Mikið var gaman að sjá viðbrögðin við færslunni hér að neðan með uppáhaldseftirréttunum mínum en þetta innlegg var heimsótt 7 þúsund sinnum á bara einum degi. Flestir leggja mikið upp úr matnum á gamlárskvöld og greinilegt að margir eru að leita að góðum uppskriftum fyrir kvöldið.
Við stórfjölskyldan verðum enn og aftur saman á gamlárskvöld, við fáum greinilega ekki nóg af hvert öðru yfir hátíðarnar! Að þessu sinni verðum við enn fleiri en á aðfangadagskvöld og verðum heima hjá foreldrum mínum. Í forrétt verður grafin nautalund með piparrótarsósu (hér er uppskrift af sósunni), í aðalrétt verður kalkúnn með dásamlega góðu meðlæti en ég mun svo sjá um eftirréttinn. Ég ætla ekki að hafa neinn af eftirréttunum 15, þó þeir séu allir afskaplega góðir. Ég ætla að hafa eftirrétt sem ég hef ekki enn sett inn uppskrift af hér á bloggið. Þetta er Bismarkbaka með súkkulaðisósu sem ég gerði í fyrsta sinn fyrir jólin í fyrra, sá eftirréttur komst strax í uppáhald hjá fjölskyldunni enda afskaplega jólalegur og góður. Ég sendi uppskriftina meira að segja í uppskriftasamkeppni Nóa og Siríus í fyrra, fullviss um þessi dásemd myndi myndi rústa keppninni …. sem hún gerði svo reyndar ekki! 🙂 Ég efast því eiginlega um að Nói og félagar hafi prófað uppskriftina því hún er svo hrikalega góð! 😉 Þessi eftirréttur er afskaplega einfaldur og þægilegur að gera, það er hægt að útbúa hann með góðum fyrirvara og setja í frysti. Súkkulaðisósuna er líka hægt að gera áður og hita hana svo bara aftur upp rétt áður en hún er borin fram.
Eina sem gæti verið snúið við þessa uppskrift er að nálgast
Marshmallow fluff sem er sykurpúðakrem. Það er oftast til í Hagkaup en þó ekki alltaf. Það hefur alltaf verið til á Amerískum dögum en stundum líka þess á milli. Ég keypti það í Hagkaup núna rétt fyrir jól og reikna því með að það sé til enn. En svo ætti nú líka að vera hægt að nálgast það í Kosti. Tegundin sem ég keypti í Hagkaup núna lítur út eins og þessi til vinstri, „Jet-Puffed marshmallow creme“ en dósirnar geta líka litið út eins og þessi til hægri, „Marshmallow Fluff“
Botn
- 20 kexkökur með súkkulaði (ég nota súkkulaði Maryland kex, fyrir Oreoaðdáendur er t.d. hægt að nota Oreokex)
- 2 msk. kakó
- 25 g brætt smjör
Kexið er maukað fínt i matvinnsluvél ásamt kakói og smjöri, blandað vel saman. Fóðrið botninn á 24-26 cm smellumóti með smjörpappír. Þrýsitð kexmylsnunni vel í niður á botninn í forminu og setjið í frysti á meðan kremið er útbúið.
Krem
- 5 dl rjómi
- 1 dós Marshmellow krem (Marshmallow fluff eða Marshmallow creme)
- nokkrir dropar piparmintu Extract
- nokkrir dropar rauður matarlitur
- 1 dl Bismark brjóstsykur frá Nóa og Siríus (+ til skreytingar)
Þeytið rjómann og blandið Marshmellowkreminu varlega saman við með sleikju. Passið samt að leyfa kreminu að halda „fluffinu“, þ.e. Marshmellowkremið á að vera í „klumpum“ í rjómanum. Bætið við Piparmintu extract eftir smekk (gætið þess samt að nota ekki of mikið af því, bara örfáa dropa). Setjið 1/3 af kreminu í aðra skál og leggið til hliðar.
Brjótið Bismark brjóstykurinn í morteli eða í matvinnsluvél. Blandið saman við stærri hluta kremsins og setjið ofan á botninn.
Takið afganginn af kreminu og setjið nokkra dropa af rauðum matarlit saman við það. Setjið nú rauða kremið ofan á það hvíta.
Setjið í frysti í minnst fimm tíma og takið út ca. einum tíma áður en hún er borin fram. Skreytið með Bismark brjóstsykri.
Súkkulaðisósa
- 125 g suðusúkkulaði
- 75 g smjör
- ½ dl. sykur
- ½ dl síróp
- ½ dl. vatn
Hitið súkkulaði, smjör, sykur, vatn og síróp saman í potti við hægan hita. Hrærið í öðru hverju þar til blandan er orðin slétt og samfelld. Berið fram heita með Bismarkbökunni.
Ummm ummmm namm nammm smjatt smjatt….hrikalega girnó 🙂
haha, fyndið.. en Ljúfmeti og lekkerheit er með nánast sömu uppskrift núna!
Þetta hlýtur þá að vera rosalega góður eftirréttur! 🙂
Vel við haefi að klára árið með eftirrétti af síðunni sem hefur mótað matseðil heimilisins að mestu síðan í haust!
Gleðilegt ár, kaera eldhúskona. Takk fyrir allar frábaeru uppskriftirnar á árinu og ég ásamt örugglega þúsundum annarra aðdáenda bíðum með eftirvaentingu eftir fleiri uppskriftum ásamt skemmtilegum sögum og fallegum myndum úr eldhúsinu í Kleifarselinu á nýju ári 😉
Gleðilegt ár Ragga mín og takk fyrir að vera minn stærsti aðdáandi! 🙂 Frábært hvað þú ert dugleg að prófa uppskriftirnar mínar og skilja eftir góðar kveðjur á síðunni! Knús og kram til ykkar allra í Kalamazoo!
Bauð uppá þessa í eftirrétt á nýársdag. Ég get mælt með henni, mér fannst hún svakalega góð og gaman að prufa þetta krem sem ég vissi ekki af áður. Hefði þó þurfti að bæta aðeins við smjörmagnið svo að botninn myndi bindast betur saman, hann molnaði svona frekar mikið hjá mér en var vitanlega ekki verri á bragðið fyrir það.
Gaman að heyra það Ingibjörg! 🙂 Það er líka spurning með botninn að baka hann í 10 mínútur og kæla svo, eins og maður gerir með bökur og ostakökur, ég held að það gæti bundið hann betur saman.
Frábær síða. Ég prófaði þessa köku á gamlárs og hún var sjúúklega góð. Nú var planið að hafa hana aftur á morgun og ég er búin að kaupa allt nema kremið sem er ekki til í bænum 😦 Er hægt að búa þetta krem til sjálf?
Sæl Elísabet og takk fyrir kveðjuna! 🙂 Ég hef ekki prófað að gera sykurpúðakrem en mér skilst að það sé ekkert mikið mál. Hér er til dæmis uppskrift af slíku kremi: http://www.chow.com/recipes/30296-homemade-marshmallow-creme Gangi þér vel! 🙂
Hvernig sýróp er best að nota í súkkulaðisósuna???
Ég hef bara notað þetta hefðbunda frá DanSukker.
Bakvísun: Vinsælustu eftirréttirnir | Eldhússögur
Takk fyrir þetta, frábær réttur. Ég er búin að gera þessa köku nokkrum sinnum en er búin að vera í mestu vandræðum með að fá Sykurpúðakremið. Ég endaði svo á því að stífþeyta eggjahvítur (3) og sykur (150gr) saman og nota það i staðin. Það er mjög gott og okkur fannst það í rauninni betra bara. Hef svo sett c.a. 1 og hálfan tappa af piparm. dropum og 35 gr af smjöri.
Takk annars enn og aftur fyrir þessa frábæru síðu, nota hana mikið 😉
Takk kærlega fyrir þessa góðu kveðju Lilja! 🙂 Frábært að heyra þína útfærslu á réttinum og það kemur sér örugglega vel fyrir aðra að nýta sér þetta ef að sykurpúðakremið er ekki fáanlegt. Bestu kveðjur og gleðlilega hátíð!
Þessi æðislega og einfalda kaka var í eftirrétt á áramótunum og allir svo hrifnir líka hjá krökkunum. Okkur fannat sérstakt að það væri súkkulaðisósa með en kemur ótrúlega vel út 🙂
Í aðalrétt var ég með kalkúnaskip og notaði kalkúnasósuna þína sem ég hef gert áður, sssvvvooo góð og meðlætið líka. Vorum svo með humarinn í hvítlaukssmjörinu í forrétt ÚÚÚÚÚÚFFFFF hannn er svo góður og allir borðuðu aðeins of mikið af honum gátu bara ekki hætt 😉 svo það var minna borðað af kalkúninum
Allt svo gott að vanda og gleðilegt nýtt ár
Vá, en frábært að heyra Halla Björk. Takk fyrir að vera svona duglega að gefa mér „feedback“ á uppskriftirnar, það gleður mig svo mikið! 🙂