Freyðandi myntu- og sítrónudrykkur og ársuppgjör matarbloggara! :)


IMG_0748

Það er við hæfi að líta tilbaka á síðasta degi ársins og gera upp árið 2012 (þið sem kíktuð bara inn til að fá uppskrift af drykknum ættuð bara að skrolla neðst niður hið bráðasta, þetta verður langloka hjá mér! 😉 )! Þegar ég settist niður við tölvuna laugardaginn 9. júní síðastliðið sumar til að kíkja á tölvupóstinn minn í flýti (var á leið í afmælisveislu til pabba) þá grunaði mig ekki að ég myndi standa upp skömmu seinna sem matarbloggari! Ég opnaði þetta blogg eiginlega án alls undirbúnings. Ég var aðeins búin að gæla við hugmyndina en fannst ég langt frá því að framkvæma hana. Nafnið, Eldhússögur, laust niður í huga mér þegar ég var að skrá mig hér á WordPress sem hýsir bloggið og þar sem boðið var upp á undirtitil lá í augum uppi að Eldhússögurnar væru ,,úr Kleifarselinu“.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrstu fimm mánuðina setti ég inn uppskrift á hverjum einasta degi. Mér fannst það bara verða vera þannig, ef maður ætlar að blogga á annað borð þá þarf það að vera almennilegt! 🙂 Sjálfri finnst mér bara gaman að lesa blogg sem eru uppfærð oft. Ég hélt það ekki alveg út allt árið en næstum því! Undir lok ársins varð eitthvað að gefa sig, ég var að skila af mér meistararitgerð, vinna hlutavinnu og að auki með sex manna heimili. Færslurnar urðu 174 á 206 dögum sem er nú alveg ágætis frammistaða samt! Ég var spurð að því um daginn hvort ég væri eitthvað að græða á blogginu. Satt að segja var það fyrsta sem kom upp í huga mér: aukakíló og svefnleysi! 🙂 En vissulega hef ég grætt ákaflega margt á þessu bloggi. Fyrst og fremst hef ég grætt það að hafa sjálf tekið miklum framförum við eldamennskuna. Einnig er ég komin með gott safn af uppskriftunum mínum sem er mér alltaf aðgengilegt, það var eitt af markmiðunum með þessu bloggi. Auk þess hefur bloggið hefur leitt mig í kynni við frábært fólk, ykkur lesendur,  og skemmtileg verkefni.

Áskoranirnar hafa verið afar margar. Minnsta málið er að elda og baka, það er ekkert mál! Það sem hefur verið áskorun fyrst og fremst er að finna, þróa og skrá góðar uppskriftir, það er afar tímafrekt. Í öðru lagi er það myndartakan. Satt best að segja er ég engin sérstök áhugamanneskja um ljósmyndun. Ég hef samt alltaf tekið mikið af myndum en aðallega í skráningarlegum tilgangi ekki fagurfræðilegum. Ég byrjaði á því að taka matarmyndirnar á ,,auto“ stillingunni á myndavélinni sem er nokkuð auðvelt ef maður er með þokkalega myndavél og góða dagsbirtu. En svo neyddist ég til að fara í ,,manual“ stillingar núna í vetur þegar dagsbirtan hætti að vinna með mér. Það hefur tekið dálítið á og verið þolinmæðisverk að finna út úr því. Að auki þarf að vinna myndirnar eftir á sem er einnig tímafrekt. Það er líka áskorun að halda úti góðri vefsíðu. Það finnst mér reyndar mjög skemmtilegt og það kemur aðeins inn á námið sem ég er að ljúka núna, bókasafns- og upplýsingafræði. Ég fór meðal annars í kúrs um heimasíðugerð sem ég hef getað nýtt mér hér. Ég hef samt ekki haft tíma til að að breyta og bæta síðuna eins og ég hefði viljað. Í sannleika sagt hef ég oftast nær sett inn færslur hingað á nóttunni! 🙂 Svo stilli ég á að þær birtist á kristilegum tíma þannig að allir þeir sem fá tölvupóst um nýja færslu verði ekki vaktir um miðja nótt með pípi frá símanum sínum! Stundum hef ég, svefndrukkin um miðjar nætur við tölvuna, velt því fyrir mér af hverju ég sé að þessu og hvort ég ætti ekki bara að hætta þessu rugli! 😉 En núna þegar ég stend við þröskuld nýs árs, búin með ritgerðina mína, aðsóknarmet slegið á síðuna mína í fyrradag og ég fæ fullt af fallegum og hlýjum kveðjum frá ykkur lesendum er ég uppfull af eldmóði! Ég er með ótal hugmyndir og áform fyrir síðuna mína sem ég hlakka til að koma í verk á nýju ári. Ein nýjungin mun birtast á síðunni strax á morgun, nýársdag, ég er afar spennt yfir því!

En fyrir þá sem vildu fá uppskrift af góðum áramótadrykk þá var ég með þennan um daginn í Kalkúnaboðinu góða. Mér finnst freyðivín svona lala gott og kampavín bara alls ekki gott! En hérna er sæt sítrónu/myntu blanda sett út í freyðivínið sem gerir freyðivínið algjört sælgæti. Þetta er ofsalega ferskur og góður drykkur, mæli með því að skála með honum í kvöld fyrir nýju ári! GLEÐILEGT NÝTT ÁR! 🙂

Uppskrift (6 glös):

04037Sævar vínþjónn mælir með Jacob’s Creek Chardonnay Pinot Noir Brut freyðivíninu fyrir þennan drykk. Það er sítrónugult með mjúkri fyllingu, sætt, fersk sýra. Sítrus, apríkósa, hunang.

 

Sítrónusafanum hellt í pott og suðan látin koma upp, sykrinum bætt út í. Hrært í blöndunni þar til hún bráðnar. Látið kólna (athugið að gera þetta með nokkuð góðum fyrirvara því það tekur drjúga stund fyrir blönduna að kólna alveg). Blöndunni skipt í sex glös, nokkur myntublöð sett ofan í hvert glas og þau síðan fyllt með köldu freyðivíni! SKÁL!
IMG_0747

27 hugrenningar um “Freyðandi myntu- og sítrónudrykkur og ársuppgjör matarbloggara! :)

  1. Takk fyrir uppskriftir og skemmtilegt blogg,þegar ég býð uppá einhvað mjög gott segi ég gestum mínum að þetta sé af Eldhússögum :)Gleðilegt ár til þín og þinna,takk fyrir mig.
    Brynja

  2. Takk kærlega fyrir dásamlega góðar uppksriftir og skemmtileg skrif.. lesningin rifjar upp gömul bréf sem bárust á aðeins fornfálegri máta frá Svíþjóð í denn…t.d. á faxi 😉 Gleðilegt ár til ykkar allra í Kleifarselinu kossar og knús í hús 🙂 Kv.Ingunn

  3. Segi bara takk fyrir mig, hef haft mikla ánægju að lesa bloggið þitt. Ætla að nota þessa uppskrift af freiðivininu í kvöld, kemur sér vel þar sem ég er með tvær ólettar í boðinu., Get þá bara blandað sódavatni útí fyrir þær í staðinn fyrir freyðivinið. Gleðilegt ár til þin og þinna og hlakka til að lesa meira á komandi ári :;) Rakel

    .

  4. Og ég vil líka þakka kærlega fyrir mig. Þessi síða (ásamt Ljúfmeti og lekkerheit) hefur verið mér óþrjótandi brunnur frá því ég fann hana í haust. Ég er með gesti í mat flesta sunnudaga og hef prófað flesta kjúklingaréttina og flesta eftirréttina og allt jafn gott.
    Til hamingju með meistararitgerðina og ég óska þér og þínum velfarnaðar á nýju ár.
    Þórgunnur Hjaltadóttir.

  5. Takk fyrir frábært blogg. Ég hef prófað ótalmargar uppskriftir frá þér og þær eru hverri annarri betri. Það var svakalega fyndið í gær þegar ég rakst á eina í bökunarrekkanum í Hagkaup og við héldum báðar á piparmyntudropum og Marshmallowfluffi. Við fórum að skellihlæja þar sem við vorum greinilega búnar að vera að lesa sama bloggið. Inni í frysti bíður svo Bismark kakan 🙂
    Gleðilegt nýtt matarbloggs ár og takk aftur innilega fyrir mig!
    Bestu kveðjur, Elísa

  6. Endalaust gaman að lesa bloggið og að ég tali ekki um að elda eftir þvi .Takk fyrir að gefa þér tíma í þetta allt 🙂 Gleðilegt nýtt ár .Bestu kveðjur Alma

  7. Elsku vinkona og snillingur!!!!!!! takk fyrir þetta allt, ekki hætta, hlakka til að fylgjast með 2013. Gleðilegt ár til þín og þinna 🙂
    knús Fríða

  8. Elsku Dröfn vinkona mín, hjartans þakkir fyrir skemmtilegar og frábærar uppskriftir. Bloggið þitt hefur að geyma dásamlegustu mataruppskriftir landsins. Ég hef ekki rekist á uppskrift sem ég væri ekki tilbúinn að smakka. Fyrir mér er þetta eins og nammibúðin fyrir suma og ÁTVR fyrir aðra.
    Ég óska ykkur í Kleyfarselinu gleðilegra áramóta, árs, friðar og ómældra gleðistunda á komandi ári.
    PS: Svo elska ég ykkur öll.

    Svanberg.

    • Elsku Svanberg, kærar þakkir fyrir dásamlega kveðju, mikið gleður hún mig! 🙂 Og núna þegar þessi blessaða ritgerð er loksins frá hlakka ég til að fá þig í mat til okkar sem fyrst, ég er löngu búin að ákveða hvað ég ætla að bjóða þér upp á! 😉 Gleðilegt ár til þín, kossar og knús frá okkur í Kleifó!
      p.s. …og við elskum þig öll! 🙂

  9. Takk fyrir innblásturinn. Frábærar uppskriftir, flott síða og fallegar myndir. Hvernig myndavél notar þú? Allir eftirréttir hjá mér þessi jól og áramót koma frá síðunni þinni og hittu vel í mark hjá öllum 🙂 Takk fyrir mig og mína.

    • Takk fyrir hrósið Steina! 🙂 Gaman að heyra þetta með eftirréttina! Ég nota Canon EOS 500D myndavél með 17-85 mm linsu. Þetta er eina linsan sem ég á en mig langar til að eignast 50mm macro 2.5 linsu. Gleðilegt ár! 🙂

  10. Bakvísun: Innbakaður brie með sultu í smjördeigi | Eldhússögur

  11. Sæl Charlottta

    Takk fyrir að benda mér á þetta! Ég er búin að laga uppskriftina núna, þetta eru sem sagt 0.75 dl af sykri. Ég myndi gera blönduna allavega klukkutíma áður þannig að hún væri alveg orðin köld, þetta snýst bara um að fara ekki að blanda henni heitri saman við freyðivínið.

  12. Bakvísun: Hátíðarmatur og nýjung á Eldhússögum | Eldhússögur

  13. Takk fyrir flott blogg. Prófaði að baka hangikjötið og þannig verður mitt hangikjöt eldað eftirleiðis. Dásamlega gott. Frábært að fá uppskriftirnar þínar með fallegum myndum og vonandi heldurðu ótrauð áfram 🙂

  14. Gleðilegt ár og takk fyrir frábært blogg, ég prófaði hinar og þessar uppskriftir í fæðingarorlofi og margar hafa fest sig í sessi hjá fjölskyldunni. Í gær var t.d hægeldað lambalæri sem er í miklu uppáhaldi 🙂

Leave a Reply

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.