsól á lofti fyrir utan gluggann. Það er engin regla hjá mér hvað ég hef í matinn á páskadag. Undanfarin ár hef ég þó haft kalkún, hann er svo góður og svo er ekki síðra að eiga afgang af honum á annan í páskum. Ég hef líka oft haft ýmisskonar lambakjöt og jafnvel grillað nautakjöt en það er þó sjaldgæfara. Í ár verður stórfjölskyldan í mat hjá foreldrum mínum á laugardeginum og við fáum lambakjöt, ég hallast því að því að hafa kalkún á páskadag. Mér finnst líka ofsalega gott að borða góðan fiskrétt á páskunum til þess að vega upp á móti kjötinu. Ég mun örugglega velja einn ljúffengan fiskrétt af listanum hér að neðan og elda hann á föstudaginn langa.

Hér eru tillögur af gómsætum páskamat (í engri sérstakri röð):

IMG_0796

Kalkúnn með brúnuðum kartöflum, sætkartöflumús, gljáðum gulrótum, waldorfsalati, rósakáli með beikoni og himneskri sósu

 

IMG_7407

Hægeldað lambalæri með kartöflum, rjómasósu, grænmeti og sætum kartöflum

 

Roas beef

Roastbeef með bearnaise sósu, kartöflugratíni og spínatsalati með jarðaberjum

 

IMG_7549

Hægeldaður lambahryggur með rauðvínssósu og hunangsgljáðu grænmeti

 

IMG_2352

Grillað lambafille með Hasselback kartöflum, grilluðu grænmeti og sveppasósu

 

Hamborgarhryggur

Gljáður hamborgarhryggur með kóksósu

 

IMG_2678

Grillað nautaribeye með heimagerðri bearnaise sósu og chilikartöflum með papriku

 

IMG_1941

Grilluð sirloin nautasteik með piparsósu

 

IMG_4237

Límónumarineruð laxaspjót með mangó- og avókadósalsa

 

IMG_8244

Ofnbakaður þorskur með pistasíusalsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu

 

IMG_0755

Ofnbakaður humar með heimatilbúnu hvítlaukssmjöri

20 hugrenningar um “Tíu tillögur af páskamat

  1. Namm namm ..
    Vel einhvað af þessu fíneríi ,er alinn upp við það að borða góðan fisk á föstudaginn langa ..Ég hef ekki komið þessum sið á með páskaeggið ,en stundum hef ég þjófstartað sko eftir að börnin fluttu að heiman:)Gleðilega páska

    • Páskaeggjaþjófstart er málið Brynja! 😉 Gaman að heyra að fleiri séu með þá hefð að borða fisk á föstudaginn langa. Gleðilega páska! 🙂

  2. Hægeldaða lambalærið og laxaspjótin er mitt val, þó allt sé freistandi.

  3. Ég ætla að hafa saltfiskrétt á föstudaginn langa, er einhver góð uppskrift hér á síðunni þinni frábæru?

  4. Allt rosalega girnilegt „valkvíði“ og takk fyrir að setja upp svona skemmtilega;)

  5. Held að maður verði bara að ræna thér til Danmerkur til að sjá um hátíðamatinn okkar. Alveg ofboðslega lítur thetta vel út…..thað er ekki hægt að velja

  6. Á hvaða hita á ofninn að verra þegar hægeldaður hryggur er eldaður og hvað langann tíma

  7. Mig hreinlega langar að hafa þetta allt er bara slefandi yfir þetta þetta er svo flott hjá þér. Ætli það verði ekki hamborgarahryggur og kalkún svo veit ég ekki meira

  8. Úff, langar í svo margt! Er sveppasósan með lambafille-inu þessi sem var á árshátíðinni hjá HB í fyrra? Hún var auðvitað bara best!
    En við verðum örugglega með kalkún og eitthvað fleira gott!
    Gleðilega páska Dröfn mín!

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.