Þetta get ég aldrei bakað aftur, grínlaust! Ég gat ekki hamið mig í dag og gúffaði í mig alltof mörgum stykkjum, ég ræð ekkert við mig þegar þetta vínarbrauð er annars vegar! Vanillukremið, ómægod! Þessi vínarbrauð eru hrikalega góð, öll fjölskyldan var innilega sammála um það. Deigið er gert úr köldu gerdeigi og þarf ekki að hefast. Þetta er því afar fljótgerð og einföld uppskrift. Vanillukremið er dásamlega gott og er hægt að nýta fyrir pæ, ávexti og aðra eftirrétti. Ég tók eftir því að vanillustöngin sem ég notaði var með litlar hvítar doppur. Það er auðvelt að halda að hún sé mygluð eða skemmd en svo er alls ekki, þvert á móti. Það er merki um að vanillustöngin sé af góðum gæðum. Þessar hvítu doppur er vanilla sem hefur kristallast út úr stönginni.
Best er að byrja á því að gera vanillukremið.
Uppskrift vanillukrem:
5 dl mjólk
1 st vanillustöng
1 1/2 dl sykur
5 st eggjarauður
1 1/2 dl maizenamjöl
50 g mjúkt smjör
Vanillustöngin klofin á lengdina og fræin skafin innan úr stönginni. Fræin og stöngin sett í pott ásamt mjólkinni og suðan látin koma upp varlega. Það þarf að gæta þess að mjólkin brenni ekki. Vanillustöngin er veidd upp úr mjólkinni.
Sykur, eggjarauður og maizenamjöl þeytt þar til blandan verður létt og ljós. Smátt og smátt er heitu mjólkinni bætt út í. Blöndunni er hellt aftur ofan í pottinn og hún hituð varlega á meðalhita, hrært á meðan með písk. Það þarf að gæta þess að blandan sjóði ekki og hafa tilbúna kalda skál til að hella kreminu í. Þegar kremið þykknar þá gerist það snöggt og þá er mikilvægt að hella kreminu strax í kalda skál. Þá er smjörinu bætt út í og því pískað saman við kremið þar til það hefur blandast vel saman. Vanillukremið er látið kólna dálítið í ísskáp.
Vínarbrauð:
2 dl mjólk
2 egg
150 g smjör við stofuhita
8 dl hveiti
2 dl sykur
1 tsk möndludropar
Girnilegt! En segðu mér, 50 gr þurrger? Ertu að meina t.d. þetta í litlu pökkunum?
Það átti auðvitað að standa 12 g þurrger, takk fyrir ábendinguna Ásta! 🙂 Ef notað er ferskt ger þá eru það 50 g.
Vá, hvað þetta er fallegt. Þetta langar mig að reyna að gera.
Ég þeytti egg sykur of mais mjöl saman og það varð aldrei létt og ljóst. Það vantaði léttleikan í vanillukremið. Annars mjög góð vínarbrauð 🙂 takk.