Síðastliðið sumar fór ég í fyrsta sinn í 17 sortir og smakkaði allskonar gúmmelaði bollakökur. Þar sem ég sat og naut hvers bita renndi ég augunum yfir afgreiðsluborðið og fannst hver kakan þar annarri girnilegri. Ég ákvað að leggja fljótt leið mína aftur í 17 sortir og prófa einhverja góða köku. Þegar við vorum með sænska gesti hjá okkur um daginn var aldeilis gott tilefni að bjóða upp á ljúffenga köku því svo vildi til að þau áttu brúðkaupsafmæli og fengu sama dag þær fréttir að þau væru orðin íbúðareigendur. Við skáluðum fyrst yfir góðum kvöldverði.
Því næst reiddi ég fram þessa glæsilegu köku úr 17 sortum, súkklaðiköku með saltkaramellu og poprocks.
Hrikalega góð kaka og sænsku gestirnir okkar áttu ekki orð yfir þessari dásemdarköku! 🙂
Ég mæli með því að þið smakkið á þessum gómsætu hnallþórum hjá 17 sortum!
En ef ég vík þá að uppskrift dagsins. Mér finnst afar gaman að gera tilraunir með nautahakk og búa til eitthvað gott úr því. Mér finnst sömuleiðis voðalega gott að blanda saman fetaosti, döðlum og beikoni og nota það óspart tilraunum mínum. Hérna gerði ég tilraun með að blanda slíku gúmmelaði saman við nautahakk og útkoman kom skemmtilega á óvart. Öll fjölskyldan var sammála um að þessi tilraun hefði heppnast feykivel og ég mæli með því að þið prófið! 🙂
Uppskrift:
- 600-700 g nautahakk
- ½ lítill laukur, fínhakkaður
- 1 egg
- ½ dl brauðmylsna
- ½ dl mjólk
- salt og pipar
- annað krydd eftir smekk
- 180 g beikon, skorið í bita
- 1 meðalstór rauðlaukur, saxaður smátt
- 120 g döðlur, saxaðar fremur smátt
- 180 g fetaostur (fetaostakubbur)
- salt & pipar
- chiliflögur
- 1 dós tómatar í dós (ca. 411 g)
- 1 1/2 msk tómatmauk
- 1 1/2 tsk paprikukrydd
- chili krydd eða annað gott krydd
Ofn hitaður í 200 gráður. Laukurinn steiktur á pönnu þar til hann er orðinn mjúkur. Þá er hann veiddur af pönnunni og bætt saman við hakkið, eggið, brauðmylsnuna, mjólk og krydd, allt blandað vel saman. Helmingurinn af kjötblöndunni er settur ofan í smurt eldfast mót og mótað í hleif. Rauf gerð eftir endilöngum hleifnum. Beikonið er því næst steikt á pönnu. Þegar það nálgast að verða stökkt er rauðlauk og döðlum bætt út á pönnuna og allt steikt í ca. 3 mínútur. Að lokum er fetaosturinn mulinn út á pönnuna og öllu blandað saman. Ca. 1/2-1/3 af blöndunni er tekinn af pönnunni og hleifurinn fylltur með henni. Restinni af kjötblöndunni er lögð ofan á og hleifurinn mótaður og gerður vel þéttur svo blandan leki ekki út. Gott er að smyrja kjöthleifinn með bræddu smjöri. Því næst er tómötum í dós bætt á pönnuna út í restina af döðlu- og beikonblönduna. Þá er tómatmauki, paprikukryddi og chilikryddi bætt út í og leyft að malla í 3-4 mínutur. Að lokum er tómatmaukblöndunni yfir og í kringum kjöthleifinn. Hitað í ofni við 200 gráður í um það bil 25-30 mínútur eða þar til hleifurinn hefur eldast í gegn. Borið fram með t.d. sætkartöflumús eða hrísgrjónum og aioli sósu.
Einföld aioli sósa:
- 1 dl majónes
- 3 hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk sítrónusafi
- salt og pipar
Öllu blandað vel saman og kælt vel áður en borið fram.
Öll fjölskyldan mín er líka sammála að þessi réttur er æði 😉 Döðlur eru æði í mat.
Allir fengu sér aftur á diskinn sem er svo gaman og þá verð ég svo glöð 😊
Meira að segja var með eitt aukabarn sem vildi líka aftur á diskinn sinn.