Nautahakksrúlla með osti og brokkolí


Ég gerði þennan ljúffenga og sniðuga hakkrétt fyrr í vikunni. Rúllan er skemmtileg tilbreyting frá því sem maður gerir venjulega úr nautahakki og öllum fjölskyldumeðlimum fannst hún ofboðslega góð.  Það er fljótlegt að búa til þessa nautahakksrúllu og svo er henni bara skellt inn í ofn. Mér finnst svoleiðis matur alltaf svo þægilegur, þá getur maður gengið frá í eldhúsinu eða gert eitthvað annað á meðan maturinn eldast. Sósan er frábærlega góð, það má alls ekki sleppa henni. Svo er hægt að leika sér með innihaldið í rúllunni, nota til dæmis rifinn piparost, fetaost eða gráðost í stað venjulegs ostar. Það er líka hægt að nota annað grænmeti líkt og papriku, lauk og/eða sveppi og ekki er verra að bæta við beikoni.

Hér hef ég gert aðrar góðar útfærslur af nautahakksrúllunni:

Nautahakksrúlla með mozzarella, tómötum og basilku

IMG_0576

Nautahakksrúlla með beikoni, eplum og sveppum

IMG_9706

Mexíkósk nautahakksrúlla

IMG_1104

Það er ákaflega einfalt að aðlaga nautahakksrúlluna með osti og brokkolí að LKL – lágkolvetna mataræðinu – og ég setti leiðbeiningar hvernig fara á að því inn í uppskriftina. Fyrir LKL fólk væri sniðugt að bera fram með rúllunni til dæmis blómkálshrísgrjón. Þau eru gerð með því að rífa niður blómkál (ekki stilkana, bara blómin) á grófu rifjárni. Það er svo sett út í sjóðandi vatn sem er saltað (vatnið á rétt að fljóta yfir þau) í 3 mínútur. Það þarf svo að láta leka vel af blómkálshrísgrjónunum, þau eiga að verða alveg vatnslaus, áður en þau eru borin fram. Það er hægt að gera stóran skammt og geyma í ísskáp í nokkra daga.

Uppskrift f. 4

  • 600 gr nautahakk
  • 1 msk nautakraftur
  • 1 msk kartöflumjöl (2 msk husk fyrir LKL-vænan rétt)
  • 1 tsk salt
  • pipar
  • 1 egg
  • 200-300 gr ferskt brokkolí, skorið smátt
  • ½ dl steinselja, söxuð smátt
  • 3-4 dl rifinn ostur
  • 2-3 msk sojasósa
  • 30 gr smjör, brætt
  • 1-2 dl rjómi eða mjólk (fyrir LKL er rjómi bestur)
  • 1 msk hveiti eða sósujafnari (sleppa fyrir LKL)
  • 2 tsk rifsberjahlaup (sleppa fyrir LKL)

Ofninn er hitaður í 180 gráður. Nautahakki, nautakrafti, kartöflumjöli, salt, pipar og eggi hrært saman í skál. Hakkið flatt út í ferning á smjörpappír. Gott er að leggja smjörpappír ofan á hakkið og fletja það svo út með kökukefli.

IMG_9693

Brokkolí, steinselju og rifnum osti dreift yfir. Með hjálp smjörpappírsins undir hakkkinu er því rúllað upp eins og rúllutertu. Rúllan er færð yfir í eldfast mót.  Bræddu smjöri og sojasósu blandað saman og helt yfir rúlluna. Hitað í ofni í ca. 40 mínútur, fer allt eftir þykkt rúllunnar. Þegar rúllan er elduð í gegn er hún tekin úr eldfasta mótinu og sett undir álpappír. Vökvinn úr eldfasta forminu er síaður í gegnum sigti í pott, 2 dl af vatni bætti út í og suðan látin koma upp. Þá er 1-2 dl af rjóma eða mjólk hellt út í. Sósan er svo þykkt sósujafnara. Fyrir LKL- væna sósu er best að nota rjóma og leyfa sósunni að malla dálítið, við það þykkist hún og þá þarf ekki sósujafnara. Það er líka hægt að bæta ca. 2 msk af rjómaosti út í sósuna til að hjálpa til við þykkingu. Rifsberjahlaupi er að lokum bætt út í sósuna (ekki fyrir LKL) og hún smökkuð til með salti og pipar. Borið fram með til dæmis kartöflumús, salati og rifsberjahlaupi.

80 hugrenningar um “Nautahakksrúlla með osti og brokkolí

  1. ég hef oft eldað þetta og tekist mjög vel. en mér reynist vel að kæla hakkblönduna í ísskáp í ca 30 mín áður en ég fer fletja hana út þá er hú aðeins stífari og auðveldari viðureigna.

  2. Hi, Im obviously not from Iceland. I came across this website from Pinterest. I am wondering what the ingredients are in English. It looks so delicious. I must try it. Thank You, Katherine Richardson

  3. Þetta er komið inn í ofn ,heppnaðist vel ,svo er bara að kanna bragðið.

  4. Bakvísun: Hamfarir í eldhúsinu og sitthvað fleira | reardonfamilyinbahrain

  5. Bakvísun: Catastrophes in the kitchen and some more | reardonfamilyinbahrain

  6. We lived in Iceland for 3 years. Loved the food and such wonderful people. Would love to have the English version of this book. I have several cookbooks from Iceland( in English). We learned the langue but never learned to read it. That was back in 1978. A long time ago!

  7. Hello, May I please have this recipe in Enhglish so I make make this for my family.. Thank you so much….

  8. til þess að binda rúlluna þarf helst að vera hakk með fitu 18 – 20% ,og setja rifinn osti inní því hann bindur við eldun ,svo er voða gott að setja tómatsósu eða bbq sósu inn í

  9. Bakvísun: Week 8: I’ll Always Own Iceland | homedatenightduo

  10. Bakvísun: Matreiðsluverkefni 1, réttir úr kjöti. – Heilsuefling og heimilisfræði

Skildu eftir svar við eldhussogur1 Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.