Besta skúffukakan


Ég er dálítið spennt að setja þessa uppskrift hérna inn! Ég fer sjaldnast nákvæmlega eftir mataruppskriftum og breyti þeim oft og iðulega. En kökuuppskriftir eru viðkvæmari fyrir breytingum og ekki oft sem ég breyti þeim mikið. Ég hef hins vegar verið að prófa mig áfram með skúffukökur. Allir vilja eiga eina feiknagóða uppskrift af skúffuköku og ég hef prófað margar slíkar til að finna hina einu og sönnu, en án árangurs. Vissulega eru margar skúffukökur ljómandi góðar en undanfarið hef ég verið að prófa mig áfram með mína eigin uppskrift og er loksins komin niður á eina sem ég er mjög ánægð með. Þessi skúffukaka er bragðgóð og mjúk, sú besta sem ég hef smakkað hingað til. Ég held að einn af göldrunum við hana sé súrmjólkin með karamellubragði!

Jóhanna Inga yngsta skottið okkar átti 8 ára afmæli um daginn og þá var auðvitað bökuð skúffukaka. Reyndar var ég ekki búin að fullþróa uppskriftina mína þá, það gerðist nú bara í gær! En ágætis skúffukaka var þó bökuð á afmælinu og í ár var yngsta barnið með afar þægilega ósk um afmælistertu. Engar flóknar fígúrur eða kastalar, brúðarterta skyldi það vera! 🙂 Hún átti að vera með hvítu kremi, blómum og skrauti. Jóhanna Inga valdi sjálf af kostgæfni allt skrautið á tertuna og við mæðgur hjálpuðumst að með að skreyta brúðarterturnar! Þær voru tvær, önnur fyrir 20 stelpna bekkjarafmæli og hin fyrir fjölskylduafmælið.

Heimilisfaðirinn sem er liðtækur á grillinu en er ekkert mikið í eldamennskunni annars átti sína 15 mínútna frægð við afmælisundirbúninginn! Honum var afhent melóna ásamt skurðarhníf og gefinn fyrirmæli um útskurð. Verandi fjarska góður skurðlæknir fórst honum þetta verk auðvitað snilldar vel úr hendi og út kom þessi skemmtilegi broddgöltur:

Þessi krúttulegi broddgöltur fer inn í hugmyndabankann fyrir afmæli sem er hér.

Uppskriftin af skúffukökunni hér að neðan passar í bökunarform sem er ca. 25 x 35 cm. Ég myndi gera uppskriftina eina og hálfa, jafnvel tvöfalda fyrir stóra ofnskúffu. Ég notaði uppskriftina af kökukreminu fyrir líka fyrir hvítu brúðartertuna hennar Jóhönnu, ég sleppti bara kakóinu og setti dálítin vanillusykur í staðinn þar sem að hún vildi hvítt krem. Ég vil taka það fram að kökuuppskriftin er mín en uppskriftina af kökukreminu fékk ég úr Gestgjafanum.

Uppskrift (fyrir form sem er 25×35 cm, fyrir ofnskúffu þarf 1 1/2 uppskrift):

  • 2 dl sykur
  • 2 dl púðursykur
  • 2 egg
  • 170 gr smjör, brætt
  • 5 dl hveiti
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 3 tsk. vanillusykur
  • 1 dl. kakó, sigtað
  • 2 1/2 dl súrmjólk með karamellu
  • 1 dl vatn, sjóðandi heitt

Byrjið á því að taka út úr ísskáp smjör í kökukremið svo það verði mjúkt.

Hitið ofninn í 200 gráður. Bræðið smjörið og látið það kólna aðeins. Smjöri, púðursykri og sykri hrært mjög vel saman. Þá er eggjum bætt út í, einu og einu. Því næst er þurrefnunum blandað saman í skál annars vegar og súrmjólk og sjóðandi heitu vatni í aðra skál hins vegar. Um það bil helmingur af blöndunum úr hvorri skál fyrir sig er bætt út í deigið og hrært í stutta stund, þá er restinni úr báðum skálunum bætt út í deigið og hrært. Athugið að hræra eins stutt og hægt er, bara þar til hráefnin hafa blandast saman, ekki lengur. Deiginu er hellt í smurt smurt bökunarform eða ofnskúffu (þessi uppskrift passar í bökunarform sem er ca. 25 x 35 cm, fyrir ofnskúffu þarf að gera eina og hálfa uppskrift) og bakið í miðjum ofni í ca 20 mínútur eða þar til kakan hefur losnað frá köntunum og er bökuð í gegn í miðjunni.

Kökukrem:

  • 150 gr smjör, mjúkt
  • 200 gr flórsykur
  • 4,5 msk kakó
  • 2 msk síróp

Hrærið smjörið þar til það er orðið kremkennt. Sigtið flórsykur og kakó saman og blandið því síðan smátt og smátt við smjörið. Ef kremið er of þykkt er hægt að bæta við örlítilli mjólk. Hrærið að lokum sírópi saman við. Smyrjið kreminu á kalda kökuna.

93 hugrenningar um “Besta skúffukakan

  1. Bakvísun: Skúffukaka sem er svo góð Mömmur.is

  2. Þessi skúffukaka er sú langbesta sem ég hef bakað. Hef einnig notað hana í muffinsform.

  3. Ég er amma og hef alltaf bakað allar afmæliskökur fyrir barnabörnin og hef leitað lengi að hinni fullkomnu súkkulaðiköku sem ég fann svo á síðunni þinni. Ég er búin að baka nokkrar og þær gera allsherjar lukku hjá öllum enda sú besta. Takk fyrir allar hinar uppskriftirnar sem ég nota mikið ef mig langar í eitthvað gott, þínar frábæru útlistanir hvernig gera á hlutina gerir allt svo auðvelt. Enn og aftur takk fyrir mig. Kv, Ebba.

    • En hvað þetta var góð kveðja sem gleður mig mikið Ebba! 🙂 Kærar þakkir og vonandi heldur þú áfram að finna eitthvað gott á síðunni minni.

  4. Þessi heppnaðist frábærlega. Hef gert hana tvö ár í röð, en nú var ég með síríus konsum kakó frá nóa síríus. Hún var mjög góð í fyrra en með síríus konsum kakó ég get bara ekki lýst því hvað hún var svakalega góð!

  5. Takk kærlega fyrir okkur. Ég bakaði kökuna um helgina og þetta er besta skúffukakan sem ég hef smakkað. Ég áttu ekki súrmjólk með karamellubragði en notaði drykkjarjogúrt með karamellubragði, einnig notaði ég hunang í staðinn fyrir síróp. Ég mun baka þessa oftar 🙂

  6. Bökuðum þessa með kaffinu í gær og VÁ, mín uppskrift af skúffuköku er sú allra besta 🙂 og margir beðið um uppskriftina. En þessa er ALVEG æðisleg, allt öðruvísi en mín sem er æði því nú á ég tvær BESTU skúffuköku uppskriftirnar. Kremið þitt er líka rosalega gott, mitt er doldið sparikrem með suðusúkkulaði og rjóma og fleiru, svo gott að hafa annað krem sem er líka bragðgott.
    Takk fyrir þessa frábæru uppskrift þú klikkar ekki eins og venjulega 🙂

  7. Þetta er sú allrabesta sem við höfuð smakkað hér á heimilinu 🙂

  8. Þessi er algert uppáhald!
    Nú á að baka hana fyrir enn eitt afmælið og þs einn af gestunum er með glúteinóþol velti ég fyrir mér hvort e-r hafi prófað að baka hana með möndlumjöli í stað hveitis?…

  9. Nota alltaf þessa uppskrift 🙂 Langbesta skúffukakan , er einmitt að fara að baka hana á eftir fyrir afmæli á morgun 🙂

  10. Sæl Dröfn, ég er mikill aðdáandi þessarar síðu og nýti mér hana óspart og réttirnir slá undantekningarlaust í gegn 🙂 Þessa skúffuköku er ég búin að nota sem afmælisköku fyrir prinsinn minn síðustu ár – enda dásamlega góð. Nú er hins vegar smá áskorun fyrir mig því ég þarf að vera með grænan fótboltavöll. Má ég spyrja þig hvernig þú myndir leysa það – myndirðu nota sama krem og sleppa kakóinu og skella bara grænum matarlit út í? Finnst kremið svo gott eins og það er að þori ekki annað en spyrja sérfræðing áður en ég breyti því 🙂

    Kær kveðja
    Guðný Sig

    • Sæl og takk fyrir góða kveðju Guðný! 🙂 Varðandi fótboltavöllinn þá myndi ég annað hvort nota uppskriftina af smjörkreminu, sleppa bara kakóinu og setja ca. 1 msk vanillusykur í staðinn, bæta svo við grænum matarlit. Eða nota brúna smjörkremið og dreifa á kökuna. Setja svo kókósmjöl í poka ásamt 2-3 dropum af grænum matarlit, loka pokanum vel og hrista. Þá ertu komin með grænt „gras“ sem þú getur dreift þétt yfir kremið. Gangi þér vel.

      • Kærar þakkir fyrir skjót svör Dröfn – grænt kókosmjöl er snilldar lausn – hefði ekki haft hugmyndaflug í það. Kærar þakkir 🙂

  11. Ég bakaði afmælisköku eftir þessari uppskrift. Ég baka mjög sjaldan og vandaði mig rosalega vel, nema sleppti úr línu og uppgötvaði þegar ég var að fara að hella deiginu í vel smurt mótið að eggin stóðu ennþá óbrotin á borðinu 😳
    Allt gekk svo vel… jæja, ég tók þá ákvörðun að sjá hvað yrði úr þessu og bakaði.
    Kakan var ljómandi fín, bæði hún og kremið voru mjög góð 😍
    Er ekki bara samsæri Eggjabænda að halda því fram að kökur þurfi egg 😎😂

  12. Ég finn ekki súrmjólk með karamellubragði lengur út í búð, hefurðu verið að nota eitthvað annað í staðinn? 🙂

  13. Hefurðu prófað að gera þessa uppskrift í tvö hringform og svo botnarnir settir ofaná hvorn annann?

Skildu eftir svar við Þorgerður Hætta við svar

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.