Kryddkaka


Þessi uppskrift af kryddköku er komin frá ömmu minni, hún kallar kökuna reyndar kryddjólaköku. Ömmu er nú farið að bregða fyrir oft á blogginu mínu sem er eiginlega skrítið í ljósi þess að hún heldur því fram að sér þyki agalega leiðinlegt að elda mat og baka! En það hefur þó ekki komið í veg fyrir að hún eldi mat upp á hvern einasta dag og baki kökur auk þess sem hún vann meira að segja í eldhúsi í mörg ár. Amma segist samt ekkert skilja í því að ég hafi gaman að því að laga mat, sá áhugi sé allavega ekki frá sér kominn! 🙂 En amma er með á hreinu gamlar og góðar íslenskar uppskriftir eins og þessa kryddköku. Þetta er feikigóð kaka sem er afar einfalt að búa til. Amma setur yfirleitt í hana rúsínur en ég sleppi þeim, krakkarnir vilja þær ekki og mér finnst kakan líka betri án rúsína. Þessi uppskrift dugar í tvö jólakökuform sem eru  25 x 11 cm.

Uppskrift:

  • 500 gr hveiti
  • 150 gr púðursykur
  • 150 gr sykur
  • 3 egg
  • 250 gr smjör, mjúkt (við stofuhita)
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk kanill
  • 2 tsk negull
  • 2 tsk vanillusykur
  • 2 dl mjólk eða súrmjólk

Aðferð:

Ofninn stilltur 180 gráður. Allt hráefnið sett saman í skál og hrært saman. Deiginu skipt í tvö smurð jólakökuform,  25 x 11 cm, og þau bökuð við 180 gráður í ca. 45 mínútur.

 

12 hugrenningar um “Kryddkaka

  1. Var strax ákveðin í að prófa þessa þegar ég sá hana hjá þér. Tækifærið kom í dag og sé sko ekki eftir því. Er nokkuð viss um að hún verið bökuð reglulega á heimilinu hér eftir. Takk fyrir góða uppskrift.

  2. Þessi var bökuð í morgun og var tekin með í nesti í dagsferð í dag. Hún smakkast alveg rosalega vel 😉

  3. Hæhæ
    Er að baka þessa kryddköku. En er að bera saman við uppskrift drá móður minni frá því í húsmæðrarskólanum og þar setur hún Kakó en ég sé það ekki á listanum þínum! Er það ekki sem gefur litinn í kökuna?

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.