Eplakaka með rjómaosti


Eplakaka með rjómaosti

Jóhanna Inga dóttir mín er ekkert sérstaklega hrifin af súkkulaðikökum. Helst vill hún þá bara hafa kökuna án súkkulaðikrems. Það kom því ekki annað til greina á afmælinu hennar um daginn en að baka líka uppáhaldskökuna afmælisbarnsins, eplaköku. Við mæðgur deilum þessari ást á eplakökum. Reyndar þá finnst mér eplakökur og flestar aðrar kökur sem byggðar eru á einhverskonar sandkökugrunni ekkert henta sérstaklega vel á afmælishlaðborð. Slíkar kökur eru hins vegar himneskar einar og sér sem til dæmis sunnudagskaka eða til þess að bjóða í kaffiboði þar sem bara ein eða tvær kökur eru á borðum. Í afmælisboðum er ég hrifnari af því að vera með marengstertur, súkkulaðikökur, ostakökur og aðrar slíkar kökur sem eru meira svona gúmmelaði. Ég tek líka eftir því að þær kökur eru vinsælli í afmælum heldur en sandkökur. Þessari eplaköku var reyndar gerð afar góð skil í afmælinu. Að þessu sinni prófaði ég að gera hana rjómaosti og það gerði hana ákaflega safaríka og mjúka.

IMG_6984

Uppskrift:

  • 2 dl sykur
  • 120 ml olía
  • 1 tsk vanillusykur
  • 200 g rjómaostur
  • 2 stór egg
  • 2 dl hveiti
  • 1.5 tsk lyftiduft
  • kanelsykur
  • 3 epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í báta

Ofn hitaður í 175 gráður við undir- og yfirhita og ca. 24 cm smelluform smurt að innan. Sykur, olía, vanillusykur og rjómaostur er hrært vel saman. Þá er eggjunum bætt út í, einu í senn og hrært vel. Því næst er hveiti og lyftidufti bætt út í og hrært við lágan hraða þar deigið hefur blandast vel saman. Deiginu er svo hellt í smurt formið. Eplabátunum er velt vel upp úr kanelsykri og því næst stungið hér og þar ofan í deigið. Að síðustu er dálítið af kanelsykrinu stráð yfir kökuna. Bakað í ofni í ca 50-60 mínútur eða þar til kakan er bökuð í gegn í miðjunni og farin að losna frá forminu. Ef kakan fer að verða dökk í ofninum áður en hún er bökuð í gegn er gott að setja álpappír yfir hana. Best borin fram heit með þeyttum rjóma eða ís.

IMG_7078

8 hugrenningar um “Eplakaka með rjómaosti

  1. Ég ákvað að baka þessa köku um leið og hún birtist á blogginu, enda alltaf svo mikið fyrir eplakökur. Hún er mjög mjúk og bragðgóð, alveg frábær með smávegis af þeyttum rjóma. Takk fyrir að deila uppskriftinni með okkur 🙂

  2. Loksins gerði ég þessa köku og rosalega er hún góð, alveg frábær með ís.
    Skar niður 3 epli en var búin að þekja botninn í eplum en átti enn eftir slatta. Skar þau reyndar niður mjög þunnt. Skerð þú þau í þykka báta ?

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.