Gleðilega hátíð! 🙂 Þessi 17. júní var ansi blautur og hráslagalegur en á þjóðhátíðardaginn fyrir tveimur árum var ég nýfarin að blogga og þá skrifaði ég þessa færslu. Sá þjóðhátíðardagur var það hlýr og góður að við gátum borðað kvöldmatinn úti en sumarið 2012 var reyndar óvenju þurrt og hlýtt. Í kvöld voru sem sagt engar aðstæður til þess að grilla eða borða úti en samt sem áður snæddum við afar ljúffenga máltíð sem ég ætla að setja hér inn á bloggið sem allra fyrst.
Um síðustu helgi var matarboð hjá foreldrum mínum þar sem við systkinin lögðum til nokkra rétti. Ég tók að mér eftirréttinn eins og oft áður, mér finnst ofsalega gaman að búa til eftirrétti! 🙂 Að þessu sinni prófaði ég mig áfram með Pavlovu í formi. Það er rosalega þægilegt að gera Pavlovu í eldföstu móti, bæði fljótlegt og einfalt. Að þessu sinni setti ég allskonar gúmmelaði saman við réttinn sem kom afar vel út. Ég átti kassa með súkkulaðirúsínum og salthnetum og sá í hendi mér að það færi vel út í rjómann. Hins vegar er litla frænka mín með bráðaofnæmi fyrir salthnetum þannig að ég notaði bara súkkulaðirúsínurnar að sinni en ætla að prófa að hafa líka salthneturnar næst. Uppskriftin er stór en það er ekkert mál að helminga hana og nota þá minna eldfast mót.
Uppskrift (f. 8 – 10)
- 8 eggjahvítur
- 400 gr sykur
- 1/2 tsk salt
- 3 tsk edik (t.d. borðedik eða hvítvínsedik)
- 1 poki Nóa lakkrískurl (150 g)
- 1/2 líter rjómi
- 150 g Nóa og Siríus súkkulaðirúsínur
- 1 pakki kókosbollur (4 stykki), skornar fremur smátt
- 100 gr Siríus suðusúkkulaði + 1-2 msk rjómi eða mjólk
- Ber og ávextir, t.d. jarðarber, bláber, hindber, blæjuber, kíwi, vínber og ástaraldin
Ofn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur stífþeyttar, sykri bætt smám saman út í ásamt ediki og salti. Að síðustu er lakkrískurlinu bætt út í. Marengsinn settur í eldfast mót (mótið sem ég notaði er ca. 35×25 cm.) og bakaður við 175 gráður í 30 mínútur, þá er lækkað niður í 135 gráður og bakað í 30 mínútur til vibótar. Eftir það er slökkt á ofninum og marengsinn látin kólna í ofninum, helst yfir nóttu, þó ekki nauðsyn. Rjóminn er þeyttur, Siríus súkkulaðirúsínum er því næst bætt út í ásamt kókosbollunum og rjómanum síðan smurt yfir marengsinn.
Skreytt með berjum og ávöxtum. Ég notaði jarðarber (2 box), bláber (1 box), blæjuber (1 box) og 2 ástaraldin. Að lokum er suðusúkkulaði brætt, mjólk eða rjóma blandað saman við til að þynna blönduna og súkkulaðinu dreift yfir berin og ávextina.
Þetta lítur ótrúlega vel út! Svo vel að ég ákvað að baka marengsinn í gærkvöldi og bjóða upp á þetta í afmælinu mínu á eftir. Núna, morguninn eftir, er ég að taka marengsinn úr ofninum, búin að fara eftir öllum leiðbeiningunum 100% og með eins form og þú, og marengsinn er stökkur og hálfbrúnn ofaná og fallinn saman allsstaðar nema á köntunum þar sem er pínu brennt en undir efsta laginu glittir í mjúkt marengs“deigið“…. Get ég notað þetta eða þarf ég að kaupa mér marengs út úr búð?
(Er með mjög góðan ofn, bara 5 ára gamlan frá Siemens, svo ég get ekki kennt honum um þetta held ég…. veit ekki hvað fór úrskeiðis…)
Erfitt að segja en ég held að þú getir alveg tekið sénsinn. Það þarf mikið til að marengs klikki og þegar hann er í svona formi þá þarf hann ekker að líta vel út. Ef hann er ekki brenndur (með brunabragði) þá myndi ég bara setja vel af rjóma ofan á hann. Gangi þér vel!
Gerði þennan rétt og fór með í vinnuna, sló heldur betur í gegn allir að dásema hann 🙂
Mistókst alveg svakalega fyrst þegar ég gerði hann, marengsinn féll alveg og varð eiginlega svartur. En held ég hafi ekki þeytt eggjahvíturnar nógu vel áður en sykurinn fór út í. Svo þegar ég gerði hann í annað sinn varð hann rosa flottur rétt kíkti á hann þegar ég slökkti á ofninum og hafði yfir nótt. Um morguninn var hann fallinn, finnst það svo skrítið en var ekkert smá góður, var alveg þess virði að eyða 16 eggjahvítum;) . Ætlað prófa að taka hann út úr ofninum þegar hann er tilbúin næst 🙂
Ég veit ekki alveg af hverju þetta gerist, ég hef ekki lent í þessu. Spurning eins og þú segir að taka bara marengsinn beint úr ofninum.
Bakvísun: Pavlova A� formi meA� lakkrA�skurli og sA?kkulaA�irA?sA�num | Hun.is