Bananakaka með kanilívafi


Bananakaka með kanilívafi

Núna er kominn nóvember og aðventan mun skella á áður en þið vitið af – trúið mér! Í ár hef ég sett sjálfri mér afar háleit markmið varðandi jólin og þetta „búin að öllu fyrir jólin“ dæmi! Þannig er mál með vexti að síðastliðin ár hef ég verið í meistaranámi í háskólanum og ég get staðfest það að þegar húsmóðir þarf að fara í jólapróf, svo ekki sé talað um að skila af sér meistararitgerð fyrir jól auk þess að eiga eiginmann sem er á vöktum sólarhringum saman, þá hefur það býsna slæm áhrif á jólaundirbúninginn – eða réttara sagt andlega heilsu húsmóðurinnar. Ég er svona týpa sem vil ekki slá af neinu, mér dytti til dæmis aldrei í hug að sleppa því að senda út 100 stykki jólakort. Í fyrra var ég að skila af mér meistararitgerðinni minni um jólin, vann við hana nótt og dag og ákvað því að pakka inn jólagjöfunum á mjög einfaldan hátt, þetta varð útkoman.

548770_485563878151708_1794840187_nJá, þið skiljið kannski vandamálið! Fyrir nokkrum árum setti einhver vinur minn á Facebook status á Þorláksmessukvöldi um að viðkomandi væri búinn að öllu og sötraði hvítvínsglas við kertaljós (sem ætti að vera ólöglegur status by the way!). Á þeim tímapunkti sat ég sveitt við jólagjafainnpökkun, þrif og fleira og hét sjálfri mér því að næstu jól þá væri það ég sem sæti með hvítvínsglas á Þorláksmesskvöld við arineld, búin að öllu. Til að gera langa sögu stutta þá hefur þetta einfaldlega ekki tekist enn. Hluti af vandamálinu er að ég er með frestunaráráttu í sambland við fullkomnunaráráttu – blanda sem virkar býsna illa verð ég að segja. Í ár mun þetta hins vegar takast hjá mér, ég finn það á mér! Núna er markmiðið mitt að vera búin að pakka inn jólagjöfum, gera jólakort, kaupa jólaföt á börnin og allt þetta sem þarf að gera fyrir jólin, áður en aðventan rennur upp. Svo ætla ég bara að njóta aðventunnar án nokkurra kvaða. Ég ákvað að skrifa þetta hér á alheimsnetið til þess að veita sjálfri mér aðhald! 😉 Í guðanna bænum ýtið við mér þegar aðventan nálgast – ég ætla að standa við þetta í ár! Satt að segja er ég komin vel áleiðis, ég er næstum því búin með jólagjafirnar, búin að kaupa jólafötin á börnin og er að byrja að vinna í jólakortunum!

Þessar jólahugleiðingar eiga svolítið við uppskrift dagsins því í henni er kanill og kanill er jú einstaklega jólalegt krydd. Ég elska kanil, sérstaklega í allskonar bakkelsi. Ég elska líka bananakökur. Það var því meiri snilldin að blanda þessu tvennu saman. Kakan sló í gegn hjá fjölskyldunni, þið verðið bara að prófa hana um helgina! 🙂

IMG_0946

Uppskrift:

  • 130 g smjör
  • 200 g sykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • 2 stór egg
  • 260 g Kornax hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk kanill
  • 2 stórir bananar eða 3 litlir, stappaðir

Kanilsykurblanda

  • 1 dl sykur
  • 2 msk púðursykur
  • 3 tsk kanill

Ofn hitaður í 175 gráður og smelluform (22-24 cm) smurt að innan. Smjör og sykur hrært saman þar til að blandan verður létt og ljós. Þá er eggjunum bætt út í, einu í senn, hrært á milli. Því næst er vanillusykri, hveiti, matarsóda og kanil bætt út í og hrært þar til allt hefur blandast saman. Að lokum er stöppuðum banönum blandað vel saman við deigið. Bökunarformið er smurt að innan og 1/3 af deiginu er smurt yfir botninn á forminu. Hráefnunum í kanilsykurblöndunni er blandað vel saman og 1/3 hennar dreift jafnt yfir deigið.

IMG_0930Þá er helmingnum af deiginu sem eftir er smurt yfir kanilsykurblönduna. Það er allt í lagi þó það náist ekki alveg að dreifa úr deiginu út í alla kanta. Því næst er helmingnum af kanilsykurblöndunni dreift yfir deigið. Að lokum restinni af deiginu smurt ofan á og endað á því að strá restinni af kanilsykurblöndunni yfir. Bakað í ofni við 175 gráður í 45-55 mínútur eða þar til kakan er farin að losna frá köntunum og kökuprjóni sem stungið er í miðja kökuna kemur hreinn út.

IMG_0950

8 hugrenningar um “Bananakaka með kanilívafi

  1. Girnileg, ætla að prufa hana. Getur maður ekki notað eitthvað annað í staðinn fyrir vanillusykur, vanilludropa t.d., eða er það algjört nó-gó? 🙂

    • Það er ekkert mál Björg. Ég er bara búin að venja mig á að nota vanillusykur eftir langa búsetu í Svíþjóð þar sem vanilludropar fást ekki.

      • Súper dúper 🙂 Bý sjálf í DK og er vön vanillusykrinum í dönskum uppskriftum, og hef þá keypt hann ef mig vantar…á hann bara ekki til hér heima akkúrat núna og nenni ekki í búð…hehe 🙂

  2. jólapakkarnair eru bara snilld!! hvað efni ertu með í nefið og augun, keyptirðu þau bara í föndurbúð?

    • Takk Kristín! 🙂 Ég notaði brúnan pappír úr Íkea (fæst líka í Tiger), svo notaði ég hvíta pípuhreinsara fyrir horn, rauð lítil dúskanef úr Föndru (komu mörg saman í poka) og augu með lími aftan á úr Föndru líka, komu líka mörg saman í poka minnir mig. Svo teiknaði ég munn, augabrúnir og svoleiðis. 🙂

Skildu eftir svar við eldhussogur1 Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.