Djöflaterta


DjöflatertaFlensan heldur enn fjölskyldunni í heljargreipum. Ég er aðeins að skána en börnin eru enn veik. Vetrarfríið hefst á morgun og aldrei þessu vant verður heimilisfaðirinn í fríi líka. Sem betur fer vorum við búin að ákveða að taka því rólega og vera bara heima. Vonandi fer krökkunum samt að skána þannig að við getum gert eitthvað skemmtilegt saman í fríinu.

Í þó nokkurn tíma hefur mig langað í góða sneið af djöflatertu. Þetta var töpuð barátta frá byrjun, auðvitað endaði það með því að ég bakaði djöflatertuna – enda ber tertan nafn með rentu! Ég hef verið að skoða og prófa mig áfram með smjör annars vegar og olíu hins vegar í súkkulaðikökur. Ef notuð er olía í súkkulaðiköku þá verður hún mjög mjúk, mýkri en súkkulaðikökur sem í er smjör. Hins vegar verða kökur með smjöri bragðbetri. Þegar notað er smjör er líka auðveldara að hræra lofti í deigið, það verður „flatara“ með olíu. Að þessu sinni notaði ég smjör og var afar sátt við djöflatertusneiðina sem ég gat loksins notið eftir margra daga löngun! 🙂

IMG_3919IMG_3929

Uppskrift:

  • 250 ml sjóðandi vatn
  • 6 msk bökunarkakó, sigtað
  • 120 g dökkur muscovado sykur eða púðursykur
  • 130 g smjör, við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 2 stór egg
  • 230 g hveiti
  • ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk matarsódi
  • 2 tsk vanillusykur

Ofn hitaður í 180 gráður og tvö 20 cm form smurð að innan (ath. þetta eru fremur lítil form). Kakó og muscovado sykur (eða púðursykur) er hrærður út í heita vatninu í skál, skálin lögð til hliðar.

Smjör og sykur hrært saman í hrærivél þar til að blandan verður létt í sér. Þá er eggjunum bætt út í, einu í senn, hrært á milli. Því næst er hveiti, lyftidufti, matarsóda og vanillusykri bætt út. Að lokum er vatninu sem búið var að blanda með sykri og kakó bætt út í og deiginu blandað vel saman. Deiginu er svo skipt á milli bökunarformanna tveggja og bakað í um það bil 30 mínútur við 180 gráður eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kökurnar eru látnar kólna alveg áður en kremið er sett á milli botnanna og smurt utan á kökuna.

IMG_3907IMG_3909

Krem:

  • 120 g smjör, við stofuhita
  • 5 msk kakó
  • 3 msk síróp
  • 250 g flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1 msk mjólk
Smjörið hrært þar til það er orðið kremkennt. Flórsykur, vanillusykur og kakó sigtað saman og blandað smátt og smátt við smjörið. Ef kremið er of þykkt er hægt að bæta við meiri mjólk. Að lokum er sírópi hrært saman við. Kremið er sett á milli botnanna og smurt á alla kökuna þegar hún er orðin alveg köld.
IMG_3925
IMG_3943 IMG_3910

7 hugrenningar um “Djöflaterta

  1. Líst vel á þessa uppskrift, hef einnig verið á „útkikki“ eftir góðri súkkulaðikökuuppskrift. Ég reikna með að þú setjir vatnið út í degið á eftir þurrefnunum, er það ekki?
    Kveðja
    Margrét Urður súkkulaðiköku elskandi

    • úpps … þú ert með athyglina á hreinu Margrét Urður súkkulaðiköku elskandi! 🙂 Ég gleymdi að setja inn hvenær vökvanum er bætt út í, búin að laga það núna. Takk fyrir kveðjuna! 🙂

  2. Gerði þessa á afmælisdag sonar míns, ótrúlega góð aðeins öðruvísi súkkulaðikaka sem er svo gaman að fá 🙂

  3. Bakvísun: The beginner's travel guide to explore Iceland in 7 days - Pickyourtrail Blog

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.