Beikonpasta


IMG_7892

Við vorum svo ánægð með pastaréttinn sem ég eldaði um daginn að ég ákvað að endurtaka leikinn og prófa mig áfram með enn einfaldari pastarétt. Ég átti smá dreitil afgangs af rauðvíni sem mig langaði líka að koma út og það líka svona smellpassaði við þennan pastarétt. Kosturinn við pastarétti er að það er hægt að galdra fram ótrúlega góða slíka rétti úr fáum og einföldum hráefnum. Til dæmis lætur þessi hráefnalisti hér að neðan lítið yfir sér en úr honum varð þessi dýrindis pastaréttur. Ósk var meira að segja á því að þetta væri mögulega einn sá besti pastaréttur sem hún hefur smakkað! Það er reyndar ekki hægt að neita því að það er varla hægt að klúðra rétti sem í er hálft kíló af beikoni, sá réttur hlýtur alltaf að verða góður! 🙂

Uppskrift:

  • 500 g pasta
  • 500 g extra þykkt beikon (ég notaði frá Ali), skorið í bita
  • 3 tsk ólífuolía
  • 1 lítill rauðlaukur, saxaður smátt
  • 1-2 tsk chili krydd
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 2 öskjur kokteiltómatar, skornir í tvennt (eða ca. 4-5 vel þroskaðir tómatar skornir í litla bita)
  • 2/3 dl rauðvín
  • fersk basilika (ég átti hana ekki til og notaði þurrkaða basiliku ásamt ferskri steinselju)
  • 1,5 dl parmesan ostur, rifinn
  • klettasalat
  • salt & pipar

IMG_7888

Pasta soðið eftir leiðbeiningum.
Beikon steikt þar til það er orðið dökkt og stökkt. Þá er það veitt upp úr pönnunni með gataspaða og lagt ofan á eldhúspappír til að láta mestu fituna renna af. Ca. 3/4 af fitunni af pönnunni hellt af og ólífuolíunni, lauk og chili bætt út á pönnuna. Laukurinn steiktur þar til hann er orðin mjúkur og glær. Þá er hvítlauknum bætt út í og hann steiktur í stutta stund. Því næst er tómötum ásamt basiliku bætt út í og sósan látin malla í ca. 5 mínútur. Að síðustu er rauðvíninu bætt út í, sósan látin ná suðu og er henni leyft að malla við meðalhita nokkrar mínútur. Sósan er smökkuð til með salti, pipar og fleiri kryddum ef með þarf. Að lokum sósunni blandað saman við rifinn parmesan ost, klettasalat, beikon og sjóðandi heitt pasta. Öllu blandað vel saman og borið fram með góðu brauði. Svona lagði Jóhanna Inga skemmtilega á borðið! 🙂

IMG_7894

5 hugrenningar um “Beikonpasta

  1. Ali. Býr. Ekki. Til. Extra. Þykkt. Beikon.

    Gætir þurft að brjóta odd af oflætinu og fara í Pylsumeistarann. Sem NB er ekki snobbbúð heldur það næsta sem Ísland hefur nokkurn tímann komist kjötborði í útlöndum. 😉

    Beikonið er handskorið og æðislegt.

    Rétturinn lítur annars ljómandi vel út :þ

  2. Mjög góður réttur. Ég notaði nú reyndar bara venjulegt beikon og það var fínt.

  3. Ég verð eiginlega að segja ykkur frá. Þessi réttur kom verulega á óvart. Ótrúlega góður og ég mun elda hann aftur fyrir fjölskylduna. Takk fyrir mig. kk Katrín

  4. Dásamlega góður réttur. Lét heimilsfræði valið í skólanum sem ég kenni elda þennan rétt og þeim fannst hann mjög góður.
    Takk kærlega fyrir uppskriftirnar Dröfn! Ég hef nýtt þær margar í kennslunni hjá mér 🙂

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.