Bakaðar vöfflur


Bakaðar vöfflur

Við hjónin vorum að koma ofan úr Hvalfirði þar sem við eyddum ljúfum tíma á hótel Glym. Hótel Glymur er mjög hlýlegt og notalegt hótel. Útsýnið frá hótelinu er óborganlegt, við nutum þess yfir góðu vínglasi áður en við snæddum góða þriggja rétta máltíð á hótelinu.

Seinna um kvöldið fórum við í heita pottinn undir ævintýralega stjörnubjörtum himni. Morgunverðarhlaðborðið var afskaplega ljúffengt. Ef á slíku borði eru egg í allskonar útgáfum, ostar, reyktur lax og ávextir þá er ég glöð og Hótel Glymur stóð undir þeim væntingum.

image

image

Instagram áhangendur Eldhússagna gátu séð myndir frá þessari ferð. Mér finnst þetta Instagram svo ægilega skemmtilegt! Það er nú samt týpískt að loksins þegar ég kemst á Instagram þá eru allir að færa sig yfir á Cinemagram! 🙂 Aldrei að vita nema að Eldhússögur prófi sig áfram þar líka!

Það áttu sér stað tilraunir í eldhúsinu í Kleifarselinu í gær. Ég eignaðist stórsniðug silikon form úr Kokku sem notuð eru til að baka vöfflur í ofni. Ég var ægilega spennt að prófa nýju formin mín og stóðst ekki mátið að búa til vöfflur áður en við hjónin fórum í Hvalfjörðin. Börnin og vinir þeirra sem voru í heimsókn voru ekkert ósátt við þessar tilraunir! Einn af stóru kostunum við þessi form er að allar vöfflurnar verða tilbúnar á sama tíma.

vöfflur

Ég notaði hér um bil sömu uppskrift og ég nota fyrir venjulegar vöfflur en notaði meira smjör. Vöfflurnar urðu rosalega góðar og í raun ekkert líkar þeim sem bakaðar eru í vöfflujárni. Bragðið var það sama en áferðin allt önnur. Þær eru töluvert þykkari og minna á belgískar vöflur. Með því að baka vöfflurnar í þessum formum verða þær stökkar að utan og mjúkar og djúsí að innan. Vöfflurnar slógu algjörlega í gegn hjá öllum börnunum fimm sem sögðu öll sem eitt að þessar vöfflur væru mikið betri en hefðbundnar vöfflur. Ég verð að vera sammála þeim, þetta voru dásamlega góðar vöfflur og afskaplega auðvelt að baka þær. Ég er strax farin að upphugsa fleiri leiðir til þess að nota þessi form. Spenntust er ég fyrir því að prófa að baka brownies í formunum. Það yrði örugglega dúndur eftirréttur sem væri gaman að skreyta og bera fallega fram. Einnig væri sniðugt að nota gerdeig eins og notað er í belgískar vöfflur og gera ósætar vöfflur með kannski beikoni, ostum eða einhverju slíku. Möguleikarnir eru býsna margir!

IMG_9265

Hér er önnur hliðin bökuð, svo er vöfflunum hvolft á bökunarplötu og þær bakaðar í nokkrar mínútur í viðbót.

IMG_9267

Uppskrift:

  • 3 egg
  • 100 g smjör
  • 400 ml mjólk
  • 250 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 2 tsk sykur

Ofn hitaður í 220 gráður. Smjörið brætt og eggin pískuð létt saman, þá er smjörinu bætt út í eggin. Því næst er mjólkinni bætt út í og hún pískuð saman við eggin og smjörið. Að lokum er þurrefnunum bætt út og og degið hrært saman með písk þar til það er slétt og laust við kekki. Deginu er hellt í formin og bakað í ofni í ca. 8-9 mínútur. Þá eru formin tekin út og vöfflunum hvolft á ofnplötu og þær bakaðar í ca. 5 mínútur til viðbótar (samkvæmt leiðbeiningum á pakkningunum). Ég reyndar bakaði þær í ca. 8 mínútur til þess að fá meiri lit á vöfflurnar. Við bárum fram vöfflurnar með rjóma og sultu annars vegar …

IMG_9277

og Nutella og jarðaberjum hinsvegar …

Bakaðar vöfflur

9 hugrenningar um “Bakaðar vöfflur

  1. Jæja…. þessar vöfflur fengu mig til að arka út í búð og fjárfesta í svona fallegu formi. Ekki mikil vöfflumanneskja en það er eitthvað við þessar vöfflur….mumm, hlakka til að prófa um helgina 🙂

    Annars er ég roooosa spennt yfir pælingum þínum yfir brownis… hlakka til að fylgjast með 😉

    Kveðja úr Kópavogi,
    Íris

    • Spennandi að vita hvað þér finnst um þessar vöfflur Íris! 🙂 Ég er einmitt að fara í Brownies tilraunir um helgina, ég blogga að sjálfsögðu um það! 🙂

  2. veistu…. ég var vinsælasta mamman í hverfinu. Þar sem þetta er svo lítið mál, þá skellti ég í formin 3 sinnum um helgina….. alveg sjúklega gott 😉
    Takk fyrir að deila þessu öllu með okkur.

    Ein spurning, hefur þú einhvern tímann eldað úr kjúklingahakki ?

    kv. Íris

    • Haha… ég skil að þú hafir verið vinsæl í hverfinu Íris! 🙂 Þetta eru hrikalega góðar vöfflur!
      Ég hef ekki verið að elda úr kjúklingahakki, það væri spennandi að skoða það. Ertu að hakka kjötið sjálf? Ég hef nú ekki séð kjúklingahakk hérna í búðum.

  3. Ekki svo öflug húsmóðir að hakka og græja……. hehe 🙂 Ég keypti það í Víði, 600gr á 400kr. Eg prufaði að nota það í Taco og kryddaði það vel, kom bara nokkuð vel út. Mér var sagt að það þyrfti að krydda hakkið betur en nautahakk. Síðan var einhver að tala um að þetta væri hænuhakk… hver sem munurinn er nú….. ekki alveg með það á hreinu 😉 En ódýr matur, stúdfullur af próteini og engin fita (2-4%) … gæti verið verra 🙂

  4. Er búin að splæsa í formin – algjör snilld!
    Hlakka til að sjá fleiri útfærslur 🙂

  5. Bakvísun: Súkkulaði-bananavöfflur | Eldhússögur

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.