Sjóræningjasúpa


IMG_0362Ég veit ekki hvað er að gerast með mig og súpur þessa dagana. Á stuttum tíma hef ég gert tvenns konar súpur sem ég var mjög hrifin af, ég sem er alltaf að tala um að ég sé engin súpumanneskja! Hér gef ég upp uppskriftina af annarri þeirra. Þessi súpa er matarmikil og afar bragðgóð. Brauðteningarnir setja punktinn yfir i-ið og reyndar finnst mér ferski kóríanderinn líka gera það – hann setur alltaf punkt yfir i-ið í hjá mínum bragðlaukum! 🙂 Ég notaði uppskrift sem ég fann á sænskum vef en breytti henni frekar mikið. Til dæmis voru ekki sætar kartöflur í upprunalegu uppskriftinni en mér fannst það koma mjög vel út. Ég var eitthvað að velkjast með nafnið á súpunni, fannst frekar óþjált að kalla hana „súpu með hakki, kartöflum og sætum kartöflum“! Ég ákvað því án mikillar umhugsunar að kalla hana Sjóræningjasúpu, hvers vegna ekki?! 🙂 Líklega var ofarlega í huga mér bókin hans Jóns Gnarrs, Sjóræninginn, sem er ég var að klára að lesa og fannst frábær.

IMG_0385

Uppskrift:

  • 5-8 kartöflur, flysjaðar og skornar í bita
  • 1 sæt kartafla, flysjuð og skorin í bita
  • 1 laukur, saxaður smátt
  • 2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
  • ólífuolía
  • 1.2 líter nautakraftur
  • 1 gul paprika, skorin í bita
  • 1 rauð paprika, skorin í bita
  • 500-600 g hakk
  • 1 tsk cumin
  • 2 tsk paprikuduft
  • 2 tsk oregano
  • salt og pipar
  • 2-3 dl tómatasósa (ég notaði Jamie Oliver tómat/basiliku pastasósu, 1 krukku)
  • 2 tsk sambal oelek eða annað chilimauk
  • brauðteningar (t.d. með hvítlauk og osti)
  • ferskt kóríander (má sleppa)

Laukur og hvítlaukur er steiktur upp úr olíu í stórum potti þar til laukurinn er orðin mjúkur. Þá er hakkinu bætt út í og það steikt. Því næst er paprikunni bætt út í ásamt tómatsósunni og kryddunum. Svo er nautakraftinum bætt út í. Suðan er látin koma upp og þá er kartöflubitarnir og sætu kartöflubitarnir settir út í og súpan látin malla í ca. 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru soðnar. Súpan er smökkuð til með salti, pipar, sambal oelek og fleiri kryddum ef þarf. Súpan er borin fram með brauðteningum og fersku kóríander.

Fyrir þá sem vilja búa til eigin brauðteninga sem eru auðvitað enn betri en þessir tilbúnu þá er hér uppskrift:

Brauðteningar:

Hitið ofn í 200 gráður. 10 sneiðar af góðu franskbrauði (helst allavega dagsgamalt) skornar í teninga og velt upp úr blöndu af ca. 2 dl af góðri ólífuolíu, 3-4 rifnum eða fínsöxuðum hvítlauksgeirum og maldonsalti. Það er hægt að bæta við 1/2 tsk af basilku og timjan fyrir þá sem vilja.  Brauðteningunum er raðað á ofnplötu, klæddri bökunarpappír og þeir bakaðir við 200 gráður þar til teningarnir eru passlega stökkir og dökkir (ca. 20 mínútur).

IMG_0387

13 hugrenningar um “Sjóræningjasúpa

  1. Mér líst rosalega vel á þessa – ætla að prófa hana fljótlega.
    Þú segir að það hafi ekki verið sætar kartöflur í upprunalegu uppskriftinni – var þá meira af „ekkisætum“ kartöflum ? ( annað afkvæmið er greinilega ekki nógu vel upp alið, því það borðar ekki sætar kartöflur )

    • Gaman að heyra það Birgitta! 🙂 Það var ekkert mikið meira af kartöflum, mér finnst gott að hafa súpuna matarmikla og sæta kartaflan kom sem viðbót. Það þarf eiginlega bara að meta þetta svolítið. Ef ég hefði ekki sæta kartöflu myndi ég hafa allavega 10-12 kartöflur, fer eftir stærð þeirra.

  2. Takk fyrir góða uppskrift, þessi súpa er algerlega unaðsleg, ég átti reyndar ekki oregano og chilimauk og notaði í staðinn Mexikanskt krydd sem kom vel út og allir voða glaðir. Ég á eftir að prófa margar uppskriftir af þessari síðu því þær eru hver annarri girnilegri…:) kv Brynja

  3. Eldaði þessa i tilefni sjómanna dagsins og hún gerði lukku, takk fyrir okkur 😃

  4. Sæl Dröfn. Er að fara að halda upp á afmæli um helgina og ætla að bjóða í hádegismat. Er þessi súpa ekki tilvalin í það? Er búin að vera svo oft með kjûklingasúpu og langar að gera eh nýtt.

    • Jú, það er gott val. Þetta er ljúffeng súpa og ég hef fengið margar góðar kveðjur vegna hennar þannig að hún virðist vera vinsæl! 🙂

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.